Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Eurovisionstjarnan Stefán Óli var kallaður aumingi á hækjum: „Ég varð fyrir miklu einelti í skóla“

Eurovisionstjarnan Stefán Óli var kallaður aumingi á hækjum: „Ég varð fyrir miklu einelti í skóla“
(Mynd: Helgi Ómarsson.)

„Ég varð í æsku fyrir miklu ein­elti í skóla og að takast á við höfnun dag eftir dag orsak­aði kvíða og lélegt sjálfs­mat. En það sem hefur mótað mig mest er að verða pabbi; sonur minn breytti hugsun minni og hegðun. Vegna hans þorði ég að taka skrefið og láta reyna á tón­list­ar­fer­il­inn,“ segir Stefán Óli Magn­ús­son sem komst áfram um síð­ustu helgi í und­ankeppni Söngvakeppni sjón­varps­ins með lagið „Ljósið“.

„Ég held að ein­eltið hafi byrjað þegar ég var í 4. bekk; ég man alla­vega eftir því þá, en það hefur lík­leg­ast byrjað fyrr. Ég var lít­ill og grannur strákur og var þennan vetur á hækjum í tvo mán­uði af því að ég hafði tognað og það var mikið gert grín að mér út af hækj­unum. Ég þorði þar af leið­andi ekki að fara í skól­ann. Ég var svo við­kvæmur fyrir öllu þessu tali. Ég þorði ein­fald­lega ekki að mæta í skól­ann í þrjár vikur af því að ég var alltaf kall­aður „aum­ingi á hækjum“.

Eineltið var gróf­ast frá 6. bekk og upp í 1. bekk í menntó. Ég óx ekki eins og aðrir og tók kyn­þrosk­ann seinna út og var ennþá svo lít­ill og ég var líka þybb­inn, en ég svindl­aði mér í kvöld­mat hjá ömmu og sagði aldrei mömmu frá því og borð­aði svo líka kvöld­mat heima. Ég var þess vegna sagður vera feitur alla daga; ég heyrði það á hverjum degi í skól­anum.“

Stefán Óli talar um mikið bak­tal. Sögur um sig. Stundum kom hann að krökkum sem voru að tala um hann og það særði skilj­an­lega. „Það var það erf­ið­asta og þá heyrði ég alla sög­una sem sat í mér heil­lengi.“

Ég þorði stundum ekki að fara í sturtu fyrr en allir voru búnir í sturtu.

Svo var gert grín að honum í sundi og leik­fimi og segir hann að stundum hafi hann sofið lítið á næt­urnar fyrir leik­fimi- og sund­tíma. „Ég þorði stundum ekki að fara í sturtu fyrr en allir voru búnir í sturtu. Sumir strákar eru ekk­ert búnir að taka út allan þroska fyrr en jafn­vel um 21 árs ald­ur­inn.“

Eineltið hafði þau áhrif að Stefán Óli þorði aldrei að fara á skóla­böll. „Þetta gerði mig eig­in­lega mjög félags­fæl­inn náunga. Ég hafði samt mik­inn áhuga á að vera í hópum en þetta gerði mig hræddan; ég var hræddur um að segja eitt­hvað rangt.“

Sjálfs­traustið var lítið.

„Sjálfs­traustið varð eig­in­lega ekki neitt eftir að ein­eltið byrj­aði.“

Þögn.

„Þótt ein­hver hrós­aði mér, þá dugði það stutt og ég var aftur kom­inn í að berja mig ein­hvern veg­inn niður. Alla daga.“

Það má eig­in­lega segja að tölvu­leikja­heim­ur­inn hafi bjargað lífi mínu.

Hann sökkti sér í tölvu­leiki á þessum árum og segir að sumt fólk á Ísafirði, þar sem hann bjó, hafi ekki vitað hver hann var þar sem hann var svo lítið úti. „Það má eig­in­lega segja að tölvu­leikja­heim­ur­inn hafi bjargað lífi mínu. Tölvu­leik­irnir voru mitt frelsi vegna þess að þar var ég sam­þykktur fyrir að vera ég, þótt móðir mín sé kannski ekki sam­mála því, því hún hafði áhyggjur af ein­veru minni.“

Stefán Óli segir að móðir sín hafi reynt mikið að fá starfs­fólk skól­ans til að gera eitt­hvað í mál­unum, en að lítið hafi verið gert. „Ég lenti líka í því að einn kenn­ar­inn sagði nokkuð oft að ég væri heimskur.“

Þetta breytt­ist eftir að ég fór á ADHD-lyf í fyrra.

Stefán Óli var greindur með ADHD á þessum árum. „Ég fór á lyf sem hent­uðu alls ekki, því þau deyfðu mig og ég var bara eins og skugg­inn af sjálfum mér að sögn kenn­ara og móður minnar. Þannig að ég var frekar nei­kvæður á að taka lyf eftir það, en síðan var það í fyrra sem ég fór á ADHD-lyf sem henta mér. ADHD hefur alltaf haft slæm áhrif á sam­skipti mín við marga vini mína. Ég hef átt það til að tala mikið um sjálfan mig en það er óvilj­andi. Þetta breytt­ist eftir að ég fór á ADHD-lyf í fyrra.“ Hann segir að lyfin breyti næstum því öllu. „Þau hafa breytt því hvernig ég er. Sjálfs­traust mitt er orðið þús­und sinnum meira; ADHD gerði það að verkum að ég hafði eig­in­lega ekki áhuga á neinu. Þetta hljómar eins og þung­lyndi, en það var ekki þung­lyndi. Þetta teng­ist kannski því að ég náði almennt ekki að klára verk­efni.“

(Mynd: Helgi Ómarsson.)

Einelti, ADHD, kvíði og þunglyndi

Árin liðu og Stefán Óli hóf nám í mennta­skóla og það var á fyrsta ári sem hann fékk nóg og sagði ger­end­unum að hætta. Einhver tími leið, en þá hættu þeir öllu ein­elti.

„Ég var orð­inn mjög hávax­inn og stór strákur þannig að eina leiðin til að stoppa þetta var að nota hæð­ina til að vera ógn­andi. Lítið annað hægt að gera, því ég beitti aldrei ofbeldi, því það er aldrei rétta leiðin.“

Amma Stefáns Óla lést eftir bar­áttu við krabba­mein þegar hann var í 3. bekk í mennta­skóla og fór hann að finna fyrir kvíða í kjöl­farið en segir að hann hafi verið far­inn að finna fyrir kvíða áður en hafi bara ekki áttað sig á því. Hann tengir dauða hennar líka við sína fyrstu þung­lynd­is­reynslu eins og hann orðar það.

„Amma var búin að vera með krabba­mein í fimm eða sex ár. Ég hafði ekki séð mann­eskju deyja fyrr og hvað þá að kvelj­ast svona mikið og það er hægt að segja að þetta hafi verið trauma sem ég hef ekki ennþá unnið úr. En planið er að gera það á þessu ári. Kvíði minn byrj­aði lík­leg­ast eftir að farið var að leggja mig í ein­elti, en ég vissi bara þá ekki hvað kvíði var.“

Svo fæ ég stundum ofsa­kvíða sem ég ræð ekki við.

Stefán Óli glímir enn við kvíða. „Ég nota hann meira sem orku, en eftir að sonur minn fædd­ist þá breytt­ist hann úr kvöð og í bara „áfram gakk með lífið“; það er núna eða aldrei. Ég er oft hræddur við að segja eitt­hvað vit­laust og þá fer ég að verða kvíð­inn yfir því hvort ég hafi sagt eitt­hvað rétt eða ekki. Svo fæ ég stundum ofsa­kvíða sem ég ræð ekki við. Hann bara kemur yfir mig. Öll reynsla sem ég hef lent í skapar hann örugg­lega. Stundum tekur hann mig alveg og þá fer allt í rugl og vit­leysu. Það hefur þó ekki gerst upp á síðkastið, því ég hef notað önd­unaræf­ingar og slökun og reyni að hugsa af hverju ég sé hérna og af hverju ég finn fyrir kvíða og ég tala við hann; það er ein­hver leið sem ég er far­inn að nota og sem virkar: Að tala við hann. Því hann er þarna til að hjálpa mér, en ekki til að skjóta mig niður.“

Hversu langt fór Stefán Óli niður þegar honum leið sem verst? „Ég var í eitt skipti byrj­aður að hugsa hvort lífið væri þess virði að lifa því, en ég hef aldrei farið það langt að segja að lífið sé búið. Ég hef sem betur fer aldrei farið þangað. Kvíði og þung­lyndi var svo mikið tabú á þessum tíma. Enginn vissi hvað þetta var og eng­inn þorði að tala um þetta; það hefði verið sagt að maður væri geð­veikur ef maður hefði talað um þetta. Sem betur fer er mikið talað um þessi mál í dag og fólk orðið opn­ara og skiln­ings­rík­ara.“

Það er ekki hollt fyrir neinn að vera í nei­kvæðni.

Einelti, ADHD, kvíði og þung­lyndi. Hvað hefur Stefán Óli lært af þessu öllu? „Ég hef lært að það er eng­inn að fara að gera neitt fyrir mann. Maður þarf að gera allt sjálfur. Þegar maður áttar sig á því, þá koma allir með manni í liðið. Það er bara þannig. Það vill eng­inn vera í nei­kvæðn­inni. Það er ekki hollt fyrir neinn að vera í nei­kvæðni. Maður þarf að vera með jákvæða orku til að fá fólk til sín. Það er ekk­ert flókn­ara en það. Fólk kemur vegna þess að það vill fá ork­una frá öðrum til að lyfta sér upp.“

(Mynd: Helgi Ómarsson.)

Að gefast ekki upp

Stefán Óli Magn­ús­son vill gleðja fólk með söng sínum.

Hann lærði á gítar við Lista­skóla Rögn­valdar Ólafs­sonar á Ísafirði í einn vetur og svo byrj­aði hann að læra söng í Söng­steyp­unni árið 2019 og þar söng hann opin­ber­lega í fyrsta skipti. „Þar lærði ég ekki bara söng heldur einnig fram­komu og hvernig ég ætti að opna mig og vera ekki hræddur við allt sem gæti gerst heldur leyfa því að ger­ast því við höfum enga stjórn á því.“

Stefán Óli segir að hann hafi mikið lært á þessum árum frá því hann byrj­aði að syngja. „Það hefur gert það að verkum að ég hef óbilandi trú á sjálfum mér varð­andi hvað ég get gert og fram­kvæmt. Það sem skiptir öllu máli er að trúa á sjálfan sig.“

„Ljósið.“ „Boð­skapur lags­ins er að það er alltaf von. Lífið verður ekki og er ekki létt, en það er hvernig maður stendur upp eftir hvert högg sem skiptir máli og að gef­ast aldrei upp.“

(Mynd: Mummi Lú.)
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina