Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fuglaflensa staðfest á Íslandi: Hænsni aflífuð á bóndabæ á Skeiðum

Fuglaflensa staðfest á Íslandi: Hænsni aflífuð á bóndabæ á Skeiðum

Fregnir hafa borist af fuglaflensu á Íslandi síð­ustu daga en nú hafa til­felli verið form­lega stað­fest í villtum fuglum hér­lendis. Þó virð­ist ekki ein­ungis um villta fugla að ræða, þótt til­felli í öðrum fuglum séu ekki stað­fest, en hænur á bóndabæ á Skeiðum sýndu ein­kenni sjúk­dóms­ins og voru aflíf­aðar í gær. Mat­væla­stofnun hefur sent frá sér til­kynn­ingu um málið.

Samkvæmt Mat­væla­stofnun hafa til­felli fuglaflensusmita verið stað­fest í þremur villtum fuglum á land­inu und­an­farna daga. Þar er um að ræða heiða­gæs við Horna­fjörð, hrafn á Skeiðum í Árnes­sýslu og súlu rétt við Stranda­kirkju við Suð­ur­stranda­veg. Hænsin sem sýndu ein­kenni sjúk­dóms­ins voru haldin á bænum þar sem hrafn­inn hafði áður fund­ist. Þegar hafa verið tekin sýni úr hænsnunum og þau send til grein­ingar.

„Fuglaflensu­veiran sem stað­fest hefur verið í villtum fuglum er af gerð­inni H5. Mein­virkni veirunnar er ekki þekkt. Beðið er nið­ur­staðna frek­ari grein­ingar frá erlendum rann­sókn­ar­stofum,“ segir í til­kynn­ingu Mat­væla­stofn­unar.

Á vef Mat­væla­stofn­unar segir enn­fremur að við­bragðs­á­ætlun stofn­un­ar­innar um við­brögð og varnir gegn smit­andi sjúk­dómum í fuglum hafi verið virkjuð.

Stofn­unin bendir öllum ali­fugla­eig­endum á að ein­angra fugla sína frá villtum fuglum með því að halda þá undir þaki og girða af svæði þeirra.

Tekið er fram að þau afbrigði fuglaflensunnar sem mest hefur verið um í nágranna­löndum okkar und­an­farið hafi ekki valdið sýk­ingum í fólki. Auk þess er ekki talin hætta á því að fólk smit­ist af veirunni með neyslu eggja eða kjöts af ali­fuglum.

Þar sem aldrei er unnt að úti­loka smit með fullri vissu er fólki þó bent á að gæta sótt­varna við hand­fjötlun á veikum og dauðum fuglum.

„Mat­væla­stofnun hvetur almenn­ing til að til­kynna um dauða villta fugla sem finn­ast á víða­vangi ef ekki er aug­ljóst að þeir hafi drep­ist af slys­förum.  Best er að til­kynna í gegnum ábend­ing­ar­kerfi á heima­síðu Mat­væla­stofn­unar (mast.is).  Þörf á sýna­töku verður metin af stofn­un­inni,“ segir í til­kynn­ingu Mat­væla­stofn­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina