Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lýsir harðræði á Bjargi: „Auður Eir sagði að það ætti að ala okkur upp í þrælsótta“

Lýsir harðræði á Bjargi: „Auður Eir sagði að það ætti að ala okkur upp í þrælsótta“

Sonja Ingva­dóttir var ein þeirra stúlkna sem vistaðar voru á stúlkna­heim­il­inu Bjargi á árunum 1965 til 1967. Hún var 14 ára gömul þegar hún var send á heim­ilið og er meðal þeirra sem hefur sakað for­svars­menn og starfs­konur heim­il­is­ins um harð­ræði og ofbeldi.

Sonja var ein þeirra sem stóð að kæru á hendur Bjargi árið 1967. Á end­anum var málið láta niður falla því ekki þóttu nægar sann­anir fyrir hendi til þess að höfða opin­bert mál. Bjarg varð seinna eitt þeirra vist­heim­ila sem ríkið greiddi sann­girn­is­bætur vegna og þótti senni­legt að stúlk­urnar sem þar voru vistaðar hefðu þurft að þola ófor­svar­an­lega með­ferð þeirra sem þar stjórn­uðu og störf­uðu.

Sonja og fleiri konur sem dvöldu á Bjargi hafa borið séra Auði Eiri Vil­hjálms­dóttur þungum sökum, en hún átti frum­kvæði að opnun Bjargs og starf­aði þar þann tíma sem heim­ilið var opið. Hún er meðal ann­ars sökuð um and­legt ofbeldi og að hafa vitað upp á hár hvers konar með­ferð við­gekkst á Bjargi. Hún er sömu­leiðis sögð hafa fyr­ir­skipað ein­angrun og harka­lega með­ferð stúlkn­anna á Upp­töku­heim­il­inu í Kópavogi, þar sem þær hafi verið vistaðar fyrir veru sína á Bjargi og sendar á ef þær óhlýðn­uð­ust.

Eft­ir­far­andi er brot úr frá­sögn Sonju, sem segir sögu sína opin­ber­lega í fyrsta sinn í nýjasta tíma­riti Mannlífs.

Séra Auður Eir á Bjargi

Séra Auður Eir Vil­hjálms­dóttir starf­aði á Bjargi allan starfs­tíma heim­il­is­ins og var nefnd­ar­maður í stjórn þess. Hún var fyrsta konan á Íslandi sem hlaut vígslu til prests árið 1974, en sam­hliða námi sínu í guð­fræði starf­aði hún sem lög­reglu­kona og gegndi því starfi einnig þegar hún vann á Bjargi.

„Auður Eir var ekki þarna á hverjum degi, en kom eins og Grýla þegar við vorum að gera eitt­hvað af okkur. Hún var notuð sem Grýla. Þær sögðu okkur að ef við hög­uðum okkur ekki vel, myndi Auður Eir koma,“ segir Sonja. Hún lýsir því að þrátt fyrir að Anna Ona hafi verið for­stöðu­kona, hafi allir á Bjargi skynjað að það væri Auður sem hefði völdin. „Capo dei capi,“ segir Sonja. Það hug­tak er almennt notað um glæpafor­ingja.

„Auður Eir sagði að það ætti að ala okkur upp í þrælsótta. Þetta er svo ókristið, óheið­ar­legt og við­bjóðs­legt. Og þarna, á Bjargi, ætl­aði Auður Eir að koma sér upp. Þau fengu nátt­úr­lega pen­inga með okkur. Við vorum bara gull­gæsir.“

„Auður Eir sagði að það ætti að ala okkur upp í þrælsótta“

Í við­tali við DV árið 2007 sagði Gísli Gunn­ars­son, sem rann­sak­aði mál Bjargs­stúlkna og hjálp­aði þeim við að leggja fram kæru og leita réttar síns, að for­stöðu­kona Upp­töku­heim­il­is­ins í Kópavogi hafi tjáð honum að lög­reglu­kon­urnar Auður Eir og Guðlaug Sverr­is­dóttir hefðu viljað hafa inni­lokun stúlkn­anna – þegar þær komu þangað í upp­hafi – mun strang­ari en hún hefði sjálf óskað. Þar má til að mynda vísa til vist­unar Sonju á Upp­töku­heim­il­inu fyrstu vik­una.

For­stöðu­konan, Ólöf Þor­steins­dóttir, kom til við­tals við vist­heim­ila­nefnd þegar nokkur vist­heim­ili voru rann­sökuð með til­liti til þess hvort þar hefði harð­ræði verið beitt. Hún gaf einnig skýrslu hjá lög­reglu 25. októ­ber árið 1967, þegar Bjarg var rann­sakað í kjöl­far kærunnar. Í vitn­is­burði sínum sagði hún meðal ann­ars að vist­stúlkur af Bjargi hefðu stundum komið til dvalar á Upp­töku­heim­il­inu. Í öllum til­fellum hefði lög­reglu­kona komið með þær þangað og að hún hefði fengið þau fyr­ir­mæli frá lög­reglu­kon­unni að stúlk­urnar skyldu sæta algerri ein­angrun meðan á dvöl þeirra stæði. Henni hafi þótt ein­angrun og inni­lokun stúlkn­anna harð­neskju­leg og að henni hefði liðið illa vegna þess­ara ströngu fyr­ir­skip­ana. Hún hefði talið að inni­lok­unin hefði ekki góð áhrif á heilsu­far stúlkn­anna og þess vegna hefði hún ekki alltaf farið eftir þeim fyr­ir­mælum. Henni þótti stúlk­urnar frá Bjargi ekki verð­skulda þessa með­ferð.

Fyrr­ver­andi starfs­kona á Upp­töku­heim­il­inu í Kópavogi sagði í við­tali við vist­heim­ila­nefnd að lög­reglu­kona, sem einnig var nefnd­ar­maður í stjórn Bjargs, hefði gjarnan komið með stúlkur á Upp­töku­heim­ilið. Hún hafi fyr­ir­skipað að þær skyldu sæta ein­angrun. Starfs­konan sagði að henni hefði þótt sú ráð­stöfun harka­leg.

Hér má lesa sögu Sonju í heild sinni í nýjasta tíma­riti Mannlífs. Einnig má nálg­ast ókeypis ein­tak í Hagkaup, Bónus og á N1.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina