Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Manndráp í Hafnarfirði: Stakk sambýlismann sinn- Þyngsti dómur yfir kvenmanni á Íslandi

Manndráp í Hafnarfirði: Stakk sambýlismann sinn- Þyngsti dómur yfir kvenmanni á Íslandi

Kona var í Hér­aðs­dómi Reykja­ness dæmd í 16 ára fang­elsi fyrir að hafa orðið sam­býl­is­manni sínum að bana á heim­ili þeirra við Skúla­skeið í Hafn­ar­firði 14. febr­úar 2015.

Banamein manns­ins, sem var fæddur árið 1974, var stungu­sár. Konan var grunuð um að hafa stungið mann­inn einni stungu hægra megin þannig að hníf­ur­inn gekk inn í hægra lunga hans með þeim afleið­ingum að hann hlaut bana af völdum blæð­ingar úr lung­anu, að því er segir í ákæru. Talið er að mað­ur­inn hafi lát­ist á milli klukkan 12 og 14 þennan dag.

Konan neit­aði sök við þing­fest­ingu máls­ins í maí sama ár. Við aðal­með­ferð­ina bar hún fyrir sig minnis­leysi, sagð­ist hafa drukkið eitt­hvað af áfengi morg­un­inn örlaga­ríka og sagð­ist því ekki geta gert sér grein fyrir því sem átti sér stað í íbúð­inni.

Þreif blóðið og skipti um föt áður en hún hringdi í dóttur sína

Fyrir lá í mál­inu að konan hefði farið, ásamt mann­inum, með leigu­bíl í Bónus í Hafn­ar­firði upp úr klukkan ell­efu um morg­un­inn. Hún kvaðst þó ekki muna eftir því og taldi sig hafa sofið til hádegis, eftir að hafa til­kynnt for­föll í vinnu um klukkan sex. Er hún hafi vaknað hafi hún talið mann­inn vera sof­andi. Hún hafi þá fljót­lega gert sér grein fyrir að ekki væri allt með felldu og séð örlítið blóð á brjóst­kassa manns­ins og enni. Hún hafi þrifið blóðið og skipt um föt á mann­inum, áður en hún hringdi í dóttur sína og óskað eftir aðstoð hennar. Í kjöl­farið hafi verið hringt á lög­reglu.

Geð­læknir sem bar vitni í mál­inu og fram­kvæmdi sál­fræði­mat á Danutu sagði ekk­ert benda til þess að hún eigi við ein­hver geð­ræn vanda­mál að stríða, né sið­blindu. Hún telji sig ekki færa um slíkan verknað, en þó telji sig ábyrga fyrir honum.

Móðir og faðir hins látna fóru hvort um sig fram á þrjár millj­ónir króna í miska­bætur í mál­inu. Móð­ur­inni voru dæmdar 1.386.000 krónur í bætur og föð­urnum 1,1 millj­ónir króna.

Konan á sextugsaldri

Hæstirétt­ur stað­fest dóm Hér­aðs­dóms Reykja­ness sem dæmdi kon­una á sex­tugs­aldri í 16 ára fang­elsi fyr­ir að hafa banað sam­búðar­manni sín­um.

Konan var ákærð fyr­ir mann­dráp með því að hafa veist að sam­búðar­manni sín­um með hnífi með þeim af­leið­ing­um að hann hlaut bana af. Talið var að þótt mik­il áfeng­isneysla kon­unn­ar kynni að hafa verið meg­in­or­sök verkn­aðar henn­ar, sem og at­hafna henn­ar fyrst eft­ir hann, hefði það ekki áhrif á ákvörðun refs­ing­ar fyr­ir brotið, sbr. Því var hún dæmd til að sæta fang­elsi í 16 ár og greiða for­eldr­um manns­ins skaða­bæt­ur.

Foreldrar mannsins dæmd miskabætur

Í dómi Hér­aðs­dóms Reykja­ness, sem Hæstirétt­ur stað­festi, seg­ir m.a., að dóm­ur­inn teldi at­b­urð­ar­rás­ina um morg­un­inn vera afar óljósa. Hins veg­ar taldi dóm­ur­inn að sá vafi sem léki á um at­b­urð­ar­rás­ina væri hverf­andi og teld­ist því sannað svo ekki verði vé­fengt með skyn­sam­leg­um rök­um að konan hefði veist að sam­býl­is­manni sín­um með hnífi og stungið hann einni stungu í brjóstið þannig að hníf­ur­inn gekk inn í hægra lunga hans með þeim af­leið­ing­um að hann hlaut bana af völd­um blæð­ing­ar úr lung­anu.

Hún var dæmd til að greiða 3,8 millj­ónir króna í máls­kostnað. For­eldrar manns­ins fóru fram á þrjár millj­ónir króna hvor í miska­bætur. Móður manns­ins voru dæmdar tæpar 1,4 millj­ónir króna í miska­bætur og föður hans 1,1 milljón.

Heim­ildir:

Ásrún Brynja Ingv­ars­dóttir. 10. júlí. 2015. 16 ára fang­elsi fyrir mann­dráp. RÚV.

Innlent. 3.des­em­ber. 2015. 16 ára dómur fyrir mann­dráp. MBL.

Sunna Karen Sig­ur­þórs­dóttir. 10. júlí 2015. Manndráp í Hafn­ar­firði: Dæmd í 16 ára fang­elsi. Vísir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina