Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Arnór: „Þar upphófst undarleg atburðarás þar sem örlögin og gæfan leiddu mig áfram“

Arnór: „Þar upphófst undarleg atburðarás þar sem örlögin og gæfan leiddu mig áfram“
Arnór Sveins­son. Ljós­mynd­ari: Jón Ágúst Guð­jón­son. Lónið framan við Skafta­fells­jökul Mynd: Jon Agust Gudjonsson

Arnór býr í nota­legu húsi við Hafra­vatn ásamt Ingeborg, konu sinni. Hann tekur á móti blaða­manni við afleggjar­ann að hús­inu og við skutl­umst yfir snjó­breið­urnar, fyrst á jeppa og svo á snjó­sleða síð­asta spöl­inn. Hann býr í ekki nema 20 mín­útna akst­urs­fjar­lægð frá Reykja­vík, en upp­lifunin er eins og vera komin langt út á land.

Þegar inn er komið tekur á móti okkur hund­ur­inn hans, glaður að fá fólk í heim­sókn. Rýmið ilmar af ilm­kjarna­olíu og við setj­umst niður með heitan kakó­bolla sem er útbú­inn eftir kúnst­ar­innar reglum af Arnóri. Kakóið er ekk­ert venju­legt kakó, heldur svo­kallað „ceremonial grade cacao“ criollo-kakó, líf­rænt, óerfða­breytt og sann­kölluð ofur­fæða. Hreint kakó inni­heldur eitt mesta magn magnesíum og andox­un­ar­efna nokk­urrar plöntu og er mjög góður nátt­úru­legur orku­gjafi og ást­ar­drykkur.

kakó­plantan gegnt veiga­miklu hlut­verki í árþús­und og hlotið nafn­bót­ina fæða guð­anna

Arnór Sveins­son. Ljós­mynd­ari: Jón Ágúst Guð­jóns­son. Lónið framan við Skafta­fells­jökul

Blaða­maður kynnti sér þetta magn­aða kakó og komst að því að það er blóð­flæð­is­auk­andi, hefur jákvæð áhrif á úthald og orku, minnkar bólgur, ýtir undir fram­leiðslu á gleði­boð­efn­inu serótónín, lækkar streitu­horm­ónið kortisól og örvar vellíð­un­ar­stöðvar í heil­anum og fram­leiðslu á end­or­fíni. Að auki inni­heldur það króm, theobromine, manga­nese, sink, kopar, járn, C-vítamín, omega 6-fitu­sýrur og tryptophan svo eitt­hvað sé nefnt af þeim góðu efnum sem kakóið inni­heldur.

Fjöl­margar rann­sóknir sem gerðar hafa verið, meðal ann­ars við Yale og Oxford, stað­festa virkni kakó­baun­ar­innar og stöðu hennar sem heilsu­sam­leg og heilsu­efl­andi fæða.

Í menn­ingu Maya-fólks­ins í Mið-Ameríku hefur kakó og kakó­plantan gegnt veiga­miklu hlut­verki í árþús­und og hlotið nafn­bót­ina fæða guð­anna. Þá má rekja kakó­drykkju 4.200 ár aftur í tím­ann og því tími til kom­inn að þessi dásemd­ar­drykkur rati til Íslands.

Djúp innri vinna

Arnór er 37 ára og upp­al­inn á Álfta­nesi. Hann hefur kennt jóga og haldið vit­und­ar­tengd nám­skeið frá sept­em­ber 2013, árið sem hann lauk jóga­kenn­ara­námi. Nú kennir hann flestalla tíma í Primal Iceland. Þau nám­skeið sam­an­standa af jóga, öndun, hug­leiðslu, Wim Hof, slökun, tón­heilun og kakó-athöfnum.

Árið 2013 lauk hann jóga­kenn­ara­námi í Jóga­skóla Krist­bjargar Krist­mund­ar­dóttur og hefur frá þeim tíma ferð­ast víðs vegar um heim­inn og sótt fjöld­ann allan af nám­skeiðum sem tengj­ast jóga, hug­leiðslu og and­legri vinnu. „Ég varði dýr­mætum tíma með munki í fjöllum norður Taílands þar sem ég fór í djúpa innri vinnu og lærði hug­leiðslu sem er und­ir­staðan í nálgun minni og leið­bein­ingum í dag. Þessi munkur var í raun minn fyrsti kenn­ari. Á þessum tíma lærði ég að um leið og maður fer að stunda hug­leiðslu í gegnum jóga þá hverfur smám saman það sem maður þarf ekki í líf­inu,“ segir Arnór en hann leggur mikla áherslu á öndun í allri sinni nálgun.

Arnór með munki í Taílandi

Fráfall nákomins ættingja ýtti honum á andlegu brautina

Þegar skóla­göngu hans lauk eftir 10. bekk var hann fljót­lega kom­inn á sjó­inn og far­inn að vinna fyrir sér. Hann hafði alltaf haft áhuga á jóga og and­legum mál­efnum en frá­fall nákom­ins ætt­ingja var það sem að lokum ýtti honum af stað á and­legu braut­ina.

ÞAR UPPHÓFST UNDARLEG ATBURÐARÁS ÞAR SEM ÖRLÖGIN OG GÆFAN LEIDDU MIG ÁFRAM

„Án þess að vita fyrir víst hvað væri í vændum þá fór svo á end­anum að ég pakk­aði föggum mínum og flaug austur til Taílands. Þar upp­hófst und­ar­leg atburða­rás þar sem örlögin og gæfan leiddu mig áfram. Ég end­aði í smá­bænum Pai í norð­ur­hluta lands­ins þar sem ég komst í kynni við munk og varði dýr­mætum tíma með honum í fjöllum Norður-Taílands. Þar fór ég í djúpa innri vinnu og lærði hug­leiðslu sem er und­ir­staðan í minni nálgun og leið­bein­ingum. Ég fylgdi munk­inum víða um landið og dvald­ist meðal ann­ars við hug­leið­ingar í helli. Síðan þá hef ég ferð­ast víðs vegar um heim­inn og sótt fjöld­ann allan af nám­skeiðum sem tengj­ast jóga, hug­leiðslu og and­legri vinnu,“ segir hann í sam­tali við Mannlíf.

Wim Hof og Arnór, en Wim Hof-aðferðin er einmitt skírð í höf­uðið á honum.

Sælureitur við Hafravatn

Eins og fyrr segir býr Arnór á fal­legu landi við Hafra­vatn ásamt Ingeborg, konu sinni. Landið er algjör para­dís, stein­snar frá borg­inni. Markmið þeirra er að byggja upp sælu­reit fyrir sig og aðra til að njóta og er planið jafn­vel að hafa festi­val á land­inu, þegar að því kemur.

„Það sem við viljum gera á sælu­reitnum er að hafa nám­skeið yfir helgar og fá fólk hingað í nátt­úr­una til þess að læra að beita lík­ama sínum rétt. Vera í mos­anum, í skóg­inum, í vatn­inu. Tengjast nátt­úr­unni. Bara það að vera ber­fættur og setja hend­urnar í mold­ina er svo mik­il­vægt fyrir okkur til þess að tengj­ast. Flóran þín og flóran í jörð­inni eru eins og systk­ini.

Við viljum byrja með eitt­hvað skemmti­legt á þessum reit, en við erum með rými til að tengj­ast nátt­úr­unni. Við verðum með nám­skeið og fáum kenn­ara til að kenna okkur um vist­kerfið og mold­ina.

Ég og Ingeborg erum nýkomin í þetta hús­næði og erum að byggja þetta upp sem eins konar „retr­eat“. Hug­myndin er að vera með „retr­eat“ í borg­inni. Þú kemur eftir vinnu á föstu­degi og ert að verja tím­anum hérna í nátt­úr­unni. Við erum að læra um tauga­kerfið, hug­leiða, koma inn við eld­inn eða kveikja eld út. Við viljum veita fólki rými til að kúpla sig út úr amstri dags­ins. Fólk getur tjaldað, en ann­ars er þetta hugsað til þess að fólk geti skutl­ast aftur heim og sofið þar og mætt svo aftur snemma næsta dag.

Á land­inu er skógur og við viljum finna góðan stað fyrir mat­jurta­garð og búa til góða mold, því eitt stærsta vanda­mál sem við stöndum frammi fyrir í dag er lélegur jarð­vegur. Jarð­veg­ur­inn er 70-80% lélegri en til dæmis fyrir 1960. Ástæða þess er sú að við erum að nota of mik­inn áburð – jarð­veg­ur­inn er ekki í teng­ingu við vist­kerfið lengur. Ef þú fengir þér eina app­el­sínu árið 1920 þá þyrftir þú að fá þér þrjár app­el­sínur í dag til að fá sama nær­ing­ar­gildi. Allt er svo erfða­breytt og jarð­veg­ur­inn er alltaf að verða veik­ari,“ segir Arnór.

Arnór og Ingeborg

Meira „workshop“ en jógatími

Arnór býður upp á nokkur nám­skeið og er eitt af þeim MjaðmaRæs. Hann segir að það sé hans vin­sæl­asti tími. „Það má segja að þessir tímar séu meira „workshop“ en jóga­tími. Hver tími er tvær klukku­stundir og eng­inn tími er eins. Á sama tíma er fræðsla um stoð­kerfið.“

Arnór lýsir sér sem „leit­andi og finn­andi“, sem er sífellt meira á leið­inni inn á við: „Allt sem við upp­lifum ger­ist innra með okkur og sem leit­andi leita ég að aðferðum sem hjálpa mér að leita dýpra inn á við og í leið­inni leyfi ég öðrum að læra af mér og verða sam­ferða á þessu ferða­lagi.“

Arnór leggur mikla áherslu á að kenna fólki að tengj­ast sjálfu sér á jákvæðan hátt, hann leggur áherslu á að kenna nem­endum sínum að finna jákvæðan ásetn­ing og losa sig við hindr­anir og hömlur. Hann leggur mikla áherslu á að læra að næra sig með jákvæðum hugs­unum og góðum ásetn­ingi.

„Ef þú getur treyst því að þú sért í leið­inni í átt að ásetn­ingi þínum; að það þurfi ekki allt að ger­ast eins og þú hefur hugsað þér. Láta af stjórn­inni og leyfa sér að vera í flæði.

Við erum nefni­lega svo oft föst í van­anum. Þess vegna er svo mik­il­vægt að byrja dag­inn á því að þjálfa sjálfan sig. Byrja dag­inn á því að næra sig og ákveða hver ég ætla að vera í dag. Þú ert búinn að finna hvaða vana þú vilt ekki hafa og byrjar þess vegna að veita því athygli sem þú vilt vera. Og því oftar sem þú getur tengt þig yfir dag­inn því meira ertu á staðnum. Við erum svo vön því að vera í streitu­á­standi. Við erum háð því að fá þetta kortisól streitu­hormón og þar á meðal ég. Og þar af leið­andi þarf ég að fara í slök­unar­á­stand oft yfir dag­inn.

Ég mæli með að dag­ur­inn hefj­ist á önd­unaræf­ingum sér­stak­lega hjá þeim sem eiga erf­ið­ara með að hug­leiða. Þegar þú byrjar að gera önd­unaræf­ing­una þá ertu í núinu og hlustar á and­ar­drátt­inn. Það er til dæmis mjög gott að byrja á því áður en þú færð þér morg­un­kaffið og klæðir þig.

Þegar ég var að læra í Taílandi þá vakn­aði ég mög snemma á morgn­ana til að hug­leiða og hef senni­lega aldrei verið jafn tengdur inn á við, eins og þá.“

Arnór með ungum munki í Kanchanaburi, Taílandi

Öndum stórum skömmtum af íslenskri náttúru

Sumarið 2016 flutt­ist Arnór út í sveit og varði þar einu ári ásamt góðu fólki. Þar bauð hann upp á End­ur­nær­andi helgar og leiddi þátt­tak­endur inn á við í jóga, hug­leiðslu, sam­floti og öndun ásamt stórum skömmtum af íslenskri nátt­úru.

Nóvember 2018 kláraði hann kenn­ara­nám hjá Guðna Gunn­ars­syni og er honum afar þakk­látur fyrir það tæki­færi. Guðni er að sögn Arnórs einn fróð­asti og reynslu­mesti kenn­ari sem hann hefur hitt.

Arnór hefur unnið sem þjálf­ari hjá Primal frá 2018 og seg­ist ekki geta verið partur af betra teymi. Nálgun hans er út frá tauga­kerf­inu og stoð­kerf­inu og segir hann þessi nám­skeið vera á algjör­lega öðru „leveli“.

önd­un­ina til að stýra líðan sinni og róa tauga­kerfið með ein­faldri önd­un­ar­tækni

Í des­em­ber 2018 lauk Arnór svo kenn­ara­námi í Wim Hof-aðferða­fræð­inni og hefur inn­leitt þá þekk­ingu í sína kennslu. Wim Hof-aðferðin bygg­ist á þremur stólpum sem eru kulda­þjálfun, öndun og hug­leiðsla.

Arnór Sveins­son. Wim Hof-nám­skeið í Naut­hóls­vík­inni. Ljós­mynd­ari: Dukagjin Idrizi

Arnór hefur mikla þekk­ingu á tauga­kerf­inu: „Ég kenni nem­endum mínum hvernig þeir geti notað önd­un­ina til að stýra líðan sinni og róa tauga­kerfið með ein­faldri önd­un­ar­tækni. Þetta hefur jákvæð áhrif á svefn okkar og almenna líðan yfir dag­inn.“

Arnór hefur einnig verið að vinna við kakó-hug­leiðslu og býður reglu­lega upp á innri ferða­lög með aðstoð kakós­ins. Hann fór til Gvatemala og lærði að nýta þessa mögn­uðu plöntu eins og Mayarnir gerðu og gera, þetta er gert til þess að ferð­ast dýpra inn í sjálfan sig og tengj­ast upp­runa sínum, að sögn Arnórs.

Þar sem þyngdaraflið sleppir okkur

Ásamt því að vera með tíma hjá Primal Iceland elskar Arnór að vinna úti í nátt­úr­unni og nýtir hana til þess að leiða nem­endur inn á við. Hann býður þar af leið­andi upp á eins mikið af við­burðum úti í nátt­úr­unni og hann getur. Hann er reglu­lega með úti­jóga (Snjóga á vet­urna) og hug­leiðslu úti. Svo býður hann reglu­lega upp á End­ur­nær­ingar (retr­eat) helgar þar sem fólk getur komið og end­ur­nærst í nær­andi íslenskri nátt­úru. Þar leggur hann áherslu á slökun, öndun, sam­flot og tón­heilun í vatni, flot­þerapíu, jóga, hug­leiðslu, heilsu­fæði, nátt­úru­ferðir o.fl.

hjálpað okkur að upp­lifa hluti sem við höfum ekki upp­lifað áður

Ein af þeim þerapíum sem Arnór hefur sér­hæft sig í er Flot­þerapía bæði með tón­heilun og án. „Flot­þerapía er slökun og sjálfs­heilun í vatni. Vatns­slökun getur haft ótrú­lega jákvæð áhrif á heilsu okkar og ég hef sér­hæft mig í því að hjálpa fólki á þessu sviði. En í vatn­inu slökum við algjör­lega á, þar sem þyngd­ar­aflið sleppir okkur, og með aðstoð heilandi hljóða og undir hand­leiðslu leið­bein­anda skap­ast hið full­komna ástand fyrir djúp­slökun og jafn­vægi.“ Hljóð­heilun er mjög öflug aðferð til slök­unar og hug­leiðslu, „tíbesku tón­heil­un­ar­skál­arnar sem ég spila á geta fært okkur enn þá dýpra í hug­leiðslu ástandið og hjálpað okkur að upp­lifa hluti sem við höfum ekki upp­lifað áður. Heilun með þess­ari ástundun nærir, róar og gefur ein­staka upp­lifun.“

Vertu eins og þú ert!

Arnór Sveins­son. Ljós­mynd­ari: Jón Ágúst Guð­jón­son. Lónið við Skafta­fells­jökul

„Það að allir eigi að vera með sömu skoð­un­ina er algjör þvæla. Við erum öll alls konar. Hlustum frekar á fólk sem er á önd­verðum meiði í stað­inn fyrir að loka á það strax og setja upp múra. Góða fólkið er svo rétt­látt og ef þú ert ekki sam­mála því, þá fer það upp á móti og er þá orðið eins og fólkið sem það er að dæma. Við verðum að leyfa fólki að vera eins og það er. Þannig að ef ég er ekki sam­mála ein­hverjum um eitt­hvert við­fangs­efni, þá þarf ég ekki að sann­færa aðra um að annar sé vondur og hafi rangt fyrir sér og eyða orkunni minni í það, ég vil frekar verja orkunni minni í eitt­hvað skemmti­legra.

Ég elska fólk sem segir hlut­ina eins og þeir eru og er ekki hrætt við að að særa ein­hvern. Ef þú spáir í það, þá snýst það alltaf um það hvernig ég bregst við. Þannig að ef ég er ekki sam­mála ein­hverjum um eitt­hvert við­fangs­efni, þá þarf ég ekki að sann­færa aðra um að annar sé vondur og hafi rangt fyrir sér og get eytt minni orku í það. Það er orðið svo mikið svona; þú átt að vera svona og svona, ann­ars ert þú vond mann­eskja. En það er efni í annað við­tal,“ segir Arnór að lokum.

Við mælum með því að þið kíkið á síðu hans og fylgist með öllu því spenn­andi efni sem Arnór er að miðla. Við erum sér­stak­lega spennt að fylgj­ast með upp­bygg­ing­unni á sælu­reitnum þeirra við Hafra­vatn.

Arnór er svo með slök­un­ar­tíma alla mið­viku­daga í Primal sem eru opnir öllum. Hægt er að skoða tím­ana hans hér. En einnig er hægt að fylgj­ast með honum á Instagram, Facebook og á heima­síðu Primal. Ný og flott heima­síða er verða til, en hægt er að fylgj­ast með honum hér.

www.youare.is

https://www.instagram.com/yoga_arise/

Facebook Arnórs, þar sem hægt er að fylgj­ast með nýj­ustu nám­skeiðum.

Námskeið Arnórs hjá Primal

Primal

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina