Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þröstur Leó lætur stórútgerðirnar heyra það: „Það er sannarlega skítapakk“

Þröstur Leó lætur stórútgerðirnar heyra það: „Það er sannarlega skítapakk“
Þröstur Leó Gunn­ars­son Mynd: YouTube-skjáskot

Þröstur Leó Gunn­ars­son tal­aði íslensku er hann flutti eldræðu í YouTube-mynd­bandi í gær í til­efni Sjó­manna­dags­ins sem hald­inn var hátíð­legur í gær.

Íslend­ingar héldu Sjó­manna­dag­inn hátíð­legan í gær með prompi og prakt. Í flestum sjáv­ar­plássum lands­ins ef ekki öllum voru hátíð­ar­höld í til­efni dags­ins og var höf­uð­borgin ekki und­an­skilin í þeim efnum. Skemmti­at­riðin voru alls­konar og það sama má segja um ræð­urnar sem haldnar voru í gær. Ein þeirra vakti þó meiri athygli en aðrar en það er ræða leik­ar­ans og sjó­manns­ins Þrastar Leós Gunn­ars­sonar sem hann flutti á YouTube í gær. Ræðuna kallar hann Ávarp óþekkta sjó­manns­ins en er hún gerð í nafni sam­tak­anna Við fólkið í land­inu.

Í ávarp­inu gagn­rýnir Þröstur yfir­völd og útgerðarisa á borð við Samherja, meðal ann­ars vegna þess að þeir eiga allan kvót­ann á meðan strand­veiði­menn hrekj­ast í land. Þá skálar hann einnig fyrir „frels­inu sem er horfið og gleymt.“ Má með sanni segja að Þröstur hafi gefið útgerðaris­unum ræki­lega á bauk­inn.

Hér fyrir neðan má lesa ávarpið í heild sinni en fyrir neðan text­ann má horfa á þessa mögn­uðu eldræðu.

„Ágætu lands­menn og félagar mínir á sjó – og ekki síður þeir sem eru í landi, þeir sem hafa hrak­ist í land og þeir sem eru að reyna að draga fram lífið á strand­veiðum, allir þeir sem þrá að starfa sem sjó­menn og hafa til þess reynslu og getu en eiga ekki neinn kvóta, mega ekki róa því þeir eiga ekki fisk­inn … sem ætti auð­vitað ætti að eiga sig sjálfur, en sem er nú skráður og þing­lýstur sem eign Samherja og félaga. Gleði­legan sjó­manna­dag þið öll.

Skálum fyrir draumi okkar um frelsið út á sjó. Skálum fyrir draum­inum um að geta fiskað og með tím­anum stækkað bát­inn og jafn­vel eign­ast vinnslu í landi, byggt saman upp betra þorp eða betri bæ .. betra land. Skálum fyrir frels­inu sem er horfið og gleymt. Það var gefið öðrum en ykkur.

Skálum fyrir þeim tíma þegar maður gat rifið kjaft og þótt maður væri rek­inn gat maður alltaf fundið annað pláss. Skálum fyrir þeim tíma þegar sjó­menn létu í sér heyra og áttu öflug félög sem höfðu áhrif, beygðu sig ekki fyrir valdi stór­út­gerð­ar­innar sem í dag ræður öllu. Fjandinn hirði það pakk. Ef hann hefur lyst á því. Það er illur yfir­boð­ari sem kúgar fólk með launatékk­anum, hótar fólki að svipta það lífs­af­kom­unni. Það er sann­ar­lega skíta­pakk,

Skálum fyrir öllum þeim sjó­mönnum sem byggðu upp fisk­veiðar hring­inn í kringum landið, tóku þátt í því að lyfta Íslandi upp úr fátækt og opn­uðu fyrir nútím­anum; frelsuðu fólk frá örbirgð, hleyptu inn fram­förum og vel­sæld. Skálum fyrir öllum þeim sjó­mönnum sem fórn­uðu lífi sínu við að teygja sig eftir betri afkomu fyrir sig og sitt fólk … og í leið­inni fyrir sam­fé­lagið allt. Leið­in­legt að eng­inn sjó­maður hafi fengið veiði­rétt, aðeins útgerð­ar­menn. Það svíður í hjartað, er bölvað órétt­læti. Að fram­lag þeirra hafa verið einskis virt. Kynslóð fram að kyn­slóð, sjó­menn sem byggðu upp sjáv­ar­byggðir um allt land. Skálum fyrir þeim sem börð­ust svo við gætum fært út land­helg­ina, tryggt að afrakst­ur­inn af fiski­mið­unum færi til að byggja hér upp gott og heil­brigt sam­fé­lag. Það er ekki við þetta fólk að sakast þótt allt hafi farið á annan veg, að aðeins örfáir hafi eign­ast fiski­miðin og noti þau nú til að auðg­ast og auka enn völd sín … og séu að breyta Íslandi í ver­stöð sem þau eiga ein. Verstöð þar sem við erum bara ver­búð­ar­fólk og verðum að standa og sitja eins og þau segja.

Skálum líka fyrir stjórn­mála­fólk­inu sem studdi sjó­menn. Skálum fyrir þeim tíma að sjó­menn voru á fram­boðs­listum flokka. Skálum fyrir hug­mynd­inni um stjórn­mála­fólk sem vinnur fyrir almenn­ing en ekki aðeins fyrir hin valda­miklu og ríku. Skálum fyrir sjáv­ar­út­vegs­stefnu sem þjónar sam­fé­lag­inu en ekki aðeins örfáum auð­mönnum. Látum okkur dreyma á sjó­manna­dag­inn um stjórn­völd sem end­ur­heimta fiski­miðin og gefa þjóð­inni þau aftur svo arð­ur­inn af þeim geti orðið grunnur að góðu sam­fé­lagi. Látum okkur dreyma. Látum okkur dreyma á sjó­manna­dag­inn um hátíð­ar­höld sem ekki eru kostuð af Brim eða Samherja, þar sem þetta er hátíð­is­dag­ur­inn okkar og bar­áttu­dag­ur­inn okkar en ekki þeirra sem hafa sölsað undir allt erf­iði okkar. Sjó­manna­dagur sem stór­út­gerðin heldur hátíð­legan er dagur sem fagnar ástand­inu eins og það er; fagnar því að fiski­miðin hafi verið einka­vædd, að þau séu eign manna sem nota auð sinn til að auka völd sín og auka þannig enn auð sinn. Þeir fagna því að hafa beygt fólk undir sig, fagna því að hafa þaggað niður í sjó­mönnum.

Sjó­manna­dagur stór­út­gerð­ar­innar er sig­ur­há­tíð hinna fáu yfir fjöld­anum. Sá dagur er ekki okkar dagur. Þess vegna sit ég hér og bölva. Þetta þurfti ekki að fara svona. Kerfið sem við búum við er mann­ana verk og þess vegna gætum við haft það allt öðru­vísi, haft það eins og við viljum … og eins og þjóðin vill; því þjóðin vill svo sann­ar­lega ekki að örfáar fjöl­skyldur eigi fiski­miðin og reki sjáv­ar­út­veg­inn eins og alræð­is­ríki hinna fáu og freku. Þjóðin á sama draum og við sjó­menn, að þegar við siglum út á sjó séum við að sigla inn frjálsan heim þar sem allir eru jafnir og hafa sömu tæki­færi en ekki inn í myrka ver­öld þar sem einn á allt en hinir ekk­ert. Gleði­legan sjó­manna­dag kæru vinir. Ekki sjó­manna­dag stór­út­gerð­ar­innar heldur dag­inn okkar. Ef við stöndum saman munum við geta glaðst inni­lega á kom­andi sjó­manna­dögum. Og á öllum dögum. Skál fyrir því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina