Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hlynur Bæringsson missti föður sinn ungur: „Ég slapp fyrir horn“

Hlynur Bæringsson missti föður sinn ungur: „Ég slapp fyrir horn“

Hlynur Bær­ings­son, körfu­bolta­maður, körfu­bolta­þjálf­ari yngri flokka körfuknatt­leiks­deildar Stjörn­unnar og íþrótta- og rekstr­ar­stjóri hjá körfuknatt­leiks­deild­inni er í öðru sæti á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Garðabæ fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar.

„Ég hef haft mik­inn áhuga á stjórn­málum alla tíð. Þegar ég var ungur strákur þá þekkti ég alla stjórn­mála­menn og vissi allt um þetta; horfði á alla þætti og las blöðin fram og til baka þannig að ég hef alltaf verið mjög áhuga­samur og haft skoð­anir á þessu og hef oft verið að rök­ræða um hitt og þetta við allt og alla; þetta hafði lengi blundað í mér,“ segir hann um til­urð þess að hann gefur kost á sér.

Af hverju Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn?

„Nokkrir góðir menn höfðu sam­band við mig og þar á meðal Ásmundur Einar og nokkrir kunn­ingar hérna í Garða­bænum og spurðu mig hvort ég væri ekki til í að gefa kost á mér og í fram­haldi af því tal­aði ég við Brynju sem er í 1. sæt­inu hjá okkur og lík­aði strax vel við hana og við það sem hún hafði fram að færa; ég hafði auð­vitað tekið eftir henni í Alþing­is­kosn­ing­unum. Ég hefði aldrei sagt „já“ ef ég hefði ekki verið á þeirra vagni und­an­farið. Ég hef verið nokkuð óflokks­bund­inn síð­ustu ár en ég hef stutt Framsókn í síð­ustu kosn­ingum og var far­inn að hall­ast æ meira að þeim. Ég við­ur­kenni að það var sér­stak­lega vegna þess hvernig Ásmundur Einar hefur tæklað barna­málin. Mér finnst ég eiga tölu­vert sam­eig­in­legt með Fram­sókn­ar­mönnum; ekki hvað allt varðar en mjög margt. Þannig kom þetta til í raun og veru. Svo var það að þora að bjóða sig fram; ég held að það séu margir í þjóð­fé­lag­inu sem hugsa um það og telja sig hafa eitt­hvað fram að færa og þá verður maður bara að hafa sjálfs­traustið og yfir­stíga þennan sjálfs­efa sem getur komið upp hjá öllum: Bara þora og taka því sem að höndum ber. Taka bara örlög­unum eins og þau verða.“

Ég hef hins vegar lengi þjálfað börn í körfu­bolta og ég finn alveg að það eru ekk­ert allir eins.

Hvað áherslu­mál Hlyns varðar segir hann að þau séu að sjálf­sögðu að fólk búi í góðu sam­fé­lagi. „Það væri mjög ósann­gjarnt hjá mér að segja að Garðabær væri slæmur staður til að búa á. Það er einmitt margt gott gert í Garðabæ en bak­grunnur minn er svo­lítið fjar­lægur því sem margir í Garðabæ þekkja þar sem er mikil vel­sæld og það sést víða að margir hafa það gott. Ég hef hins vegar lengi þjálfað börn í körfu­bolta og ég finn alveg að það eru ekk­ert allir eins. Það sitja ekki allir við háborðið. Það eru ekki allir með. Mig langar að sjálf­sögðu mikið til að hjálpa þessum krökkum og reyna bara að láta gott af mér leiða í þessum íþrótta- og æsku­lýðs­málum. Það er svona það helsta. Svo hef ég áhuga á fleiri þáttum í póli­tík eins og til dæmis skipu­lags­málum sem ég hef ekki eins hátt um en ég hef gríð­ar­legan áhuga á þeim, hvernig hverfi og bæir eru byggð upp og sam­sett og hvernig lýð­fræðin er en ég hefði mik­inn áhuga á því að kynn­ast því betur.
Það er  auð­vitað þannig í þessu að það er fullt af hlutum sem maður kann ekki og þekkir ekki og maður þarf að læra í þessu eins og öðru. Og ég hef verið að reyna að nýta tím­ann í það núna að koma inn í sem mest svo sem varð­andi það hvar hægt er að bæta hlut­ina og ferlið við að koma því í verk.“

(Mynd: Gunnar Freyr.)

Fann tilgang og markmið

Hlynur fædd­ist og ólst upp í Grund­ar­firði og svo í Borg­ar­firði.

Það var óregla á heim­il­inu. Faðir hans drakk og lést hann þegar Hlynur var sjö ára og eftir það var móðir hans eina fyr­ir­vinnan og voru systk­inin fjögur.

„Þetta lit­aði nátt­úr­lega allt,“ segir Hlynur sem talar um að hann hafi skort föð­urí­mynd. „Það voru tveir for­eldrar á heim­ilum flestra vina minna og ég hugsa oft til þess að það er ýmis­legt sem vantar þegar svo er ekki. Margt af þessu kemur fram þegar maður er eldri; ég var það ungur þegar pabbi dó að þá voru hlut­irnir eins og þeir voru og ég fatt­aði ekki að þeir ættu að vera öðru­vísi. Sjokkið kom seinna meir; auð­vitað hugsa ég til krakka í svip­uðum sporum.

Ég er alveg sann­færður um það að þetta hefði ann­ars ekki farið vel því í kringum mig höfðu margir lent í óreglu .

Mamma stóð sig reyndar frá­bær­lega vel með fjögur börn og ég skil það ekki í dag hvernig hún fór að því oft og tíðum en þegar maður elst upp í svona aðstæðum þá fattar maður það ekki fyrr en seinna. Það er líka komið mis­jafn­lega fram við börn eftir því hvaðan þau eru og hvaðan þau koma; það er mögu­lega eitt­hvað mann­legt en mér finnst að þannig eigi það ekki að vera. Þau börn hafa almennt mun færri tæki­færi til þess að rækta hæfi­leika sína. Oft elta syndir feðr­anna fólk í gegnum ævina sem er ósann­gjarnt. Tæki­færin eiga að vera jöfn; hvernig við spilum úr þeim er svo annað mál.
Ég slapp mjög vel; ég fór snemma í íþróttir og þær björg­uðu mér og í fram­haldi af því að hafa kynnst kon­unni minni og eign­ast fjöl­skyldu. Ég er sann­færður um að ef ég hefði ekki verið í íþróttum þá væri ég ekki í eins góðum málum og ég tel mig vera í dag.
Það skiptir máli að til­heyra, vera hluti af liði og finna til­gang; það er eitt­hvað sem allir vilja. Þegar ég lít til baka þá er það það sem beindi mér á rétta braut. Ég er alveg sann­færður um það að þetta hefði ann­ars ekki farið vel því í kringum mig höfðu margir lent í óreglu.
Maður fann í íþrótt­unum ein­hvern til­gang og mark­mið sem er svo mik­il­vægt.
Krökkum sem eru að vill­ast af leið vantar oft einmitt til­gang og mark­mið; þá vantar að sjá ljósið í enda gang­anna. Þeir þurfa ein­hvern stað til að finna sig og vera eitt­hvað. Ég slapp fyrir horn.“

Hvað á körfu­bolt­inn sam­eig­in­legt með stjórn­mál­unum? Keppn­is­skapið? „Ég finn það alveg að það er keppn­is­skap í mér þegar kemur að stjórn­mál­unum. Mig langar að ná árangri þar eins og í íþrótt­unum. Mig langar að okkur gangi vel en ég er ekki til­bú­inn að gera hvað sem er; ég verð að geta horft í speg­il­mynd­ina á kvöldin, vil gera þetta rétt.
Það sem þetta tvennt á líka sam­eig­in­legt er að það þarf að leggja á sig til þess að ná árangri og svo þarf að læra að vinna í hópi; það þarf að læra að taka ákvarð­anir með öðrum og læra að vinna með öðrum, maður gerir lítið einn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina