Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Aðalheiður fréttastjóri: „Þessi málaflokkur er í rúst“

Aðalheiður fréttastjóri: „Þessi málaflokkur er í rúst“
Aðal­heiður Ámunda­dóttir, frétta­stjóri á Frétta­blað­inu. Mynd sam­sett.

Aðal­heiður Ámunda­dóttir, frétta­stjóri á Frétta­blað­inu fór yfir stöðu geð­heil­brigð­is­þjón­ustu á Íslandi í leið­ara Frétta­blaðs­ins í dag.

„Þessi glöt­uðu manns­líf liggja milli lín­anna í ömur­legum vitn­is­burði um geð­heil­brigð­is­þjón­ust­una í land­inu, sem Rík­is­end­ur­skoðun birti nýverið. Geta kerf­is­ins til að veita þjón­ustu er undir vænt­ingum og bið eftir þjón­ustu alltof löng. Mismunun er inn­byggð í kerfið og margir fá ekki þjón­ustu við hæfi vegna óljósrar ábyrgðar- og kostn­að­ar­skipt­ingar, skorts á fjár­magni, mann­eklu og úrræða­leysi.

Upp­lýs­ingar liggja ekki fyrir um alger grund­vall­ar­at­riði eins og tíðni geð­sjúk­dóma, kostnað og mann­afla­þörf. Í stuttu máli er þessi mála­flokkur í rúst,“ segir Aðal­heiður.

Þunglyndi helsta orsök örorku

Aðal­heiður bendir á að þung­lyndi sé ein helsta orsök örorku sam­kvæmt upp­lýs­ingum á vef Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar og sjálfs­víg önnur helsta ástæða dauðs­falla fólks á aldr­inum 15 til 29 ára. Þá er ævi­lengd fólks með alvar­legar geð­rask­anir 10 til 20 árum skemmri en ann­ars fólks sem sýni hve sterk tengsl eru milli geð­sjúk­dóma og ótíma­bærra dauðs­falla.

Hún segir sorg­legt að sjá afrakstur margra verk­efna sem hleypa átti af stokk­unum sam­kvæmt stefnu og aðgerð­ar­á­ætlun í geð­heil­brigð­is­málum sem sam­þykkt var af Alþingi árið 2016.

„Vinnu­mála­stofnun var falin ábyrgð á því að fjölga hluta­störfum á opin­berum vinnu­stöðum með það að mark­miði að gefa fólki sem dottið hafði út af vinnu­mark­aði vegna geð­rask­ana, tæki­færi til að fóta sig á ný. Vinnu­mála­stofnun bár­ust hins vegar ekki upp­lýs­ingar um verk­efnið og setti það því aldrei í gang.“

Fordómar í garð geðfatlaðra

Aðal­heiður lýsir öðru dæmi af geð­heil­brigð­is­þjón­ust­unni:

„Í sömu aðgerða­á­ætlun átti að efna til átaks um aukna þekk­ingu starfs­fólks í geð­heil­brigð­is­þjón­ustu á rétt­indum sjúk­linga til túlka­þjón­ustu. Vel­ferð­ar­ráðu­neytið sem bar ábyrgð á aðgerð­inni setti aldrei átakið af stað. Starfs­hópur sem skila átti áætlun árið 2017 um hvernig vinna ætti gegn for­dómum í garð geð­fatl­aðra, var ekki skip­aður fyrr en í októ­ber 2018. Skýrsla hans er ókláruð.“

Aðal­heiður bendir á að ungt fólk sem glímir við þung­lyndi eða fíkni­vanda geti slegið í gegn fái það hjálp á réttu augna­bliki, en ella orðið upp­spretta ömur­legra harm­leikja og dáið fyrir aldur fram meðan það bíður á biðlistum eða velk­ist um feni þeirrar óreglu sem umlykur geð­heil­brigð­is­þjón­ust­una.

„Það er eins og stjórn­völd skilji þetta ekki. Geðveiki er dauð­ans alvara. Góðu frétt­irnar eru að árang­urs­ríkar með­ferðir eru til. Við getum haf­ist handa og þurfum ekki að bíða eftir. En verkin sem þarf að vinna hafa ekki verið unnin og á meðan fjara manns­lífin út. Það er ekki for­gangs­mál að bjarga þeim.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina