Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Réðust á dyraverði og ökumaður hársbreidd frá því að keyra á lögreglu

Réðust á dyraverði og ökumaður hársbreidd frá því að keyra á lögreglu
Myndin teng­ist pistl­inum ekki beint

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafði í nógu að snú­ast síð­ast­liðna nótt.

Rétt eftir klukkan hálf tíu í gær­kvöld var lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til­kynnt um ofurölvi mann sem var að reyna að kom­ast inn í bif­reiðar í aust­urbæ Reykja­víkur. Í ljós kom að mað­ur­inn var ekki að gera til­raunir til inn­brots heldur var hann ein­ungis of drukk­inn til þess að kom­ast heim. Lögregla kom honum því til síns heima.

Töluvert var um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkni­efna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í gær­kvöld og nótt. Einn þeirra öku­manna sem var stöðv­aður í nótt, þegar klukkan var að nálg­ast tvö, var í svo ann­ar­legu ástandi að hann ók á röngum veg­ar­helm­ingi og var við það að lenda á lög­reglu­bif­reið­inni. Öku­mað­ur­inn var hand­tek­inn og fluttur á lög­reglu­stöð.

Lögregla hafði eft­ir­lit með skemmt­ana­haldi í miðbæ Reykja­víkur í gær­kvöld og nótt. Lögregla kann­aði rekstr­ar­leyfi ákveð­ins skemmti­staðar, sem kom í ljós að var útrunnið. Staðnum var því lokað. Á öðrum skemmti­stað þurfti lög­regla að hafa afskipti af dyra­vörðum. Í ljós kom að þeir voru ekki með til­skilin rétt­indi til starfs­ins.

Ráðist var á dyra­verði á skemmti­stað í mið­bænum um klukkan hálf þrjú í nótt. Tveir ger­endur voru hand­teknir og vistaðir í fanga­geymslu lög­reglu. Málið er í rann­sókn sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá lög­reglu.

Ofurölvi maður gekk ber­serks­gang í mið­bænum og braut bíl­rauðu. Lögreglu reynd­ist ómögu­legt að ræða við mann­inn á vit­rænan hátt og var því ekki annað í stöð­unni en að hand­taka hann og vista í fanga­geymslu.

Um klukkan hálf þrjú í nótt bár­ust þónokkrar til­kynn­ingar um mann sem var að veit­ast að fólki, skammt frá mið­bænum. Lögregla hand­tók mann­inn þegar hún kom á stað­inn og vistaði hann í fanga­geymslu. Maðurinn er grun­aður um grip­deild, eigna­spjöll og brot á lög­reglu­sam­þykkt fyrir Reykja­vík­ur­borg.

Fleiri réð­ust á dyra­verði í nótt og var lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu kölluð til vegna slíks atviks. Þegar hún kom á stað­inn neit­aði ger­and­inn að segja til nafns og gat, sam­kvæmt lög­reglu, ekki tjáð sig vits­muna­lega. Því var ekki annað í stöð­unni en að vista við­kom­andi í fanga­klefa og láta renna af honum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina