Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Guðrún Aspelund, verðandi sóttvarnalæknir: Það eru ýmsir steinar í götunni sem þarf að velta frá

Guðrún Aspelund, verðandi sóttvarnalæknir: Það eru ýmsir steinar í götunni sem þarf að velta frá

„Þessu starfi fylgir mikil ábyrgð og þetta eru stór spor að fara í, að fylgja á eftir Þórólfi; ég geri mér grein fyrir því. En von­andi verður ekki sama ástandið áfram eins og und­an­farin tvö ár,“ segir Guðrún Aspelund sem ráðin hefur verið nýr sótt­varna­læknir frá og með 1. sept­em­ber. Guðrún starfar sem yfir­læknir á sviði sótt­varna hjá emb­ætti land­læknis. „Ég vona að ég standi mig vel þegar ég tek við af Þórólfi sem er búinn að vera frá­bær í þessu starfi og hann er ekk­ert far­inn enn; ég vona að ég hafi aðgang að honum áfram og fái góð ráð en ann­ars hlakka ég til að byrja.“

Inn­lögnum og þeim sem grein­ast með Covid er að fjölga. Hvaða augum lítur Guðrún ástandið í dag?

Örv­un­ar­bólu­setn­ing kemur í veg fyrir alvar­leg veik­indi hjá þessum hópum.

„Við erum að fylgj­ast vel með því, sér­stak­lega spít­ala­inn­lögnum og alvar­legum veik­indum. Þetta er ekki alveg nógu gott en aðgerð­irnar núna mið­ast fyrst og fremst að því að reyna að hvetja til bólu­setn­ingar og auka þátt­töku sér­stak­lega þeirra sem eru aldr­aðir eða við­kvæmir,“ segir Guðrún en nú er farið að bjóða upp á fjórðu spraut­una. „Við ráð­leggjum sér­stak­lega þeim að fara í fjórðu spraut­una sem eru við­kvæmir og þá á ég við aldr­aða – sér­stak­lega þá sem eru átt­ræðir og eldri – og yngra fólk sem er með und­ir­liggj­andi áhættu­þætti og þeim sem eru ónæm­is­bældir af ýmsum ástæðum. Þetta er fólkið sem hefur sýnt sig að er aðal­lega að leggj­ast inn á spít­ala og verða alvar­lega veikt. Rann­sóknir hafa sýnt að örv­un­ar­bólu­setn­ing kemur í veg fyrir alvar­leg veik­indi hjá þessum hópum. Það er því miður þannig að ónæm­is­svarið eftir bólu­setn­ingu dvínar á nokkrum mán­uðum og þess vegna erum við að hvetja til þess að sér­stak­lega þetta fólk fari í örv­un­ar­bólu­setn­ingu. Varðandi aðra þá er ekki átak í gangi en hins vegar má fólk fara í fjórðu spraut­una ef það vill. Það á ekki að vera nein hindrun fyrir þá sem vilja að fara í örv­un­ar­bólu­setn­ingu og það er til nóg af bólu­efni en ágóð­inn fyrir þá er ef til vill minni.“

Fjölbreytt starfsemi

Guðrún tekur form­lega við sem sótt­varna­læknir 1. sept­em­ber eins og þegar hefur komið fram. Hver eru helstu verk­efni sótt­varna­læknis?

Núna erum við sér­stak­lega að gera upp Covid-19 tím­ann.

„Það eru þessi verk­efni tengd Covid-19 og síðan eru bólu­setn­ingar almennt stór þáttur í starf­semi okkar. Núna erum við sér­stak­lega að gera upp Covid-19 tím­ann – þó far­ald­ur­inn sé ekki búinn – en það má segja að nú séu ákveðin kafla­skipti og við höfum áhuga á að fara yfir það, svo sem hvað var vel gert og hvað hefði ef til vill mátt gera á annan hátt. Við þurfum að upp­færa við­bragðs­á­ætl­anir og huga að neyð­ar­birgðum hlífð­ar­bún­aðar og lyfja. Þá er ýmis vöktun stór hluti af okkar starfi; fylgj­ast með hvaða sjúk­dómar eru í gangi, hver tíðni þeirra er og hvort það séu ein­hver frá­vik frá því sem verið hefur áður og ef svo er þá hvers vegna. Við fylgj­umst líka með notkun á sýkla­lyfjum og þá til þess að reyna að sporna við sýkla­lyfja­ó­næmi sem er vax­andi vanda­mál í heim­inum. Síðan höfum við hlut­verk í ýmiss konar fræðslu, upp­lýs­inga­gjöf og for­varn­ar­starfi; það er líka hlut­verk sótt­varna­læknis. Þannig að þetta eru allt verk­efni sem við munum halda áfram með. Síðan hefur verið mikið sam­starf við alþjóða­stofn­anir og það er heldur að aukast ef eitt­hvað er og þá teng­ist það aðal­lega hinum Norð­ur­lönd­unum, öðrum Evr­ópu­löndum og svo Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni. Þar sem við til­heyrum Evrópska efna­hags­svæð­inu þá þurfum við einnig að skila reglu­lega ýmsum gögnum og skýrslum til Evrópsku sótt­varna­stofn­un­ar­innar. Þetta eru þau helstu verk­efni sem eru við­var­andi.“

Yale og Columbia

Guðrún stund­aði nám við Mennta­skól­ann í Reykja­vík og raun­greinar heill­uðu. Það var á þessum árum sem hún ákvað að fara í lækn­is­fræði. „Ég hafði ýmsar hug­myndir sem krakki og ung­lingur um hvað gæti verið spenn­andi en síðan í mennta­skóla fór ég að hugsa meira um þetta. Ég hafði alltaf gaman af raun­greinum í skóla og end­aði svo á að fara í lækn­is­fræði,“ segir Guðrún sem útskrif­að­ist frá MR vorið 1990. Hún segir að það sem hafi heillað sig við lækn­is­fræð­ina sé sam­bland af mann­legum þáttum og vís­indum. „Ég hafði gaman af stærð­fræði en ég hafði ekki hug á að fara í hreinar vís­inda­greinar eins og verk­fræði eða efna­fræði og mér fannst aðlað­andi að vinna með fólki og lækn­is­fræði er einnig vís­inda­grein og þar voru margir mögu­leikar hvað hægt væri að gera í fram­tíð­inni. Mér fannst þetta vera spenn­andi kostur.“

Guðrún er með emb­ætt­is­próf í lækn­is­fræði frá Háskóla Íslands og sér­fræði­menntun í bæði almennum skurð­lækn­ingum og barna­skurð­lækn­ingum. „Ég fór í sér­fræði­nám í Banda­ríkj­unum og var í Yale-háskóla í Connecticut þar sem ég var í fimm ár í námi í almennum skurð­lækn­ingum og svo í tvö ár við rann­sóknir. Svo fór ég til Toronto í Kanada þar sem ég var í sér­fræði­námi í tvö ár barna­skurð­lækn­ingum við Hospital for Sick Children. Eftir það fór ég til New York þar sem ég bjó og starf­aði í 10 ár.“ Guðrún var lektor og barna­skurð­læknir við Col­umbi­a-há­skóla frá 2007 til 2017.

Mér fannst spenn­andi að takast á við eitt­hvað nýtt.

„Ég flutti frá New York til London árið 2018 en mað­ur­inn minn, Gunnar Jak­obs­son, hafði unnið í rúm 20 ár í banka í New York og var beð­inn um að taka að sér starf fyrir bank­ann í London og við ákváðum í sam­ein­ingu að flytja. Það er þannig í lækn­is­fræð­inni að maður getur ekki byrjað að vinna einn, tveir og þrír í nýju landi; það þarf að fá leyfi sem tekur sinn tíma. Ég sótti um leyfi og fékk það á end­anum en á meðan ég var að hugsa minn gang nokkrum mán­uðum eftir að ég flutti til London var aug­lýst starf hjá emb­ætti land­læknis. Mér fannst spenn­andi að takast á við eitt­hvað nýtt svo í stað­inn fyrir að fara að vinna sem skurð­læknir í nýju landi og byrja þar upp á nýtt ákvað ég að gera eitt­hvað allt annað en vera samt í lækn­is­fræð­inni og hjálpa fólki varð­andi lýð­heilsu.“

Guðrún byrj­aði að vinna hjá sótt­varna­lækni árið 2019; fyrst í fjar­vinnu en hún kom þá til lands­ins einu sinni í mán­uði og flutti fjöl­skyldan svo alfarið til lands­ins í mars 2020 en Gunnar hafði þegið starf hjá Seðla­banka Íslands sem vara­seðla­banka­stjóri.

Hjónin eiga tvær dætur sem eru að verða 13 og 16 ára.

Lífið utan vinnu

Hvað með lífið þegar vinn­unni sleppir? Hvað með áhuga­mál og lífs­stíl­inn?

„Mér finnst gaman að úti­veru. Mér finnst skemmti­legt á skíðum; bæði á göngu­skíðum og svig­skíðum. Svo hef ég verið svo­lítið að hlaupa. Ég hef líka gaman af því að teikna og fór í Mynd­list­ar­skól­ann í Reykja­vík í fyrra í öllum þessum látum einnig til að gera eitt­hvað rólegt fyrir sjálfa mig.“ Hver er stíll­inn hjá lækn­inum sem hefur haft gaman af að teikna frá því á æsku­ár­unum? „Blý­ant­steikn­ingar og upp­still­ingar. Skuggar og form. Mér finnst þetta mjög afslapp­andi og eitt­hvað sem ég hef fyrir mig.“

Lífið er ekk­ert auð­velt.

Skuggar og form. Stundum liggur skuggi yfir.

Starfið hefur mótað lækn­inn og nefnir Guðrún sér­stak­lega þegar hún starf­aði sem skurð­læknir á stórum sjúkra­húsum þar sem vinnan og álagið var jafnan mikið. „Ég hef unnið með börnum og útkoman er yfir­leitt góð en auð­vitað ger­ist ýmis­legt og það er alltaf átak­an­legt og sér­stak­lega þegar um lítil börn er að ræða. Maður skilur stundum ekki hvernig fólk kemst í gegnum það. En fólk er ótrú­lega seigt og hefur ein­hvern veg­inn mik­inn vilja og getu til að halda áfram. Það er engin for­múla fyrir því. Lífið er ekk­ert auð­velt. Maður verður að átta sig á því. Það kemur ýmis­legt upp og það eru alls konar erf­ið­leikar. Maður getur ekki ætl­ast til þess að allt sé tóm ham­ingja. Það eru ýmsir steinar í göt­unni sem þarf að velta frá og þannig er bara lífið. Maður verður að taka því sem kemur og gera sitt besta til að vera sáttur við sjálfan sig.“

Guðrún talar um móð­ur­hlut­verkið. „Það er ein­stakt; mikil ábyrgð en mikil gleði sem gefur manni auð­vitað mikið en breytir lífi manns.“

Hún nefnir enn eitt sem hefur valdið ákveðnum þátta­skilum í lífi sínu en það er að móðir hennar lést í fyrra. „Það var eitt­hvað sem slær mann sama hvenær það ger­ist held ég þegar það er ein­hver þér nákom­inn. Það var ákveðin reynsla.“

Hvað vill lækn­ir­inn segja um sorg­ina? „Auðvitað reynir maður að vinna með sorg­ina; halda áfram góðum sam­skiptum við fjöl­skyld­una. Svo getur maður yljað sér við góðar minn­ingar. Ég er þakk­lát fyrir hvað við áttum mömmu lengi og að við höfum pabba enn. Þannig að maður reynir að taka þetta á þeim jákvæðu nótum.“

Hvað vill Guðrún ráð­leggja þeim sem eru að ganga í gegnum sorg? „Ég held það sé gott að tala við fólk; ekki byrgja þetta inni og láta þetta verða að ein­hverjum snjó­bolta sem stækkar. Svo held ég að það sé mik­il­vægt að halda áfram að njóta lífs­ins. Ég held að þeir sem maður saknar myndu ekki vilja að við hættum því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina