Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigga Eyþórs: „Elskar að lagið sé „love/hate“-lag keppninnar“

Sigga Eyþórs: „Elskar að lagið sé „love/hate“-lag keppninnar“
Sigríður Eyþórs­dóttir Ljós­mynd­ari: Cat Gundry-Beck Stílisti: Íris Tanja Flygenring. Förð­un­ar­fræð­ingur: Helen Dögg Snorra­dóttir. Myndir teknar í hljóð­ver­inu Hljóð­rita í Hafn­ar­firði.

Við ræðum um tón­list­ina. Sigga orðar það svo að þær syst­urnar séu allar frekar „genre-fluid“ á tón­list. „Ég fíla alla tón­list. Ég hlust­aði mikið á rapptón­list þegar ég var ung­lingur en á sama tíma fíl­aði ég Metallica, sem ég þorði varla að við­ur­kenna þá. Það þótti ekki flott að vera hipp hopp­ari og hlusta á metal­rokk. Ég elskaði t.d. Nirvana og Led Zeppelin og ég hef alltaf elskað kán­trítón­list. Ég var bara um tví­tugt þegar KK frændi kynnti mér tón­list kán­trí­söng­konu sem heitir Gillian Welch. Hún er alveg geggjuð og mik­ill áhrifa­valdur minn og svo elska ég líka raf­tón­list­ar­menn eins og t.d. James Blake. Það er engin tón­list sem ég get ekki gefið séns á ein­hvern hátt. Ef svo er þá er það algjör und­an­tekn­ing. Það er við­horfið sem skiptir mig máli. Ég hugsa það þannig, að allir séu að gera sitt besta þó svo að ég setji það kannski ekki á Spotify-list­ann minn.

„Heyrðu! Ég er ennþá með kven­manns­rödd, þú getur ekki sett mig í svona djúpa rödd.“

Tón­list­arsmekkur okkar systr­anna er svo­lítið kán­trí- og þjóð­laga­skot­inn. Við ólumst upp við það að radda mikið og það er gjöf sem við fengum. Þessi tón­list er til­valin til þess, þ.e. þjóð­lagatón­list. Ég er oft­ast neðri röddin. Þó að ég geti sungið alls konar raddir þá funkera ég oft­ast best í neðstu rödd­inni. Elín er í miðj­unni og Beta í efstu rödd­inni. Pabbi setur mig stundum í óþarf­lega lágar raddir og þá er ég er bara: „Heyrðu! Ég er ennþá með kven­manns­rödd, þú getur ekki sett mig í svona djúpa rödd.“ Mér finnst samt visst „power“ í því að syngja neðstu rödd­ina og það á mjög vel við mig.“

Við áttum ekki von á þessu

Sigríður Eyþórs­dóttir Ljós­mynd­ari: Cat Gundry-Beck. Stílisti: Íris Tanja Flygenring. Förð­un­ar­fræð­ingur: Helen Dögg Snorra­dóttir. Gleraugu frá Optical studio. Myndir teknar í hljóð­ver­inu Hljóð­rita í Hafn­ar­firði.

Talið berst að ann­rík­inu sein­ustu daga – keppn­inni og nið­ur­stöðu hennar. Sigga er enn svo­lítið hissa. „Sér­stak­lega af því að við áttum ekki von á þessu. Ekki af því að við hefðum ekki trú á lag­inu, sem Lay Low samdi, eða að við séum að gera lítið úr okkur sjálfum. Það var meira út af því að lagið okkar er ekki dæmi­gert júró­visjón-lag.

Það er alltaf gott að koma á óvart, en við fundum síð­ustu dag­ana fyrir úrslitin að hjólin voru byrjuð að snú­ast aðeins með okkur. Við sögðum við Unni, leik­stjór­ann okkar, þegar við vorum að setja atriðið saman, að við yrðum að vera við sjálfar á svið­inu. Það er partur af því að vera með ADHD. Ég get ekki leikið og ég get alls ekki dansað og sungið á sama tíma. Eina sem Unnur, okkar frá­bæri leik­stjóri, vildi láta okkur gera var að tengj­ast mynda­vél­inni og vera ekki svona mikið inni í okkar í eigin heimi.

Lovísa er líka svo stór­kost­legur laga­höf­undur og mann­eskja. Það er svo mikil feg­urð og útgeislun frá henni. Hvort tveggja lagið og text­inn höfð­aði svo sterkt til okkar. Við fundum svo mikla kven­orku í því. Textinn er um konu sem er í vist­ar­bandi og er að velta fyrir sér aðstæðum sínum. Vist­ar­band var notað yfir það þegar fólk átti ekki jarðir eða hús­næði og neydd­ist til að búa og vinna á bæjum hjá öðrum. Bóndinn réð allri vinnu hjúa sinna og fékk af henni allan arð, hvort sem vinnan var unnin á heim­ili hans eða utan þess. Ef vinnu­maður fór til dæmis á ver­tíð, þá fékk bónd­inn sem hann til­heyrði allan afla sem vinnu­mað­ur­inn dró úr sjó. Á móti bar bóndi ábyrgð á því að hjú hans fengju fæði, klæði og húsa­skjól á ráðn­ing­ar­tíma þeirra.

Við eigum lausn­ar­bréfið hennar

Langafi okkar tal­aði mikið um þetta við okkur. Langa­langa­langamma okkar var í vist­ar­bandi. Við erum öll svo ung í okkar fjöl­skyldu þegar við eign­umst börn, þannig að ég var svo heppin að eiga langömmu og langafa og langa­langa­langömmu, langt fram eftir aldri. Við eigum lausn­ar­bréfið hennar, þar sem hún bað um að losna úr vist­ar­band­inu. Hún fékk lausn frá vist­ar­band­inu, en þurfti að skilja barnið sitt, sem hún átti með bónd­anum, eftir á bænum. Það var vegna þess að hún gat ekki séð fyrir því og taldi það geta átt betra líf þar. Bóndinn átti sína konu og fjöl­skyldu og þau ólu fram­hjá­halds-barnið upp saman.“

Elskar að lagið sé „love/hate“-lag keppninnar

Þegar Sigga er spurð um hin lögin sem komust áfram í keppn­inni, þá tekur hún það fram að hún elski það, að þeirra lag sé það sem kalla má „love/hate-lagið“ og að fólk sé yfir­höfuð að hlusta á það og mynda sér sterka skoðun á því – við­brögðin séu oft­ast samt jákvæð. „Annars elska ég portú­galska lagið með henni Maro. Ég hlakka svo til að hitta hana. Ég mun halda áfram að hlusta á lagið hennar þegar Eurovision er búið. Og svo finnst mér hol­lenska lagið mjög flott, svona Lana Del Rey fíl­ingur í því. Ég held að keppnin verði lituð af átök­unum í Úkraínu. Það er mik­il­vægt að boða frið með öllu sem við gerum.

Það er líka svo geggjað að sjá fólk á öllum aldri vera að hlusta á okkur. Og ég verð að segja að ein athuga­semd á Twitter fékk mig til að brosa. Þá sagði ein að hún hefði grátið sig í svefn yfir úrslitum keppn­innar. Hún hafi svo sótt sjö ára son sinn í pössun dag­inn eftir og hann sagt henni að hann hefði kosið syst­urnar átta sinnum. Við erum greini­lega ekki með sama tón­list­arsmekk, sagði konan.

Annars elskar dóttir mín, sem er þriggja ára, Reykja­vík­ur­dætur og biður mig reglu­lega um að hlusta á lagið sem og öll hin lögin líka. Í gær byrj­aði t.d. dag­ur­inn okkar á því að hlusta þrisvar sinnum á öll lögin í keppn­inni og svo vildi hún færa sig yfir í sjón­varpið og horfa á þau öll þar aftur.“

Mesta „boss lady“ sem ég hef kynnst

Áður en við klárum úr boll­unum og ljúkum spjalli okkar vill Sigga minn­ast á eitt. Hún talar um hvað hún hafi verið ánægð með RÚV og kven­ork­una, sem þar er nóg af. „Það er mik­ill við­snún­ingur á RÚV. Pródúsent­inn, hún Salóme, er brjál­æð­is­lega klár og sama á við um Ragn­hildi, sem er mesta „boss lady“ sem ég hef kynnst. Hún er rosa­lega dug­leg og hefur fal­lega sýn á allt sem hún gerir. Hún er svo mikið á bak við allt. Annars var hver ein­asta mann­eskja frá­bær í RÚV-teym­inu. Ég hef aldrei kynnst öðru eins. Partur af því að mig lang­aði til þess að sigra var til þess að fá að halda áfram að vinna með þessu frá­bæra fólki.

Við erum stað­ráðnar í að ná eins langt og við mögu­lega getum í keppn­inni. Við viljum nýta okkur hana sem stökk­pall til að vekja athygli á tón­list­inni sem við elskum. En hvað sem ger­ist á þessu ferða­lagi, þá erum við að lifa draum sem nú hefur ræst, umkringdar dásam­legu fólki.“

Hægt er að lesa við­talið í heild sinni inn á vef­blað­inu HÉR.

Athugið, viðtalsbútur þessi hefur áður birst hjá Mannlífi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina