Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Frumskógur í miðbænum og ökuþór flúði úr bíl sínum undan lögreglu

Frumskógur í miðbænum og ökuþór flúði úr bíl sínum undan lögreglu
Myndin teng­ist pistl­inum ekki beint

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafði í mörg horn að líta í nótt. Mikið var um ölv­un­ar­tengd mál í miðbæ Reykja­víkur og ýmis atvik víða um höf­uð­borg­ar­svæðið.

Rétt eftir klukkan hálf fimm í nótt var bif­reið stöðvuð við umferð­ar­eft­ir­lit. Áður en lög­regla gat gengið að bílnum hafði öku­mað­ur­inn hins­vegar tekið á rás og lagt á flótta. Hann var þá á bak og burt. Lögreglu grunar að mað­ur­inn hafi haft óhreint mjöl í poka­horn­inu og hafi þess vegna látið sig hverfa. Það vildi til að mað­ur­inn missti síma sinn á flótt­anum, sem skemmd­ist tals­vert. Lögregla hefur hann undir höndum.

Í mið­bænum var klukkan ekki orðin margt þegar fyrstu til­kynn­ingar bár­ust lög­reglu. Klukkan var rétt um hálf 9 þegar lög­regla var kölluð til að veit­inga­stað í miðbæ Reykja­víkur vegna manns sem var að berja á rúður á staðnum. Maðurinn lét sig hverfa þegar honum var vísað á brott af lög­reglu og því var ekki þörf á frekara inn­gripi.

Tilkynnt var um lík­ams­árás á skemmti­stað í miðbæ Reykja­víkur laust fyrir klukkan 4 í nótt. Ekki liggja fyrir frek­ari upp­lýs­ingar að svo stöddu. Önnur lík­ams­árás var til­kynnt í mið­bænum rétt fyrir klukkan 1 í nótt en þegar lög­reglu bar að garði hafði árás­armað­ur­inn hlaupið af vett­vangi. Vitni voru þó á staðnum og er málið í rann­sókn.

Í tvígang var til­kynnt um grun­sam­legar manna­ferðir í aust­urbæ Reykja­víkur í nótt. Íbúi sá grun­sam­legan mann snigl­ast við húsið um klukkan korter fyrir 2 í nótt. Íbúinn ákvað sjálfur rann­saka málið og kanna hvað mað­ur­inn vildi upp á dekk. Þegar sá síð­ar­nefndi varð var við íbú­ann tók hann til fót­anna og komst undan.

Í seinna skiptið var klukkan rétt að verða 4 í nótt. Þá var til­kynnt um mann á hvítum sendi­ferða­bíl sem var að reyna að opna bif­reiðar. Lögregla kannar málið.

Snemma í gær­kvöld var til­kynnt um mann að stela úr hverf­is­verslun. Maðurinn fór af vett­vangi í bif­reið en lög­regla hafði upp á og stöðv­aði bif­reið­ina. Þjóf­ur­inn reynd­ist far­þegi í henni en var öku­maður hennar grun­aður um akstur undir áhrifum fíkni­efna og akstur án öku­rétt­inda. Tekin var skýrsla vegna þjófn­að­ar­ins og öku­maður bif­reið­ar­innar fluttur á lög­reglu­stöð í sýna­töku.

Rétt eftir klukkan 23 í gær­kvöld var lög­regla kölluð til á hverf­is­veit­inga­stað á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna manns sem hafði í hót­unum við annað fólk á veit­inga­staðnum. Þegar lög­regla kom á stað­inn varð það deg­inum ljós­ara að mað­ur­inn var ofurölvi. Hann neit­aði að yfir­gefa stað­inn og hafði bæði hótað og veist að gestum á veit­inga­staðnum. Sökum ástands manns­ins reynd­ist ekki annað í stöð­unni en að hand­taka hann og vista í fanga­geymslu þar til ástand hans yrði þannig að hægt væri að taka af honum skýrslu.

Rétt eftir klukkan fjögur í nótt til­kynntu íbúar hverfis um menn á gangi, á stofn­braut í hverf­inu. Til­kynn­anda fannst rétt að láta lög­reglu vita að um væri að ræða tvo menn sem væri „hass­lykt“ af. Lögregla brást vask­lega við hass­mönn­unum en þegar hún kom á svæðið voru þeir á bak og burt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina