Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Pistlar Páls fordæmdir – Skólameistari stendur vörð um Pál – Kennarar æfir

Pistlar Páls fordæmdir – Skólameistari stendur vörð um Pál – Kennarar æfir

Á annan tug kvart­ana bár­ust skóla­meist­ara FG í októ­ber eftir blogg­færslu Páls sem sneri að frétta­mann­inum Helga Seljan. Fullyrti Páll að frétta­flutn­ingur Helga væri ómark­tækur af þeirri ástæðu að Helgi hefði greint frá því að hafa farið á geð­deild. Sam­fé­lags­miðlar og athuga­semda­kerfi log­uðu í kjöl­farið.

„Þetta er erfitt við­fangs. Hvar lýkur vinn­unni og hvar ekki? Það er alltaf að trufla menn svo­lítið. En við erum að skoða málið og erum rétt byrjuð á því. En erind­unum hefur öllum verið svarað á sama veg; að málið sé til skoð­unar,“ sagði Kristinn Þor­steins­son skóla­stjóri við það til­efni.

Um þrjá­tíu kenn­arar og starfs­fólk við Fjöl­braut­ar­skól­ann í Garðabæ lýsa nú and­stöðu við mál­flutn­ing Páls Vil­hjálms­sonar, sögu­kenn­ara við skól­ann, á blogg­síðu hans. Skóla­stjóri segir skrif hans valda skól­anum tjóni og kenn­ari segir skrifin hafa áhrif á and­rúms­loftið á kenn­ara­stof­unni.

Páll hefur kennt við skól­ann um ára­bil og sam­hliða verið virkur í skrifum sínum á Mogga­blogg­inu. Skrif hans hafa í gegnum tíð­ina þótt umdeild en rit­sjórar Morg­un­blaðs­ins, Haraldur Johann­esen og Davíð Oddsson, hafa end­ur­tekið tekið skrif Páls upp og birt í Stak­steinum Morg­un­blaðs­ins.

Pistlar Páls fordæmdir 

Kristinn skóla­stjóri stað­festir í sam­tali við Vísi að tvö erindi hafi borist vegna pistils­ins sem var lagður fyrir skóla­nefnd í dag. Annars frá heilsu­nefnd skól­ans, þar sem bloggskrif­unum var mót­mælt, og hins vegar frá þrjá­tíu starfs­mönnum og kenn­urum við skól­ann. Þar sé fyrr­nefndur pist­ill Páls for­dæmdur.

„Ég skil starfs­menn á þann hátt að þeir vilji leggja áherslu á að þeir eru ósam­mála bloggskrifum Páls og vilja ekki að skól­inn sé dæmdur af þeim skrifum. Aðrir starfs­menn skól­ans for­dæma þessi skrif,“ segir Kristinn. Skólinn hafi lagt áherslu á frjáls­lyndi, vilji vera staður fyrir alla nem­endur og starfs­fólki finn­ist þetta ekki í takti við þau gildi.

„Að sama skapi er mér full­frjálst að segja að þetta sé óheppi­legt fyrir skól­ann og valdi honum tjóni,“ segir Kristinn. Hann hafi rætt við Pál oftar en einu sinni, nú síð­ast um erindið frá starfs­fólki.

„Ég sagði honum að ég væri ósam­mála -skrifum hans. Þetta valdi okkur tjóni. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég ræði við Pál og eflaust ekki það síð­asta.“

Skrif Páls sverta ímynd skólans

Petrún Björg Jóns­dóttir, kenn­ari við FG, er hinsegin full­trúi skól­ans og seg­ist hafa verið ein þeirra sem stóð fyrir und­ir­skrift­ar­söfn­un­inni. Henni hafi runnið blóðið til skyld­unnar, sem starfs­maður skól­ans og femínisti.

Hún seg­ist vinna með ungu fólki af ólíkum kynjum í hinsegin félagi skól­ans. Þar séu krakkar með per­sónu­fornöfnin hann, hún og hán. Þau séu nokkuð mörg með kyn­hlut­lausa per­sónu­for­nafnið hán. Nem­end­urnir taki eftir og finni fyrir skrifum Páls.

„Algjör­lega, það er alveg á hreinu. Mér finnst það hafa verið óþægi­legt und­an­farið. Það er sama hvar þú talar um þennan skóla. Þetta er haft á orði.“

Það sé hennar upp­lifun að skrif Páls hafi svert ímynd skól­ans. Þá hafi skrifin haft slæm áhrif á and­rúms­loftið á kenn­ara­stof­unni.

Í sam­tali við Vísi eru hún spurð hvað muni ger­ast næst?

„Við höfum ekk­ert að gera með fram­haldið. Það þurfti bara að koma þessu á blað,“ segir Petrún. Kristinn skóla­stjóri talar á svip­uðum nótum. Hans sam­töl við Pál muni halda áfram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina