Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íris þótti óþekk í skóla – Var lögð í einelti og leið bölvanlega í mörg ár

Íris þótti óþekk í skóla – Var lögð í einelti og leið bölvanlega í mörg ár

Íris Hólm Jóns­dóttir þótti vera óþekk í skóla, hún var lögð í ein­elti þar sem hún var bráð­þroska og henni leið bölv­an­lega í mörg ár og sinnti ekki nám­inu sem skyldi og skróp­aði oft í skóla. Hún fór út á vinnu­mark­að­inn eftir skyld­una, flosn­aði reglu­lega upp úr vinnu þar sem hún mættti stundum illa eða ekki neitt vegna þess hve henni leið illa, hún fékk loks aðstoð og var greind með jað­ar­per­sónu­leika­röskun og svo ADHD. Íris Hólm Jóns­dóttir lærði síðar leik­list í New York og leið henni betur í stóra eplinu en eftir að heim kom hellt­ist van­líð­anin aftur yfir hana og hún fékk tauga­á­fall. Íris var svo greind með geð­hvörf í fyrra og hún leggur áherslu á að fólk ræði um geð­ræn vanda­mál.

Upplifði sig sem aðhlátursefni

Um ein­eltið segir hún meðal ann­ars: „Þetta tengd­ist því að ég var mjög bráð­þroska og ég er ekk­ert feimin að tala um það af því að mér finnst slíkt líka vera eitt­hvað sem fólk þarf að ræða um. Ég var átta ára þegar ég byrj­aði á blæð­ingum. Ég byrj­aði að fá hár undir höndum og hár á lappir og víðar fljót­lega eftir það og það voru athuga­semdir í sundi og í leik­fimi. Bend­ingar og hlátur til dæmis þegar maður var að leika sér og lyfta bolta eða henda bolta; það var alltaf verið að benda manni á þessa hluti og hlæja að manni og þá upp­lifði maður sig asna­legan; maður upp­lifði sig sem aðhlát­ursefni sem er bara skömm í grunn­inn.

Ég var höfð­inu hærri en allir í árgang­inum og jafn­vel hærri en krakkar sem voru tveimur árum eldri og það var enda­laust verið að benda mér á það á göngum skól­ans,“ segir Íris Hólm Jóns­dóttir sem í dag er 1.68 m.

„Það var verið að labba utan í mig og krakk­arnir báð­ust afsök­unar og sögðu að þetta væri óvart en þetta var svo sann­ar­lega ekki óvart. Það var verið að labba á mig þannig að ég kannski hent­ist utan í vegg. Svo var ég með rosa­lega mikið af ung­linga­bólum mjög snemma; ætli ég hafi ekki verið í 5. bekk – 10 til 11 ára gömul – þegar ég var komin með mikið af bólum á enn­inu og niður kinn­arnar. Það var sagt að ég væri ljót og ég var kölluð „ljóti and­ar­ung­inn“ og „skrímsli“. Ég ætl­aði einu sinni að leita mér aðstoðar og fór til læknis en ég var þá farin að fela þetta með miklu meiki. Lækn­ir­inn hló framan í mig 10 ára gamla og sagði að ég liti út eins og næt­ur­drottn­ingin þar sem ég not­aði svo mikið meik.“

Sjálfskaðandi hegðun

Hún talar um sjálf­skaða á sínum tíma. „Í mínu til­felli var þetta meira sjálf­skað­andi hegðun; djamm og drykkja og jafn­vel eitt­hvað meira en það. Ég gat stoppað það af áður en það fór út í eitt­hvað meira. Maður var far­inn að djamma um hverja ein­ustu helgi og maður var kannski kom­inn í partí þar sem maður vissi alveg að þetta væri nú kannski ekk­ert snið­ugt. Það var kannski verið að neyta efna en inn­sæi mitt sagði mér að þetta væri ekki eitt­hvað sem ég vildi í mínu lífi.

Það var samt erfitt að koma sér út úr þessum aðstæðum af ótt­anum við höfnun eða ein­hvers konar við­mót af því að á þessum tíma var ég nátt­úr­lega bara að leit­ast eftir sam­þykki alls staðar þar sem ég fór; að ég yrði sam­þykkt. Ég ímynd­aði mér að ef ég færi eða mót­mælti þá yrði ég ekki sam­þykkt þannig að ég lét mig stundum hafa það að vera í aðstæðum sem ég vildi ekki vera í. Svo voru það skað­leg sam­bönd við karl­menn. Síðan átti ég það til að klóra mig; ég klór­aði mig á hand­leggj­unum þannig að það sá stundum á en ég klór­aði mig ekki til blóðs.

Þetta gerði ég af og til frá því seint á ung­lings­ár­unum þangað til ég var 21 árs. Ég gróf nögl­unum ofan í hand­legg­ina þannig að ég fyndi fyrir nögl­unum en ég gerði þetta til að leiða athygl­ina frá sárs­auk­anum í hug­anum. Þetta er leiðin til að ná athygl­inni á það sem verið er að gera þá stund­ina þann­nig að hug­ur­inn hættir að snú­ast eða hamst­ur­inn í hamstra­hjól­inu hættir að hlaupa.“

Greindist með geðhvörf

Svo var það grein­ingin í fyrra: Geðhvörf. „Þetta var sjokk að því leyt­inu til að það eru ákveðnir for­dómar gagn­vart geð­hvörfum. Ég var líka reið. Ég var aðal­lega reið eða frekar sár, leið og sorg­mædd yfir því hversu mikil þöggun er varð­andi geð­hvörf. Ef það væri talað jafn­op­in­skátt um geð­hvörf og aðra sjúk­dóma – lík­am­lega eða and­lega – þá velti ég því fyrir mér hvort það hefði verið hægt að spotta ein­kenni hjá mér fyrr.“

Hræðir það hana að vita að hún sé með geð­hvörf? „Ég veit ekki hvort það valdi mér beint hræðslu. Mér finnst það vera ákveðin frelsun að vera komin með þessa grein­ingu. Nú fer ég að pæla í ýmsu og geri mér grein fyrir hvers vegna ég gerði ýmis­legt hérna áður fyrr. Áður skildi ég ekki af hverju ég var ekki eins og venju­legt fólk. Núna veit ég að ég hef ekki stjórn á þessu. En það hræðir mig ekki.“

Lesið meira hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina