Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Brynjar og Sveinn Andri deila: „Nefndi málefni Samherja máli sínu til stuðnings“

Brynjar og Sveinn Andri deila: „Nefndi málefni Samherja máli sínu til stuðnings“

Fjörugar sam­ræður hófust á milli hæsta­rétt­ar­lög­mann­anna Brynjars Níels­sonar og Sveins Andra Sveins­sonar eftir að sá fyrr­nefndi birti ummæli á Facebook-síðu sinni síð­degis í gær.

Í pistli sínum sagði hann að þjóðar­í­þrótt Íslend­inga væri almennt fjas út af engu og önnur íþrótt, ásak­anir um lög­brot ann­arra manna, hafi sótt mjög í sig veðrið að und­an­förnu.

Nefndi Brynjar máli sínu til stuðn­ings frétta­flutn­ing af mál­efnum Samherja og ásak­anir um að for­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafi staðið í lög­brotum og sak­næmu mis­ferli sem ekki hafi reynst vera fótur fyrir.

„Hafa þeir blaða­menn verið verð­laun­aðir hvað eftir annað fyrir að fara með fleipur,“ sagði Brynjar meðal ann­ars.

Sveinn Andri gerði athuga­semd við orða­lag Brynjars og velti því upp hvort aðstoð­ar­maður dóms­mála­ráð­herra, sem Brynjar sann­ar­lega er, ætti að tjá sig um sekt eða sak­leysi manna í málum sem enn eru til rann­sóknar.

Sveinn Andri vís­aði í orð Brynjars úr pistl­inum og sagði:

„„Í meira en ára­tug hafa nokkrir fjöl­miðlar full­yrt að Samherji hafi staðið í ýmsum lög­brotum og sak­næmu mis­ferli, sem hingað til hefur ekki reynst fótur fyrir.“ Ertu nú alveg viss um? Og er ekki dálítið bratt að slík yfir­lýs­ing komi frá aðstoð­ar­manni dóms­mála­ráð­herra?“

Brynjar svar­aði Sveini Andra og sagði:

„Nú, hvað varð um gjald­eyr­is­brotin og Seðla­banka­málið allt og pen­inga­þvættið í Noregi og víðar? Það hefur ekk­ert með aðstoð­ar­mann dóms­mála­ráð­herra að gera að þau mál fóru eins og þau fóru.“

„Verra ef reyndir lögmenn taki þátt í slíku“ 

Sveinn Andri spurði Brynjar hvort hann væri ekki að gleyma mútu­greiðsl­unum sem enn væru til rann­sóknar. „Þess vegna sagði ég hingað til,“ svar­aði Brynjar. Sveinn Andri sagði aftur á móti að orð hans mætti skilja sem yfir­lýs­ingu um að ekk­ert sé hæft í ásök­un­unum. Því var Brynjar ósam­mála:

„Nei, en það er almennt skyn­samt og gott að menn full­yrtu ekki um sak­næma hátt­semi ann­arra áður en mál fá afgreiðslu í rétt­ar­vörslu­kerf­inu. Að minnsta kosti kynni sér málin almenni­lega áður og hafi ein­hverja for­sendur til að full­yrða um sök. Veit að það er ekki vin­sælt núna en mér þætti verra ef reyndir lög­menn taki þátt í slíku,“ sagði Brynjar og beindi pill­unni til Sveins Andra.

Sveinn Andri svar­aði Brynjari fullum hálsi:

„Reyndur lög­maður eins og þú og atvinnu­stjórn­mála­maður átt að vita að full­trúi dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins á ekki mikið að vera að tjá sig um sekt eða sak­leysi sak­born­inga í yfir­stand­andi rann­sókn stofn­ana sem óbeint heyra undir ráð­herra.“

„Ég hef áhyggju af þér“

Brynjar þvertók fyrir það að hann væri að tjá sig um sekt eða sak­leysi manna heldur minna á málin sem lokið er í rétt­ar­vörslu­kerf­inu og hvernig þau end­uðu.

„Í öðru lagi er ég ekki full­trúi dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins heldur póli­tískur aðstoð­ar­maður ráð­herra. Í þriðja lagi hef ég áhyggjur af þér en þær eru af ýmsum toga.“

Sveinn Andri benti Brynjari á að hann væri aðstoð­ar­maður ráð­herra. „Punktur. Stundum þarf maður stöðu sinnar vegna að gæta að orðum sínum, þó að það sá gaman að gjamma. Það má hæg­lega skilja þessa færslu sem svo að þeir Sam­herj­a­menn sem séu sak­lausir af öllu sem áður hefur verið borið á þá.“

Sam­skipti þeirra Brynjars og Sveins Andra má sjá í heild sinni í færslu Brynjars hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina