Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Vítalía með nýjar uppljóstranir í sumarbústaðarmálinu: „Þórður Már braut á mér manna mest“

Vítalía með nýjar uppljóstranir í sumarbústaðarmálinu: „Þórður Már braut á mér manna mest“
Vítalía Lazerova Mynd: Instagram-skjáskot

Vítalía Lazareva upp­lýsir í sam­tali við Mannlíf að Þórður Már Jóhann­es­son, frá­far­andi stjórn­ar­for­maður hjá Festi, hafi verið sá sem braut harka­leg­ast á henni í sum­ar­bú­stað Þórðar Más á sínum tíma. Hún segir Þórð hafa meinað henni að yfir­gefa bústað­inn og þannig svipt hana frelsi í raun.

Málið kom upp á yfir­borðið þegar Vítalía sagði frá því í sam­tali við Eddu Falak að fjórir lands­þekktir athafna­menn voru naktir í heitum potti með henni í ótil­greindum sum­ar­bú­stað. Hún segir ömur­legt ef satt reyn­ist að Þórður Már Jóhann­es­son og Hregg­viður Jónsson hafi átt hlut að máli við brott­hvarf Eggerts Þórs Krist­ó­fers­sonar fram­kvæmda­stjóra frá Festi. Eggert hafi reynst henni vel.

Sjá einnig: Þögnin um brott­hvarf Eggerts

Gull af manni

Vítalía Lazareva segir í sam­tali við Mannlíf að Eggert hafi reynst henni afar vel eftir að Þórður Már og Hregg­viður, ásamt Ara Edwald fóru yfir öll mörk hennar í heitum potti í sum­ar­bú­stað. „Ég hringdi í hann sjálf, ein­hvern tíma í jan­úar eða febr­úar minnir mig og hann hlust­aði alveg rosa­lega mikið á mig og ég tal­aði við hann alveg heil­lengi. Mig langar að koma því til skila að ég á honum alveg órú­lega mikið að þakka og mér líður alveg rosa­lega illa yfir því að búið sé að bola honum út úr Festi, ef það er stað­reyndin. Ég vil bara að hann viti að ég á honum alveg gíf­ur­lega mikið að þakka og hann er greini­lega að standa með jafn­rétt­inu, ekki bara í mínu máli heldur líka í KÍ mál­inu,“ sagði Vítalía og átti þá við gagn­rýni Eggerts á stjórn Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands í málum sem snéru að meintum kyn­ferð­is­brotum lands­liðs­manna. Vítalía segir að stelp­urnar í Öfgum, Eddu Falak og fleiri segja að Eggert sé mjög góður maður sem trúir þolendum. „Hann er að gera rétt og þess vegna er verið að refsa honum sem er svo rangt. Þess vegna skrif­aði ég færsl­una á Twitter,“ sagði Vítalía en hún skrif­aði færslu fyrir stuttu á Twitter um málið. „Hann er bara gull af manni og hann sýndi mér stuðn­ing og hlust­aði á mig. Við töl­uðum saman í klukku­tíma, hann vildi fá að vita hvað gerð­ist í sum­ar­bú­staðnum því Þórður Már var búinn að segja allt öðru­vísi frá þessu á stjórn­ar­fundi. Og hann sagð­ist trúa mér sem var mjög gott að heyra.“

Braut fjórum sinnum á henni

Fram kom í sam­tal­inu við Vítalíu að Þórður Már hafi verið sá sem braut hvað mest á henni í sum­ar­bú­stað­inum.

Þórður Már Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Festar, er bor­inn þungum sökumum atburð­ina í sum­ar­bú­staðnum. Vítalía hefur kært til lö-greglu.

„Það má alveg koma fram að það var Þórður Már sem braut á mér manna mest. Það er Þórður, Ari og svo Hregg­viður. Þórður braut á mér undir fjórum laga­greinum. Hann læsti mig inni, það er svona stórt hlið við sum­ar­bú­stað­inn og ég vildi keyra í burtu en Þórður neit­aði að opna hliðið en hann á sum­ar­bú­stað­inn. Hann kom líka að mér þegar ég var í sturtu og bað mig um að glenna á mér klofið. Hann tróð fingri upp í enda­þarm­inn á mér og svo þegar ég fór að sofa kom hann inn og tróð fingrum upp í leggöngin á mér. Hann er svo að dreifa sögu­sögnum af mér úti í bæ, að við Arnar séum byrjuð saman aftur og fleira sem er bara bull. Við Arnar erum bara vinir, tölum saman annað slagið en hann er líka vitni í máli mínu gegn hinum. “

Golfklúbburinn

Vítalía sagði blaða­manni Mannlífs frá því að fyrr­ver­andi ást­manni hennar, Arnari Grant, hafi nú verið bolað út úr golf­klúbb­inum Stull­arnir vegna stuðn­ings hans við Vítalíu en Hregg­viður, Þórður Már og Logi Bergmann eru enn í klúbbnum.

Þórður Már Jóhann­es­son, Hregg­viður Jónsson, Ari Edwald, Arnar Grant og Logi Bergmann. Þeir koma við sögu í máli Vítalíu.

„Logi, Hregg­viður og Þórður fá allir að spila en Arnari var bolað út. Ég tal­aði við menn­ina sem eru yfir golf­hópnum og spurði bara hvað væri í gangi og sagði að annað hvort spil­uðu allir þessir menn með eða eng­inn þeirra. Þeir sögð­ust ætla að skoða þetta en svo heyrði ég í þeim aftur fyrir stuttu og þá sögðu þeir að hóp­ur­inn vildi ekki aðhaf­ast neitt í mál­inu því hóp­ur­inn vildi ekki taka neinar hliðar. Þannig að þeir vilja leyfa mönnum, sem eru nú rann­sak­aðir af lög­regl­unni að spila en ekki Arnari. Við skulum átta okkur á því að Arnar braut ekki á mér kyn­ferð­is­lega, það kom ýmis­legt upp á hjá okkur líka og ég er ekk­ert að verja Arnar neitt. Þannig að þeir eru að hlífa kyn­ferð­is­af­brota­mönnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð