Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Bjór með blóðbragði“ – Bjórinn hans Björgólfs og mafían

„Bjór með blóðbragði“ – Bjórinn hans Björgólfs og mafían

„Bjór með blóð­bragði“ var ein af fyr­ir­sögnum greinar sem birt­ist í danska blað­inu Ekstra Bladet þann 1. nóv­em­ber árið 2006. Umfjöll­un­ar­efni grein­ar­innar voru við­skiptaum­svif Björg­ólfs­feðga, Björg­ólfs Guð­munds­sonar og Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar, í Rúss­landi og teng­ing upp­bygg­ingar þeirra við blóðug mafíu­á­tök þar í landi.

Athygli vekur að greinin í Ekstra Bladet kemur út heilum tveimur árum fyrir efna­hags­hrunið, en hún var liður í umfjöll­unum um íslenska auð­menn og meint tengsl þeirra við spill­ingu og glæpi.

Björg­ólfs­feðgar höfðu auðg­ast vel á sölu Bravo-bjór­verk­miðju sinnar í Sankti Pét­urs­borg. Rúss­neska maf­ían hafði tögl og hagldir í ölgeir­anum í Rúss­landi og Ekstra Bladet sagði það furðu sæta að Björg­ólfs­feðgar og sam­starfs­maður þeirra, Magnús Þor­steins­son, hafi sloppið þaðan auð­ugir menn. Sá síð­ar­nefndi varð seinna aðal­eig­andi Avion Group.

Í grein blaðs­ins var einnig full­yrt að Björg­ólfs­feðgar hafi verið undir vernd­ar­væng Vladimir Pútíns, núver­andi Rúss­lands­for­seta og þáver­andi aðstoð­ar­borg­ar­stjóra Sankti Pét­urs­borgar.

Leigumorð í nærumhverfi feðganna

Í sömu grein í Eksta Bladet er sagt frá blóð­ugum mafíu­á­tökum í kringum bjór­mark­að­inn í Sankti Pét­urs­borg, á þeim tíma þegar Björg­ólfs­feðgar voru að byggja þar upp veldi sitt. Dæmi um þau átök er leigu­morðið á þing­kon­unni Galinu Starovojtovu árið 1998 en hún var skotin í hnakk­ann fyrir utan heim­ili sitt. Ráðgjafi hennar greindi seinna frá því í rétt­ar­sal að skömmu áður en hún var myrt hafi aðilar á vegum Björg­ólfs Thors leitað til hennar og óskað eftir hjálp hennar vegna þving­ana sem var verið að beita Bravo-verk­smiðj­una. Samkvæmt Ekstra Bladet hafi tvö fyr­ir­tæki viljað þvinga verk­smiðj­una í við­skipti.

Ári seinna myrtu leigu­morð­ingjar Aslanbek Gallojev. Gollojev var tengdur Baltika-bjór­verk­smiðj­unni sem var helsti keppi­nautur Björg­ólfs­feðga á mark­aðnum á þessum tíma. Aðstoð­ar­for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, Ilja Weisman, var einnig myrtur árið 2000.

Fleiri höfðu sett spurn­inga­merki við hagnað feðganna í Rúss­landi. Þannig skrif­aði blaða­mað­ur­inn Ian Griffiths grein í blaðið The Guardian þar sem hann full­yrti að við­skiptaum­svif Björg­ólfs­feðga væru byggð á rúss­neskum mafíu­pen­ingum. Hann velti því upp hvernig það hafi gerst að Bravo-verk­smiðja feðganna hafi rutt sér til rúms og gerst ráð­andi á mark­aðnum. Í grein­inni fór hann yfir and­lát sam­keppn­is­að­il­anna sem báðir voru skotnir. Hann nefndi einnig annað brugg­hús sem hafi mætt skyndi­legum enda­lokum þegar það brann. Grunur hafi leikið á um íkveikju. Griffiths full­yrti í grein­inni að rúss­neska maf­ían hafi mikið skipt sér af brugg­hús­unum í Sankti Pét­urs­borg, en borgin var þekkt fyrir að allt væri þar undir vök­ulu auga rúss­nesku mafí­unnar.

Bravo-verk­smiðjan náði afar sterkti stöðu á Rúss­lands­mark­aði. Þegar best lét hafði fyr­ir­tækið 25 pró­senta mark­aðs­hlut­deild í Sankti Pét­urs­borg og sex pró­sent í öllu Rúss­landi.

Árið 2002 keypti alþjóð­legi bjórris­inn Heineken bruggverk­smiðju feðganna. Við það tæki­færi höfðu tals­menn Heineken á orði að ein af ástæð­unum fyrir því að þeir hefðu viljað kaupa Bravo-verk­smiðj­una hefði verið að hún væri ekki tengd rúss­nesku mafí­unni. Björg­ólfs­feðgar tóku til­boði Heineken, sem hljóð­aði upp á fjögur hund­ruð millj­ónir doll­ara.

Björgólfur Thor hefur alltaf þver­tekið fyrir tengsl við rúss­nesku mafí­una og sagði til að mynda í við­tali við Morg­un­blaðið árið 2000: „[…]við höfum getað gert þetta án þess að þiggja hjálp frá óprút­tnum náungum.“

Skýrsla og Kastljós

Árið 2011 fjall­aði Kastljós um skýrslu Kroll, þar sem því var haldið fram að Björg­ólfs­feðgar hefðu byggt upp bjór­veldi sitt í Rúss­landi í sam­starfi við spillta rúss­neska stjórn­mála­menn, enda hafi við­skiptaum­hverfið í Rúss­landi verið slíkt á þessum tíma að nán­ast ómögu­legt hafi verið að ná árangri án þess konar póli­tískra tengsla.

Í skýrsl­unni er talið að Jeffrey Galmond hafi haft milli­göngu um sam­skipti Björg­ólfs Thors við rúss­neska áhrifa­menn til fram­dráttar við­skipta­veldi hans.

Björgólfur Thor hefur ávallt neitað þessu og var ósáttur með umfjöllun Kast­ljóss. Þar sagði hann skýrsl­una byggja á dylgjum og slúðri. Lyfja­fyr­ir­tækið Barr Pharmaceuticals hafi óskað eftir skýrsl­unni, en Barr hafi á þeim tíma barist við lyfja­fyr­ir­tækið Actavis, sem var í eigu Björg­ólfs, um lyfja­fyr­ir­tækið Pliva.

Björgólfur sagð­ist aldrei hafa verið í við­skiptum við Jeffrey Galmond eða Leonid Reiman, fyrr­ver­andi sam­skipta­ráð­herra Rúss­lands. Enn­fremur sagði hann það af og frá að menn­irnir hefðu aðstoðað hann við að afla sér við­skipta­sam­banda í Austur-Evrópu.

Heim­ildir:

DV: Berst fyrir virð­ingu

DV: Spill­ingin í Rúss­landi

Vísir: Tengja fjár­mála­veldi við blóðug mafíu­á­tök í Rúss­landi

The Guardian: Next-generation Viking invasion

Morg­un­blaðið: Ævin­týra­þráin látin ráða ferð­inni

Frétta­blaðið – Mark­að­ur­inn: Vina­böndin traust frá Rúss­lands­ár­unum

Við­skipta­blaðið: Björgólfur segir skýrslu Kroll inni­halda dylgjur

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina