Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Daníel lá á sjúkrahúsi í 12 vikur með 3. stigs bruna

Daníel lá á sjúkrahúsi í 12 vikur með 3. stigs bruna

Daníel Örn Sig­urðs­son er leigu­bíl­stjóri og spila­töfra­maður. Hann var ungur greindur með ADHD og ein­kennd­ust næstu ár og í raun ára­tugir af stjórn­leysi: Hann var rek­inn úr skóla í 8. bekk, sendur á heim­ili úti á landi fyrir vand­ræða­fólk og hann fór út í neyslu 15 ára og braust inn á neyslu­tíma­bil­inu. Daníel talar líka um slysið þegar hann brennd­ist illa þegar hann féll ofan í hver, veik­indi sem og dauð­ann og sorg­ina en einn hálf­bróðir hans var einnig í neyslu og framdi síðar sjálfs­morð. Þá lést móðir hans í fyrra. Áföllin hafa haft áhrif á and­legu heils­una.

Daníel sagði sögu sína í helg­ar­við­tali Mannlífs.

Árið er 1999 og Daníel er 16 ára. „Þetta var aðeins meira en ung­linga­vinna. Þetta var fyrir vand­ræða­börn og var ég til dæmis að mála grind­verk. Við fórum nokkur sem unnum saman einn dag­inn í ágúst í Reykja­dal þar sem ég sá hver og stopp­aði tvo metra frá honum. Svo sá ég hvernig lapp­irnar á mér byrj­uðu að búa til fót­spor ofan í jörð­ina og áður en ég vissi af var ég kom­inn hálfur ofan í jörð­ina í 200 gráðu heitan leir­hver­inn.

Félagar mínir reyndu að koma mér til hjálpar en það brotn­aði alltaf undan þeim þannig að þeir komust ekki að mér.“ Það tókst þó að lokum að draga Daníel upp úr hvernum og var hann kældur með vatni og síðan þurfti hann að ganga í um kortér að bílnum. Það var stoppað á leið­inni og hand­klæði bleytt.

„Þegar einn úr hópnum ætl­aði að taka hand­klæðið af öðrum fæt­inum á mér þá gat hann það ekki af því að það var svo heitt. Leirinn var ennþá sjóð­andi heitur og fest­ist á fæt­inum eins og olía.“

Daníel lá á sjúkrahúsi í 12 vikur.

3. stigs bruni.

„Lapp­irnar voru svo illa farnar að það þurfti að taka húð af hægra lær­inu til þess að setja á vinstri löpp­ina af því að hún var svo ónýt. Lýta­lækn­ir­inn sett­ist hjá mér einn dag­inn eftir að ég var búinn að vera í ein­angrun; hann var voða­lega líbó gæi. Hann sagði að þetta væri mesta krafta­verk sem hann hefði séð og að allt í lækn­is­fræð­inni segði að það væri ekki hægt að lifa svona af. 35% af lík­ama mínum brennd­ust og 20% af því var 3. stigs bruni.“

Hann talar um bláa dún­úlpu sem hann var í dag­inn sem hann brennd­ist. „Það var um 20 stiga hiti og ekki ský á himni en allir aðrir voru í stutt­erma­bol. Ef ég hefði ekki verið í þess­ari dún­úlpu þá væri ég ekki að tala við þig í dag af því að hún hélt mér á floti.

Mamma fór á mið­ils­fund í nóv­em­ber sama ár. Þá sagði mið­ill­inn „hérna er hrokk­in­hærð kona eða kona með permanent og hún segir að hún sé ánægð með að úlpan hafi komið að góðum notum“. Daníel segir að um sé að ræða látna ömmu sína sem hafði gefið honum úlpuna á sínum tíma. Úlpuna bláu.

það kom bíll á um 110 kíló­metra hraða og ók beint í hlið bíls­ins.

„Það er búið að segja mér margoft að það er ein­hver sem vaki yfir mér vegna þess að þetta er ekki í eina skiptið.

Við mamma áttum alltaf Þor­láks­messu saman. Skötuna. Alltaf skata á Þor­láks­messu. Þetta hefur verið um 1998. Hún var að skutla ein­hverjum heim og ég var bara heima með stjúppabba mínum. Svo þegar hún kom heim ætl­aði hann að skutla mér til afa sem bjó í sama hverfi. Við fórum út og það var kalt en eng­inn snjór þannig séð. Í stað­inn fyrir að taka bíl mömmu, sem var heitur þar sem hún var nýkomin á honum, þá tók hann sinn bíl sem var ískaldur. Það var ekið á bíl­inn á leið­inni en það kom bíll á um 110 kíló­metra hraða og ók beint í hlið bíls­ins.

Ef við hefðum farið á bílnum hennar mömmu þá væri ég ekki að tala við þig í dag af því að í hinum bílnum sem við vorum í voru stál­bitar í hurð­inni þar sem ég var en ekki í bíl mömmu. Allt svona rað­ast þannig að ég slepp alltaf með ólík­indum fyrir slysni.“

Hér er hægt að lesa meira um ótrú­legt lífs­skeið Daníels:

Daníel missti bróður í sjálfs­vígi eftir kalda kveðju: „Drullaðu þér út, hel­vítis aum­ing­inn þinn“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag