Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kvíði og þunglyndi langvarandi einkenni COVID-19

Kvíði og þunglyndi langvarandi einkenni COVID-19

Nið­ur­stöður nýrrar rann­sóknar sem nær til um 250 þús­und manns í sex löndum, þar á meðal á Íslandi, benda til þess að alvar­leiki veik­inda af völdum COVID-19-sjúk­dóms­ins sé ákvarð­andi þáttur um hætt­una á langvar­andi sál­rænum ein­kennum meðal þeirra sem sýkj­ast. Rann­sóknin er unnin undir for­ystu vís­inda­fólks við Miðstöð í lýð­heilsu­vís­indum við Háskóla Íslands en nið­ur­stöð­urnar birt­ust í vik­unni í vís­inda­tíma­rit­inu The Lancet Public Health.

Rann­sóknin sem birt­ist í vik­unni bygg­ist á viða­miklum fer­il­rann­sóknum í lönd­unum sex, þar á meðal hinni umfangs­miklu rann­sókn „Líðan þjóðar á tímum COVID-19“ sem vís­inda­fólk við Miðstöð í lýð­heilsu­vís­indum ýtti af stað í upp­hafi far­ald­urs­ins hér á landi. Í þessum fer­il­rann­sóknum svör­uðu 250 þús­und manns spurn­inga­listum um sál­ræn ein­kenni en af þeim höfðu um 10 þús­und manns greinst með COVID-19 í ágúst 2021.

Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar sýna að þung­lynd­is­ein­kenni og skert svefn­gæði voru algeng­ari meðal ein­stak­linga sem höfðu greinst með COVID-19 en þeirra sem ekki höfðu greinst, en aðal­lega fyrstu mán­uð­ina eftir grein­ingu. Hins vegar var algengi sál­rænna ein­kenna mjög breyti­legt út frá þeim fjölda daga sem ein­stak­lingar höfðu verið rúm­fastir vegna COVID-19-veik­ind­anna. Um 22% ein­stak­linga sem greinst höfðu með COVID-19 voru rúm­fastir í viku eða lengur og var algengi ein­kenna kvíða og þung­lyndis meðal þeirra um 50-60% meira en ein­stak­linga sem ekki höfðu greinst með sjúk­dóm­inn. Þetta aukna algengi alvar­legra sál­rænna ein­kenna meðal þessa hóps hélst óbreytt allt að 16 mán­uðum eftir grein­ingu.

„Fyrri rann­sóknir hafa að mestu snúið að sál­rænum ein­kennum ein­stak­linga eftir inn­lögn á spít­ala vegna COVID-19 til skemmri tíma. Þessar nið­ur­stöður benda til þess að alvar­leiki COVID-19 veik­inda sé ákvarð­andi þáttur þegar kemur að sál­rænum ein­kennum, einnig til lengri tíma,“ segir Ingi­björg Magn­ús­dóttir, dokt­or­snemi við Miðstöð í lýð­heilsu­vís­indum og fyrsti höf­undur vís­inda­grein­ar­innar.

Á hinn bóg­inn sýna nið­ur­stöð­urnar að algengi þung­lyndis- og kvíða­ein­kenna hjá þeim höfðu lítil ein­kenni vegna COVID-19 var minna en hjá þeim sem aldrei höfðu greinst. „Það er hugs­an­legt að það verði ákveð­inn léttir meðal ein­kenna­lít­illa ein­stak­linga eftir að sýk­ingin er yfir­staðin að geta horfið aftur til fyrra lífs án þess að hafa áhyggjur af áhrifum á lengri tíma líðan. Þetta birt­ist mögu­lega í minni tíðni sál­rænna ein­kenna meðal þeirra í sam­an­burði við ein­stak­linga sem enn hafa áhyggjur af því að smit­ast og þurfa að tak­marka félags­leg sam­skipti,“ segir Unnur A. Valdi­mars­dóttir, pró­fessor og ábyrgð­ar­höf­undur grein­ar­innar.

Sam­an­tekið benda nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar til þess að almennt séu áhrif COVID-19 á and­lega líðan skamm­vinn en að alvar­leiki COVID-19-veik­inda sé mik­il­vægur for­spár­þáttur um hættu á sál­rænum ein­kennum til lengri tíma. Þá benda þessar nið­ur­stöður til þess að mögu­lega þurfi sér­staka eft­ir­fylgd með ein­kennum þeirra sem veikj­ast illa af COVID-19.

Rann­sóknin er hluti af COVIDMENT-rann­sókn­ar­verk­efn­inu en að því kemur vís­inda­fólk frá Svíþjóð, Danmörku, Noregi, Eist­landi og Skotlandi auk Íslands. Helsta mark­mið rann­sókna­sam­starfs­ins er að auka þekk­ingu á langvar­andi áhrifum COVID-19-heims­far­ald­urs­ins á geð­heilsu almenn­ings og þá sér­stak­lega þeirra sem greinst hafa með sjúk­dóm­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina