Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hormónaraskandi efni í ýmsum varningi ógna framtíð mannkynsins

Hormónaraskandi efni í ýmsum varningi ógna framtíð mannkynsins

„Þau stjórna efna­skiptum í lík­am­anum, hafa áhrif á bein­vöxt og þroska, þau hafa áhrif aðgrein­ingu kynja í móð­ur­kviði. Þau hafa áhrif á kynein­kenni, jafn­vel kyn­vit­und. Þau hafa áhrif á þroska heila í móð­ur­kviði og svona mætti lengi telja“ segir Una Emils­dóttir, sér­náms­læknir í umhverf­is­lækn­is­fræði í þætti Kveiks.

Nýlegar rann­sóknir á styrk nokk­urra horm­ón­arask­andi efna í Íslend­ingum sýna að þeir eru álíka útsettir fyrir þeim og aðrir Vest­ur­landa­búar – til dæmis svoköll­uðum PFAS-efnum. Það eru mann­gerð þrá­virk efni sem hrinda frá sér vatni og fitu. Aðeins lít­ill hluti þeirra hefur verið bann­aður.

Í þætt­inum kemur fram að sumir telji horm­ón­arask­andi efni í ýmsum varn­ingi ógna fram­tíð mann­kyns­ins. Mikil óvissa hefur ríkt um áhrif þeirra og reglu­verkið á erfitt með að taka á þeim. Deilt er ára­tugum saman um hvort efni skuli leyfð eða bönnuð og á meðan þykknar efna­súpan í kringum okkur.

Eftir seinni heims­styrj­öld skall flóð­bylgja á almenn­ingi á Vest­ur­löndum þegar á markað komu ýmis undra­efni. Á innan við öld hefur efna­fram­leiðsla í heim­inum nær þús­und­fald­ast og enn eykst magnið á hverju ári. Svokölluð horm­ón­arask­andi efni valda sér­stökum áhyggjum.

Rann­sóknir benda til þess að sæð­is­gæðum hafi hnignað skarpt á Vest­ur­löndum síð­ustu ára­tugi og sá mögu­leiki hefur verið nefndur að ef ekk­ert lát verður á þró­un­inni verði næstu kyn­slóðir hugs­an­lega ófærar um að eign­ast eigin börn, nema með tækni­legri aðstoð.

Í óbirtri rann­sókn Rann­veigar Óskar Jóns­dóttur fyrir ári var styrkur nokk­urra PFAS-efna mældur í 140 Íslend­ingum. Í 7,5 pró­sentum kvenna á barn­eign­ar­aldri var styrk­ur­inn yfir hættu­mörkum fyrir fóstur.

Milljón dauðsfalla á hverju ári

Sam­ein­uðu þjóð­irnar, Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin, Umhverf­is­stofnun Evrópu og Norræna ráð­herra­ráðið eru meðal þeirra sem hafa reglu­lega sent frá sér skýrslur um hætt­una af horm­ón­arask­andi efnum.

Alþjóða­sam­tök fæð­inga- og kven­sjúk­dóma­lækna segja þau eiga þátt í millj­ónum dauðs­falla á ári hverju og kosta sam­fé­lagið millj­arða doll­ara. Verið sé að drekkja heim­inum í ópróf­uðum efnum.

Una segir efnin líkj­ast horm­ónum og bind­ast sömu við­tökum.

„Þau annað hvort hvetja eða hindra starf­semi eðli­legra horm­óna. Ef maður fær hug­mynd um það hvað hormón gera í lík­am­anum og hversu mik­il­vægum hlut­verkum þau gegna þá veit maður að maður ætti kannski að hafa ástæðu til að ótt­ast horm­óna­trufl­andi áhrif,“ segir hún.

Ýmsar rann­sóknir síð­ustu ára­tugi hafa bent til þess að það sé fylgni á milli útsetn­ingar fyrir horm­óna­spill­andi efnum og ótal heilsu­far­s­vanda­mála, svo sem krabba­meins, syk­ur­sýki, skjald­kirtils­vanda­mála, offitu, ófrjó­semi, ADHD, ein­hverfu, frá­vika á kyn­færum drengja, fjöl­blöðru­eggja­stokka­heil­kennis, endó­metríósu, fóst­ur­missis, skerts vits­muna­þroska og lágs testó­steróns. Hins­vegar er mun minna um að orska­tengsl þarna á milli hafi verið stað­fest. Rann­sókn­unum ber heldur ekki alltaf saman.

Það er stað­reynd að vest­rænir karlar í dag mæl­ast að með­al­tali með helm­ingi færri sprækar sáð­frumur en afar þeirra gerðu, en breyt­urnar að baki því geta verið fjöl­margar.

Fræði­menn eru langt frá því að vera sam­mála. Sumir hafa með tím­anum styrkst í trú sinni á að horm­ón­arask­andi efni hafi mikil og alvar­leg áhrif. Aðrir eru komnir á þá skoðun að of mikil áhersla hafi verið lögð á þátt horm­óna­spilla og of miklum fjár­munum sé varið til rann­sókna á þeim. Nær­tækara væri að horfa til dæmis á þátt vest­ræns matar­æðis og stór­auk­innar lyfja­notk­unar.

Nánar er fjallað um þetta mál í þætti Kveiks sem sýndur var á RÚV í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina