Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ýmsir nafntogaðir menn í golfhópnum Stullunum: Forstjórar og frægðarmenni

Ýmsir nafntogaðir menn í golfhópnum Stullunum: Forstjórar og frægðarmenni
Þeir Logi, Þórður og Hregg­viður hafa allir spilað með Stull­unum.

Golf­hóp­ur­inn sem hefur verið í umræð­unni í tengslum við ásak­anir Vítalíu Lazarevu á hendur þjóð­þekktum mönnum, telur ýmsa nafn­tog­aða með­limi. Arnar Grant var áður í hópnum en hefur nú, sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs, verið bolað þaðan út. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hefur fjár­mála­ráð­herra verið meðal með­lima í gegnum tíð­ina, þótt lítið hafi farið fyrir honum síð­ustu ár.

Logi Bergmann Eiðsson

Golf­hóp­ur­inn komst fyrst í umræð­una í tengslum við mál Vítalíu þegar ásak­anir hennar á hendur fjöl­miðla­mann­inum Loga Berg­manni Eiðssyni litu dags­ins ljós. Þar sagði hún hóp manna í golf­klúbbi hafa verið stadda í golf­ferð þar sem gist var á hót­eli. Hún hafi seinna komið á hót­elið og segir Loga Bergmann hafa farið yfir mörk hennar kyn­ferð­is­lega um kvöldið.

Þórður Már Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Festar.

Logi Bergmann er þó ekki eini mað­ur­inn í þeim golf­klúbbi sem Vítalía hefur sakað um mis­gjörðir. Þannig eru þeir Þórður Már Jóhann­es­son og Hregg­viður Jónsson einnig með­limir. Þeir eru tveir þeirra þriggja manna sem Vítalía hefur sakað um að hafa brotið gegn sér í heitum potti í sum­ar­bú­staði í eigu Þórðar Más.

Hregg­viður Jónsson

Vítalía lýsti því í sam­tali við Mannlíf um liðna helgi hvernig Þórður Már hafi verið sá sem braut harka­leg­ast á henni. Hún segir hann meðal ann­ars hafa meinað henni að yfir­gefa bústað­inn.

Einn virkasti golffélagsskapur landsins

Golf­hóp­ur­inn sem um ræðir gengur undir nafn­inu Stull­arnir. Stull­arnir hafa lengi verið einn virkasti golf­fé­lags­skapur lands­ins og einn sá þekkt­asti. Hann var stofn­aður árið 2004 og nafnið kemur að sögn Loga Berg­manns frá Alabama, þar sem nokkrir úr hópnum voru við nám.

Pétur Þór Hall­dórs­son, for­stjóri S4S.
Hermann Guð­munds­son, for­stjóri Kemi.

Klúbb­ur­inn hefur í gegnum tíð­ina talið, auk ofan­greindra með­lima, menn á borð við Sigurð Kára Krist­jáns­son lög­mann, Stefán Hilm­ars­son söngv­ara og Kristján Pálsson for­stjóra Jónar Tran­sport. Aðrir með­limir eru Hermann Guð­munds­son, for­stjóri Kemi, Andri Þór Guð­munds­son, for­stjóri Ölgerð­ar­innar, og Pétur Þór Hall­dórs­son, for­stjóri S4S.

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hefur Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands, verið með­limur í Stull­unum í gegnum tíð­ina en lítið spilað með þeim síð­ustu ár.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Sakaðir um svindl

Stein­grímur Gautur Pét­urs­son.

Stein­grímur Gautur Pét­urs­son, aðal­rit­ari Stull­anna, var í des­em­ber dæmdur í mán­að­ar­langt skrán­ing­ar­bann af aga­nefnd Golf­klúbbs Reykja­víkur. Bannið tók gildi við upp­haf tíma­bils­ins í vor. Var það vegna meints svindls Stull­anna við bókun rás­tíma. Málið vakti mikla óánægju meðal kylfinga, en með vax­andi vin­sældum íþrótt­ar­innar hér á landi hefur sífellt orðið erf­ið­ara að bóka rás­tíma og setið er um þá þegar bók­anir hefj­ast. Stein­grímur Gautur hefur haldið því fram að ekki hafi verið um svindl að ræða, en sagst ekki hafa nennt í slag og fremur viljað að málum yrði lokið með þessum hætti.

Þær sakir sem bornar voru á Stullana voru þess efnis að þeir hefðu, með hjálp tölvu­kerfis, tryggt sér rás­tíma á undan öðrum kylfingum. For­rit­ar­inn Guðni Þór Björns­son steig fram í nóv­em­ber síð­ast­liðnum og sagð­ist vera höf­undur for­rits, eða „scriptu“, sem gerði golf­hópnum kleift að bóka rás­tíma á leift­ur­hraða.

„Ég deildi þess­ari script-u með einum vini mínum, fellow golfara og tölv­un­ar­fræð­ingi sem fékk mitt leyfi til þess að nota scriptuna. Hann hefur tengsl í þennan Stulla hóp sem fjallað hefur verið um,“ sagði Guðni Þór í pistli sem hann skrif­aði um málið á sínum tíma.

Vildu ekki taka afstöðu

Vítalía Lazareva sagð­ist í sam­tali við blaða­mann Mannlífs um liðna helgi hafa rætt mál sitt við Stein­grím Gaut. Svörin hefðu verið á þá leið að málið yrði skoðað. Að end­ingu hefði ákvörð­unin verið sú að hóp­ur­inn vildi ekk­ert aðhaf­ast í mál­inu, „því hóp­ur­inn vildi ekki taka neinar hliðar.“ Arnari Grant hafi þó verið bolað út úr félags­skapnum. Með því sagði Vítalía að hóp­ur­inn væri sann­ar­lega að taka afstöðu.

„Málið er í far­vegi. Þeir vilja leyfa þessum mönnum að spila en ekki Arnari,“ segir Vítalía. Hún segir þá þannig vera að hlífa meintum kyn­ferð­is­af­brota­mönnum.

Vítalía sagð­ist nýverið hafa farið með mál sitt á hendur mönn­unum þremur úr sum­ar­bú­staðnum, til kyn­ferð­is­brota­deildar lög­reglu. Ekki eru heim­ildir fyrir því hvort kæra sé komin í ferli.

Golfið endurspeglaði lífið

Ragn­heiður Jóns­dóttir skrif­aði á golf1.is þann 8. jan­úar, þegar ljóst var um teng­ingu Stull­anna og meintra ger­enda í máli Vítalíu:

„Það aftur á móti sýnir hversu sönn orð Tiger Woods eru, sem hann lét eitt sinn falla, um að „golfið end­ur­spegl­aði lífið.“ T.d. og það á vel við hér: Ef brotið er af sér í golfi þá eru líkur á því að sá sami eða sömu aðilar geri það einnig í líf­inu eða öfugt, sá sem ger­ist brot­legur í líf­inu, brýtur einnig af sér í golfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag