Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Daníel missti bróður í sjálfsvígi eftir kalda kveðju: „Drullaðu þér út, helvítis auminginn þinn“

Daníel missti bróður í sjálfsvígi eftir kalda kveðju: „Drullaðu þér út, helvítis auminginn þinn“

Daníel Örn Sig­urðs­son er leigu­bíl­stjóri og spila­töfra­maður. Hann var ungur greindur með ADHD og ein­kennd­ust næstu ár og í raun ára­tugir af stjórn­leysi: Hann var rek­inn úr skóla í 8. bekk, sendur á heim­ili úti á landi fyrir vand­ræða­fólk og hann fór út í neyslu 15 ára og braust inn á neyslu­tíma­bil­inu. Daníel talar líka um slysið þegar hann brennd­ist illa þegar hann féll ofan í hver, veik­indi sem og dauð­ann og sorg­ina en einn hálf­bróðir hans var einnig í neyslu og framdi síðar sjálfs­morð. Þá lést móðir hans í fyrra. Áföllin hafa haft áhrif á and­legu heils­una.

„Ég á mjög skraut­lega sögu,“ segir Daníel Örn Sig­urðs­son leigu­bíl­stjóri sem margir þekkja sem töfra­m­ann. Spila­töfra­m­ann. „Ég var svo mikið vand­ræða­barn. Ég var í sveit og ég bjó mikið hjá afa mínum og ömmu á tíma­bili.“

Hér á eftir fer saga Daníels sem hann segir að sé svo skraut­leg. Best að hafa þetta í réttri tíma­röð. Þetta er kannski eins og nóv­ella. Lítil nóv­ella.

„Ég datt út um glugga þegar ég var tveggja ára; ég var að ná í flugur og lenti á eina gras­blett­inum á svæð­inu þar sem var ann­ars stétt. Annars hefði ég dáið. Svo kveikti ég í bíl þegar ég var þriggja ára; stjúppabbi minn kom heim í hádeg­inu í vinnu­bíl og ég fór inn í bíl­inn. Ég var eld­spýtna­óður, kveikti á einni eld­spýtu og missti hana. Ég sá síðar myndir af bílnum sem var kola­moli en ég komst með ein­hverjum ólík­indum út úr bílnum.

Það magn­að­asta var að ég var einu sinni að hjóla í fjör­unni með vini mínum þegar ég var sex ára og það var útsog. Svo kom alda og tók mig. Það voru tvær konur að skokka á stíg fyrir ofan fjör­una og heyrðu óp, sáu eina hönd og náðu að draga mig upp úr.

Mín saga upp frá þessu er rosa­lega skraut­leg. Ég er með svo enda­laust ADHD að þú trúir því ekki. Ég er rosa­lega orku­mik­ill og fór mikið út fyrir kass­ann.“

Daníel ólst upp með móður sinni, stjúp­feðrum og hálf­bræðrum á nokkrum stöðum. ADHD hefur haft áhrif á hann alla tíð og fékk hann grein­ingu þegar hann var sex ára en hann seg­ist ekki hafa farið á almenni­leg lyf fyrr en hann var 13 ára.

Ég var bara ger­sam­lega stjórn­laus.

„Ég var út um allt. Ef ég fór út að leika mér að morgni til, þá var happ og glapp hvort ég myndi koma heim í kvöld­mat eða ekki. Ég kom kannski heim klukkan 10 eða 11 um kvöldið. Mamma hafði enga stjórn á mér. Ég var bara ger­sam­lega stjórn­laus. Ég var svo ofvirkur. Ég var svo mikið vand­ræða­barn. Þetta er rosa­lega skrýtin saga.“

Þegar hann var átta ára, en fjöl­skyldan bjó þá á Meist­ara­völlum, ætl­aði hann einn dag­inn að heim­sækja ömmu sína sem bjó í Breið­holti. „Ég er svo sér­stakur. Ég ætl­aði að fara í strætó til ömmu og ætl­aði að taka þrist­inn. Vagninn fór fyrst niður á Lækj­ar­torg og þá varð ég smeykur þannig að ég fór þar út, labb­aði niður að Grund og gekk síðan til baka eftir Hring­braut og síðan Miklu­braut og alveg upp í Breið­holt. Ég var algjör­lega svo ógeðs­lega út á skjön og ég var svo upp­á­tækja­samur þegar ég var yngri að það var ekki eðli­legt. Ég var svo hand­óður að ef ég fór ein­hvers staðar í heim­sókn þá var ég rót­andi í öllum skúffum.

Mamma vann um tíma á Grund og einu sinni á afmæl­is­dag­inn minn var ég þar og sagði gam­alli konu að ég ætti afmæli. Og hún gaf mér mola. Eftir það átti ég oft rosa­lega oft afmæli.“ Hann hlær. Og hann fékk þá mola. „Maður var fljótur að finna „loopholes“ hér og þar.“

Það á eftir að moka flórinn

Jú, Daníel bjó á nokkrum stöðum og gekk í nokkra skóla svo sem Laug­ar­nes­skóla, Öldusels­skóla, Mela­skóla, Fella­skóla, Grunn­skóla Borg­ar­ness og Steins­staða­skóla. Það var oft flutt. „Já, ég var bara flakk­andi út um allt alls staðar.“ Fjöl­skyldan bjó stundum í félags­legum íbúðum. „Mamma var aldrei efnuð. Hún vann baki brotnu alla sína ævi. Ég á enga silf­ur­skeið neins staðar. Það hefur eng­inn gefið mér bíl.“

Svo fór hann í Fella­skóla og seg­ist hann hafa verið rek­inn úr skól­anum þegar hann var í 8. bekk. „Það tók Barna­vernd­ar­nefnd tvo mán­uði að finna við­eig­andi heim­ili; við­eig­andi sveita­heim­ili fyrir mig. Mamma gafst upp. Ég var alveg stjórn­laus. Það fannst heim­ili rétt hjá Borg­ar­nesi þar sem meðal ann­ars fyrr­ver­andi fangar höfðu dvalið og mað­ur­inn þar keyrði mig heim eftir mánuð. Þá var hann búinn að fá nóg. Það voru bara engin úrræði.

Ég sagð­ist ekki ætla að moka skít­inn.

Ég fór svo norður í sveit þegar ég var 15 ára og þar var ég gerður að manni. Þar breytt­ist ég. Þá var mér kennt að éta og vinna. Ég ætla ekki að segja að þetta sé við­ur­kennd aðferð, alls ekki, en þetta virk­aði á mig. Þegar ég kom þá útskýrði bónd­inn fyrir mér hvernig þetta virk­aði; hann sagði að við myndum vinna saman – gæfum skepn­unum og mok­uðum skít­inn. Ég sagð­ist ekki ætla að moka skít­inn. Hann sagði „allt í góðu, við sjáum til með það“. Svo kom kvöld og ég spurði hvað væri í mat­inn. Þá leit bónd­inn á mig og sagði: „Ég veit það ekki, það á eftir að moka flór­inn.“ Það liðu fjórir dagar. Þá mok­aði ég flór­inn. Þá gafst ég upp.“ Daníel hlær. „Ég fékk ekk­ert að éta fyrr en ég mok­aði flór­inn. Hann var bara harður; það rann ekki í honum blóðið. Hann var sultu­slakur. En þetta þurfti ég. Ég þurfti svona „fuck you“. Bara svona „haltu kjafti, drengur og farðu að læra“. Þetta breytti mér svo­lítið.“

Hverinn

Daníel fór eftir dvöl­ina í sveit­inni að vinna hjá Hinu hús­inu. Árið er 1999 og Daníel er 16 ára. „Þetta var aðeins meira en ung­linga­vinna. Þetta var fyrir vand­ræða­börn og var ég til dæmis að mála grind­verk. Við fórum nokkur sem unnum saman einn dag­inn í ágúst í Reykja­dal þar sem ég sá hver og stopp­aði tvo metra frá honum. Svo sá ég hvernig lapp­irnar á mér byrj­uðu að búa til fót­spor ofan í jörð­ina og áður en ég vissi af var ég kom­inn hálfur ofan í jörð­ina í 200 gráðu heitan leir­hver­inn. Félagar mínir reyndu að koma mér til hjálpar en það brotn­aði alltaf undan þeim þannig að þeir komust ekki að mér.“ Það tókst þó að lokum að draga Daníel upp úr hvernum og var hann kældur með vatni og síðan þurfti hann að ganga í um kortér að bílnum. Það var stoppað á leið­inni og hand­klæði bleytt. „Þegar einn úr hópnum ætl­aði að taka hand­klæðið af öðrum fæt­inum á mér þá gat hann það ekki af því að það var svo heitt. Leirinn var ennþá sjóð­andi heitur og fest­ist á fæt­inum eins og olía.“

Þögn.

Daníel lá á sjúkra­húsi í 12 vikur.

3. stigs bruni.

„Lapp­irnar voru svo illa farnar að það þurfti að taka húð af hægra lær­inu til þess að setja á vinstri löpp­ina af því að hún var svo ónýt. Lýta­lækn­ir­inn sett­ist hjá mér einn dag­inn eftir að ég var búinn að vera í ein­angrun; hann var voða­lega líbó gæi. Hann sagði að þetta væri mesta krafta­verk sem hann hefði séð og að allt í lækn­is­fræð­inni segði að það væri ekki hægt að lifa svona af. 35% af lík­ama mínum brennd­ust og 20% af því var 3. stigs bruni.“

Hann talar um bláa dún­úlpu sem hann var í dag­inn sem hann brennd­ist. „Það var um 20 stiga hiti og ekki ský á himni en allir aðrir voru í stutt­erma­bol. Ef ég hefði ekki verið í þess­ari dún­úlpu þá væri ég ekki að tala við þig í dag af því að hún hélt mér á floti.

Mamma fór á mið­ils­fund í nóv­em­ber sama ár. Þá sagði mið­ill­inn „hérna er hrokk­in­hærð kona eða kona með permanent og hún segir að hún sé ánægð með að úlpan hafi komið að góðum notum“. Daníel segir að um sé að ræða látna ömmu sína sem hafði gefið honum úlpuna á sínum tíma. Úlpuna bláu.

það kom bíll á um 110 kíló­metra hraða og ók beint í hlið bíls­ins.

„Það er búið að segja mér margoft að það er ein­hver sem vaki yfir mér vegna þess að þetta er ekki í eina skiptið. Við mamma áttum alltaf Þor­láks­messu saman. Skötuna. Alltaf skata á Þor­láks­messu. Þetta hefur verið um 1998. Hún var að skutla ein­hverjum heim og ég var bara heima með stjúppabba mínum. Svo þegar hún kom heim ætl­aði hann að skutla mér til afa sem bjó í sama hverfi. Við fórum út og það var kalt en eng­inn snjór þannig séð. Í stað­inn fyrir að taka bíl mömmu, sem var heitur þar sem hún var nýkomin á honum, þá tók hann sinn bíl sem var ískaldur. Það var ekið á bíl­inn á leið­inni en það kom bíll á um 110 kíló­metra hraða og ók beint í hlið bíls­ins. Ef við hefðum farið á bílnum hennar mömmu þá væri ég ekki að tala við þig í dag af því að í hinum bílnum sem við vorum í voru stál­bitar í hurð­inni þar sem ég var en ekki í bíl mömmu. Allt svona rað­ast þannig að ég slepp alltaf með ólík­indum fyrir slysni.“

Neyslan

Daníel byrj­aði í neyslu 15 ára gam­all. Hann hitti mann sem spurði hvort hann vildi prófa hass. Daníel spurði hvers vegna hann ætti að gera það. „Þér líður svo ógeðs­lega vel af þessu,“ segir hann að mað­ur­inn hafi svarað.

„Ég fór þess vegna niður í kjall­ara og próf­aði hass og ég varð rosa­lega skakkur.“ Hann var kom­inn á bragðið. Í partíi eitt kvöldið kynnt­ist hann amfetamíni og seg­ist hafa bund­ist ást­fóstri við það. „Það var alger­lega mitt efni. Ég var í dag­neyslu á amfetamíni í tvö til þrjú ár og missti um 45 kíló. Ég var orð­inn 57 kíló í árs­lok 2005 en ég var í rosa­lega harðri neyslu alveg frá 2002-2005.“

Þögn.

Hvað var það versta sem Daníel upp­lifði á þessum tíma? Hvernig heimur er þetta?

Það eru dæmi um að menn hafi látið hengja sig „basically“.

„Þetta er heimur sem eng­inn vill vera í vegna þess að það er engin mis­kunn þarna. Það er mikið af inn­brotum til að verða sér út um efni og ég var orð­inn það sið­blindur að ég var far­inn að brjót­ast inn hjá fólki sem ég vissi hvar það geymdi hitt og þetta. Ég þekkti fólkið. Maður varð strax svo sið­blindur að það er ekki hægt að lýsa því. Manni fannst allt í lagi að gera allan and­skot­ann. Það var ekk­ert heil­agt. Þetta er rosa­lega brút­alt og rosa­lega vondur heimur. Ég veit til dæmis um mann sem hengdi sig en ég vissi að það var ekk­ert annað en hand­rukkun. Það eru dæmi um að menn hafi látið hengja sig „basically“. Það er ekki hægt að lýsa þessum heimi. Þetta er svo óhugn­an­legt. Þessir fíklar eru samt bara Jói frændi eða Maggi bróðir sem var mann­eskja. Mann­eskja sem fædd­ist með mark­mið og drauma og sem vill örugg­lega gera flesta hluti eins og allir vilja gera.“

Daníel kynnt­ist svo ást­inni; eign­að­ist nýja kær­ustu. Það var árið 2005. Og hann 22 ára.

síð­hvörf eru það þegar maður setur mjólk­ina inn í ofn­inn í stað­inn fyrir ísskáp.

„Þá bara hætti ég. Hún setti mér stól­inn fyrir dyrnar og sagði að ef við ætl­uðum að vera saman þá ann­að­hvort hætti ég í neyslu eða að ég gæti farið. Og ég ákvað að hætta. Það tók mig alveg þrjá til fjóra mán­uði. Ég fékk largactil og phenergan til að trappa mig niður og til að jafn­væg­is­stilla mig. Ég var í frá­hvörfum í fjóra til fimm sól­ar­hringa og hún skipti á rúm­inu tvisvar til þrisvar í viku af því að ég svitn­aði svo mikið. Ég var svo í síð­hvörfum í tvo mán­uði eftir það; síð­hvörf eru það þegar maður setur mjólk­ina inn í ofn­inn í stað­inn fyrir ísskáp og ætlar að fara að grilla sér sam­loku og setur hana kannski á milli tveggja bóka í stað­inn fyrir að setja hana í sam­loku­grill. Maður sónar út. Maður gerir allt annað en maður ætl­aði að gera. Maður ætlar kannski að fara að horfa á sjón­varpið en er svo allt í einu sestur á kló­settið.“

Daníel fór sem sé ekki í með­ferð per se.

„Nei, ég hætti af því að ég var líka kom­inn með nóg. Ég nennti þessu ekki lengur. Þetta var orðið ágætt. Þetta leiddi ekki neitt. Ég átti aldrei pen­ing. Þetta var alltaf eymd. Ég var alltaf inn og út hjá lögg­unni og alltaf í yfir­heyrslum hér og þar.“

Alltaf inn og út hjá lögg­unni og í yfir­heyrslum; fékk hann aldrei dóm? „Ég fékk einu sinni dóm fyrir fíkni­efna­laga­brot; hann var skil­orðs­bund­inn til sex mán­aða. Svo braut ég það skil­orð en ég var byrj­aður að vinna hjá borg­inni og ég var orð­inn svo klár að ég kom bara í vinnugall­anum og skítugur í framan í rétt­ar­sal­inn og sagði dóm­ar­inn að fyrst ég væri búinn að snúa svona við blað­inu þá ætl­aði hann að lengja skil­orðið aðeins. Þannig að þetta var fram­lengt um níu mán­uði. Þannig að ég fór ekki inn.“

Hvað lærði Daníel af þessum neyslu­árum?

