Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Guðrún Helgadóttir er látin: „Þú ert okkar Astrid Lind­gren“

Guðrún Helgadóttir er látin: „Þú ert okkar Astrid Lind­gren“
Guðrún Helga­dóttir. Mynd: Forlagið.

Ástsæli rit­höf­und­ur­inn og fyrrum alþing­is­konan Guðrún Helga­dóttir er látin, 86 ára að aldri.

Guðrún Helga­dóttir fædd­ist þann 7. sept­em­ber árið 1935. Allra síð­ustu árin dvaldi hún á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Mörk og lést þar síð­ast­liðna nótt. Hún lætur eftir sig fjögur börn og fjöld­ann allan af barna­börnum og barna­barna­börnum.

Guðrún var einn ást­sæl­asti barna­bóka­höf­undur Íslands­sög­unnar og sat á Alþingi fyrir Alþýðu­banda­lagið frá 1979 til 1995. Hún var for­seti Alþingis frá 1988 til 1991 og þar með fyrst allra kvenna til að gegna því emb­ætti í sam­ein­uðu þingi.

Guðrún skrif­aði fjöld­ann allan af barna- og ung­linga­bókum sem hafa fyrir löngu markað spor sín í þjóð­arsál­inni.

Fyrsta bók hennar var sagan um tví­burana upp­á­tækja­sömu, Jón Odd og Jón Bjarna. Hún sagð­ist alltaf í við­tölum hafa kynnst þeim bræðrum í svefn­her­bergi barn­anna sinna. Úr því varð þrí­leikur. Hún átti eftir að skrifa fleiri vin­sæla þrí­leiki. Dæmi um aðrar mik­ils virtar bækur úr smiðju Guðrúnar er þrí­leik­ur­inn Sitji Guðs englar, þrí­leik­ur­inn Ekkert að þakka!, þrí­leik­ur­inn Öðruvísi dagar og Lítil saga um latan unga. Hún skrif­aði skáld­sög­una Oddaflug og leik­ritin Óvitar, Hjartans mál og Skugga­leikur. Hún skrif­aði einnig mynda­bæk­urnar Ást­ar­saga úr fjöll­unum, Gunn­hildur og Glói og Nú heitir hann bara Pétur.

Árið 1981 var gerð kvik­mynd eftir bókum hennar um Jón Odd og Jón Bjarna, sem náði tals­verðum vin­sældum.

Guðrún Helga­dóttir vann til ótal verð­launa og við­ur­kenn­inga fyrir störf sín, líka utan lands­stein­anna.

Í apríl árið 2020 hlaut Guð­rún heið­urs­verð­laun IBBY á Ís­landi, Sögu­stein­inn, fyrir fram­lag hennar til ís­lenskra barna­bók­mennta. Þar var for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhannes­son, sem af­henti Guð­rúnu verð­launin.

„Þú ert okkar Astrid Lind­gren og Tove Jans­son,“ sagði Guðni í ræðu sinni við til­efnið, þar sem hann þakk­aði Guðrúnu fyrir störf hennar. „Bækurnar þínar eru með boð­skap en líka fullar af lífi og fjöri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina