Íbúar höfuðborgarsvæðisins urðu margir varir við þrumur og eldingar í nótt en varð það til þess að rafmagn fór af í nágrenni við Heiðmörk.
Þá bilaði dælustöð í vatnsveitu Kópavogs og er nú kaldavatnslaust í Kórum, Sölum og Þingum í Kópavogi.
Sagði starfsmaður Kópavogsbæjar í samtali við Mannlíf í morgun að enn væri unnið að því að koma á kalda vatninu en töluvert mikil skemmd hafi orðið þegar eldingu hafi slegið niður við kassa sem stýrir dælustöðinni.
„Um leið og kalda vatnið kemur á þá veður það sett inn á heimasíðuna,“ sagði starfsmaðurinn.
„Þetta var alvarleg skemmd, það þurfti að ræsa allar tölvur aftur og það tekur bara tíma“.
Aðspurð hvort hún héldi að kalda vatnið kæmi aftur á í dag sagðist hún aðeins getað vonað að svo væri.
„Það vonum við, það þorir enginn að segja neitt til um það, þetta var það alvarlegt“.































Athugasemdir