„Ég lærði hvað mig lang­aði ógeðs­lega mikið ekki í þennan lífs­stíl. Þetta er lífs­stíll sem leiðir fólk ekki neitt. Þetta leiðir ekk­ert. Vegna þess að ef fólk er með ein­hvern vott af metn­aði þá er hann horf­inn um leið. Allt tíma­skyn hverfur algjör­lega og raun­veru­leika­tengsl við allt. Þetta er svo óheill­andi.“

Hann reykir rafrettu. Hefur hann ekk­ert verið í neyslu eftir þetta?

„Nei.“

Spilagaldramaður

Og svo hélt lífið áfram og áfram virt­ist vera vakað yfir Daníel sem seg­ist eiga svo skraut­lega sögu.

Hann átti einu sinni aðra kær­ustu. „Hún á frænda sem hún bauð í partí og hann sagð­ist kunna spilagaldra. Ég bað hann um að kenna mér einn galdur og hann sýndi mér hann þrisvar sinnum í röð og ég bara fékk veiruna; hann benti mér á síðu sem heitir ellusion­ist.com og þar kynnt­ist ég manni sem heitir Brad Christian sem varð minn mentor. Ég byrj­aði að æfa mig og svona þró­aði ég mig áfram og í dag er ég einn fær­asti spila­töfra­maður á Íslandi. Ég er stundum með svo mikla þrá­hyggju að ef ég geri eitt­hvað þá ætla ég að verða bestur í því. Ég var kom­inn með blöðrur á putt­ana af því að ég var að æfa mig alla daga. Ég fór á fullt og er búinn að vera að skemmta í 13 ár.

lungna­bjúg, lungna­bólgu, sýk­ingu í blóði og hjarta­bilun.

Árið 2015 var ég búinn að skemmta ógeðs­lega mikið og vinna ógeðs­lega mikið og ég reykti eins og strompur og drakk. Borðaði eitt­hvað og svaf eitt­hvað í marga mán­uði og var orð­inn ofboðs­lega veikur af flensu. Svo eitt apr­íl­kvöld hóstaði ég svo mikið að ég gat ekki sofið. Ég fór upp á bráða­mót­töku og var sendur beint inn. Ég var með 70 í súr­efn­is­mettun en ef maður er neðar en það er maður dáinn. Það kom í ljós að ég var með svo mik­inn lungna­bjúg, lungna­bólgu, sýk­ingu í blóði og hjarta­bilun. Lækn­ir­inn sagði að ég hefði verið að drukkna; lungun voru að fyll­ast af vatni.“

Rúmri viku síðar hengdi hann sig

Nei, lífið hefur ekki alltaf verið dans á rósum hjá Daníel enda rósir almennt með þyrna. Það sama má segja um einn bróður hans, Steindór, sem var þremur árum yngri. Daníel er elstur bræðr­anna. Þeir voru fjórir í allt. Nú eru þeir þrír á lífi. Þeir Steindór voru hálf­bræður. Sammæðra. Allir eru hálf­bræður Daníels en þeir tveir yngstu eru þó albræður.

„Steindór dó 13. júní árið 2018. Hann var búinn að vera í gríð­ar­lega mik­illi fíkni­efna­neyslu alveg frá því hann var 13 ára. Hann fór sínar eigin leiðir. Hann var rosa­lega ævin­týra­gjarn en hann var á sama tíma ofsa­lega hlé­drægur. Rosalega skrýt­inn per­sónu­leiki. En hann var flug­gáf­aður. Rosalega gáf­aður strákur. Þetta var svo dýrt dauðs­fall af því að hann var svo gáf­aður. Og hann var svo klár. Hann var svo áhrifa­gjarn. Rosalega áhrifa­gjarn. Alveg svaka­lega. Og átti mjög auð­velt með að verða bara undir áhrifum. Hann leidd­ist fljótt út í við­ur­kenn­ingu ein­hvers staðar ann­ars staðar.“

Steindór Smári

13 ára í neyslu.

„Þá var hann byrj­aður að reykja hass en hann byrj­aði að neyta kóka­íns þegar hann var 16 ára og hann var byrj­aður að sprauta sig 19 ára svo sem með lækna­dópi, kókaín og amfetamíni. Hann var orð­inn svo sár­þjáður sprautu­fík­ill að það var orðið erfitt fyrir hann að finna æð. Hann spraut­aði sig þangað til hann lést 32 ára.

Ég fékk að vita rosa­lega mikið eftir dauðs­fall hans sem var ofboðs­lega sárt af því að hann sagði öðrum að hann lang­aði til að verða eins og stóri bróðir sinn. Eins og ég. Þetta vissi ég ekki vegna þess að hann gaf mér ekki tæki­færi á því að umgang­ast sig vegna þess að hann var ekki í sama heimi og ég. Hann gaf okkur ekki tæki­færi á að kynn­ast almenni­lega til þess að geta sagt að hann þyrfti hjálp. Hann lok­aði sig af af því að hann var svo greindur. Hann vissi að það var ekki hægt að vera innan um okkur þegar hann var í neyslu þannig að hann lok­aði okkur af.“

Daníel talar um nýárs­dag árið 2018. „Hann kom til mín grát­andi og skít­hræddur með sitt eigið líf af því að vinir hans voru að hríð­falla. Detta niður dauðir. Hann sagði að hann væri vanur að sprauta sig með því sama og þeir og vissi hvað hann þyldi en að þeir væru að deyja og það væri ein­hver að útrýma þeim. Hann laug aldrei að mér. Hann hélt að ein­hver væri að útrýma þeim af því að þeir vissu eitt­hvað sem þeir máttu ekki vita. Það var hans kenn­ing.“

Hann var í raun­inni að segja mér að þetta væri búið.

Daníel segir að þeir Steindór hafi talað saman einni og hálfri viku áður en Steindór dó. „Ég var að skutla honum til mömmu viku áður en hann dó og þá sagði hann mér hvað hann væri kom­inn í mikið þrot. Hann sagð­ist ekki hafa meiri orku í þetta. Hann var í raun­inni að segja mér að þetta væri búið. Ég fatt­aði ekki fyrr en eftir á að hann var að kalla á hjálp. Hann var að segja mér að hann væri að fara að hengja sig. Svo gerði hann það einni og hálfri viku síðar.“

„Drullaðu þér út, hel­vítis aum­ing­inn þinn,“ sagði ég.

Daníel segir að Steindór hafi beðið móður þeirra um að fá að vera hjá henni um helg­ina þar sem hann væri að bíða eftir félags­legri íbúð og fékk hann leyfi svo lengi sem hann væri edrú. Daníel bað móður þeirra um að passa dóttur sína á laug­ar­deg­inum. „Svo þegar ég kom að sækja hana á sunnu­deg­inum þá sagði mamma að Steindór hefði farið út og komið aftur aðfara­nótt sunnu­dags­ins dóp­aður. Ég var svo reiður þar sem stelpan mín var þarna að ég kall­aði hann „hel­vítis drullu­sokk“ og gjör­sam­lega spark­aði honum út og henti í hann 2000 kalli til að kom­ast með rútu í bæinn. „Drullaðu þér út, hel­vítis aum­ing­inn þinn,“ sagði ég og skellti hurð­inni. Ég sá hann ekki eftir þetta. Viku seinna hengdi hann sig.“

Þögn.

Daníel segir að Steindór hafi verið lif­andi þegar hann fannst. „Það var hnoðað í tæpa tvo tíma. Það bar árangur en hann fékk púls en eftir fjóra daga í önd­un­ar­vél var ljóst hver nið­ur­staðan yrði svo hann var settur í líkn­andi með­ferð og lést degi síðar.“

Daníel á erfitt með að halda tár­unum í skefjum þegar hann talar um þetta. Þessi síð­ustu orð sem hann sagði við bróður sinn áður en hann lést valda honum mik­illi van­líðan.

Þetta er svo mikil van­líðan að það er ógeðs­legt.

„Þetta er hræði­legt. Það er hrika­legt að hafa skilið svona. Þetta er alveg skelfi­legt. Þetta er svo skelfi­legt,“ segir hann með áherslu, „að þurfa að lifa með þetta. Þetta er svo mikil van­líðan að það er ógeðs­legt.“

Þögn.

Dauða­þögn.

Þetta nær engri átt

„Það er kannski líka rétt að nefna það að ástæðan fyrir því að Steindór lést var ekki af því að honum leið illa og líf hans var ömur­legt og allt það; hann var svo ósáttur við það hver hann var. Hann vildi ekki vera þessi maður sem var í fíkni­efnum. Ég fékk að vita það eftir á hjá fólki sem var með honum á geð­deild að hann þráði ekk­ert heitar en að vera eins og bróðir sinn eins og ég hef sagt. Eins og ég. Eiga fjöl­skyldu og hús. Hann þráði bara eðli­legt líf. Hann vildi ekk­ert húllumæ. Hann vildi ekki þessa þrá­hyggju. Hann gat fengið hjálp við fíkn og hjálp við geð­veik­inni en ekki á sama tíma. Því miður.“

Var Steindór greindur með geð­sjúk­dóm?

„Nei. En þetta var orðin hálf­gerð geð­veiki þegar hann var búinn að búa á göt­unni frá því hann var krakki. Hann var kom­inn á göt­una 21 árs og þá voru bara þrjú ár síðan hann varð lög­ráða. Þetta er byrði, sér­stak­lega fyrir svona óþroskaða ein­stak­linga.

Það þarf að stofna ein­hvers konar sam­tök.

Daníel segir að Steindór hafi stundum farið inn á geð­deild en að honum hafi verið hent út af því að hann var ekki í sjálf­skaða­hættu í augna­blik­inu, af því að hann var ekki að fara að drepa sig, af því að hann var ekki í maníu eða af því að hann var ekki öskr­andi eða geð­veikur. „Hann fékk ekki þá hjálp sem hann var að biðja um. Hann fór sjálf­vilj­ugur inn á geð­deild til þess að fá hjálp en af því að hann var ekki í „critical“ ástandi þá; „sorrí, út með þig, komdu þegar ástandið verður „critical“.“ En ef það var orðið of seint? Hvers lags… Hvers eigum við aðstand­endur að gjalda þegar við getum ekki treyst á okkar eigin kerfi? Hvað eigum við þá að gera? Við verðum að geta treyst á okkar kerfi. Það er svo mikið í húfi. Á bak við hvern fíkil er fjöl­skylda sem situr eftir með alla sorg­ina. Þetta er bara galið og nær engri átt. Þetta getur ekki verið svona. Þetta verður að breyt­ast. Þetta er ekki hægt. Það þarf að stofna ein­hvers konar sam­tök; það þarf að búa til ein­hvers konar konsept þannig að það sé hlustað. Það þarf eitt­hvað að ger­ast þangað til að þeir sem sjá um pen­inga­völdin verða komnir upp að vegg og dæla pen­ing í þetta. Við verðum að fara að skilja hvað þetta er mik­il­vægt. Þegar ein­stak­lingur fer þá eru margir skildir eftir í sárum. Margir fjöl­skyldu­með­limir þurfa kannski að taka sér frí í eina til tvær vikur og þurfa áfalla­hjálp eða á sál­fræð­ingi að halda. Þetta er svo mik­ill kostn­aður fyrir svo ofboðs­lega marga bara af því að heil­brigð­is­kerfið okkar er bara á rass­gat­inu. Þetta er stropað. Þetta nær engri átt. Sorrí. Ég er bara svo reiður.“

Kross í bandi hangir á vegg á heim­ili Daníels. Steindór átti þennan kross og hafði hann oft um háls­inn.

Jú, það er þessi sorg.

Hann var bara einn.

„Þetta var gríð­ar­lega erfitt. Ég missti helm­ing­inn af sjálfum mér þegar Steindór dó. Ég á tvo aðra hálf­bræður sem eiga aðra feður en ég hef ekki náð að tengj­ast þeim nógu vel af því að ég var svo lítið heima; þeir fædd­ust 1995 og 1997 og á þeim tíma var ég á svo miklu flakki út í sveit og hingað og þangað og bjó hjá ömmu og svona. Þannig að ég kynnt­ist þeim lítið en ég ólst svo­lítið upp með Stein­dóri. Hann var svo­lítið hluti af mér. Að missa Steindór er það erf­ið­asta sem ég hef upp­lifað og gengið í gegnum vegna þess í fyrsta lagi hvernig við skildum. Og að vita það eftir á hversu mikið hann stóð einn í þessu. Ég vissi það ekki en ég hélt hann væri með ein­hverja vini þarna úti og væri með þeim að gera eitt­hvað. Hann var bara einn. Stóð bara einn. Og á jólum og á afmæli sínu.“

Þögn.

„Hann var ein­hvern veg­inn einn. Mamma varð aldrei söm eftir að hann dó. Hún lam­að­ist af gráti. Hún grét svo sárt þegar hann dó. Ég tók þetta svo­lítið út á vinn­unni; ég fór að vinna mikið eftir þetta sem kom í bakið á mér en tveimur til þremur mán­uðum síðar grét ég í mánuð. Ég grét haf­sjó. Ég var eins og pínu­lítið barn. Ég syrgði hann svo svaka­lega. Ég samdi ljóð til hans. Ég vakn­aði klukkan sjö um morg­un­inn dag­inn sem jarð­ar­förin var með þetta í hausnum og skrif­aði niður. Ég lagð­ist síðan niður og sofn­aði aftur. Síðustu orðin hafa svo­lítið gildi vegna þess að ég enda ljóðið á „mér var aldrei sama“. Ég man ekki einu sinni eftir því þegar ég las ljóðið upp í jarð­ar­för­inni. Fólk sagði að það hefði reglu­lega lekið tár eins og í takti. Ég man ekki eftir því. Það skilur eng­inn hvernig ég gat staðið í pont­unni en það var ein­hver styrkur í mér.“

Ljóðið heitir „Bróð­ur­ást“.

Hér kveð ég mann sem var drengur góður

indæl og ljúf sál hann bróðir minn

klár og lífs­reyndur þrátt fyrir ungan aldur

nú tala ég til hans í hinsta sinn.

Elsku bróðir minn nú ertu far­inn mér frá

og hefur fært þig um sess

elsku drengur þú ert ekki lengur mér hjá

og ég fékk ekki einu sinni að segja bless.

Já elsku Steindór nú ertu meðal feðra þinna

minn­ing þín björt og fal­leg hjá okkur ávallt skín

þó ég viti að þú ert þar sem frið­inn er að finna

græt ég fjar­veru þína og mun alltaf sakna þín.

Nú hefur þú loks öðl­ast frið

en þrátt fyrir allt sem hefur á dunið

og sjúk­dómur þinn verið oft til ama

þá vil ég að þú vitir að mér var ekki sama.

Hvíl í friði elsku bróðir minn

lítil sam­vera í seinni tíð þykir mér miður

þótt þínu jarð­neska lífi sé lokið um sinn

munum við hitt­ast og faðm­ast þegar minn tími kemur.

Bróð­ur­hjartað er mjög veikt núna

og af öllu vildi ég þið faðma núna

og þó svo stundum hafi vantað upp á trúna

vil ég að þú vitir að mér var ekki sama

mér var aldrei sama.

Áföllin urðu fleiri. Sorgin knúði aftur dyra. „Konan skildi við mig 2019 eftir 14 ára sam­band, 2020 kom Covid og ég missti vinn­una í heilt ár og svo dó mamma 2021.“

Þögn.

„Þetta eru fjögur ár áfall eftir áfall. Má ég bara fá eitt fríár? Þannig að ég fór til sál­fræð­ings til að athuga og hún setti mig í eitt­hvað próf og ég er víst á ein­hverjum skala varð­andi áfallastreituröskun þannig að ég ætla að halda áfram að vera hjá sál­fræð­ingnum. Ég er víst með áfallastreituröskun, kvíða og snert af þung­lyndi eftir þessi áföll.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina