Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sólveig Guðrún Hannesdóttir Engu í lífinu ætti að taka sem sjálfsögðum hlut

Sólveig Guðrún Hannesdóttir Engu í lífinu ætti að taka sem sjálfsögðum hlut
Sólveig Guðrún Hann­es­dóttir

„Mér þykir afskap­lega vænt um MR en ég hef kennt þar líf­fræði síð­ustu 14 árin og hef átt far­sælt og ánægju­legt sam­starf við öfl­ugan kenn­ara­hóp skól­ans. Mig lang­aði líka að leggja mitt af mörkum til að starf skól­ans styrk­ist á jákvæðan og upp­byggi­legan hátt. Svo eru það  for­rétt­indi að fá að vinna alla daga með ungu fólki og ég hlakka mikið til að vinna með nem­endum og kenn­urum skól­ans í nýju hlut­verki,“ segir Sólveig Guðrún Hann­es­dóttir, nýráð­inn rektor Mennta­skól­ans í Reykja­vík.

Á hvað vill Sólveig leggja áherslu í stöðu rekt­ors? Eru ein­hverjar nýj­ungar fram undan?

Áherslur mínar eru að hlúa að og efla sér­stöðu skól­ans.

„Fram­halds­skólar lands­ins eru margir og fjöl­breyttir. Þeir hafa flestir sína sér­stöðu og styrk­leika og mér finnst mik­il­vægt að halda í fjöl­breyti­leik­ann svo hægt sé að bjóða sem flestum nám á fram­halds­skóla­stigi við sitt hæfi. MR er bók­náms­skóli með aðal­á­herslu á að búa nem­endur undir áfram­hald­andi nám. Áherslur mínar eru að hlúa að og efla sér­stöðu skól­ans, sem er öfl­ugt mála- og raun­greina­nám, en jafn­framt að bjóða upp á heil­steypt nám í deildum með fjöl­breytt úrval val­greina sem fanga áhuga­svið nem­enda.

Félags­líf nem­enda er öfl­ugt í MR. Í skól­anum er ekki eitt skóla­fé­lag heldur tvö: Skóla­fé­lagið og Fram­tíðin. Einnig eru tvö leik­fé­lög, annað gam­al­gróið, elsta leik­fé­lag lands­ins, Herra­nótt, og hitt yngra, Frú­ar­dagur. Leik­fé­lögin setja upp sitt­hvort leik­verkið hvort miss­erið. Það er alltaf gaman að sjá nem­endur blómstra í því sem þau hafa brenn­andi áhuga á. Mennta­skóla­nem­endur eru með ein­dæmum hug­mynda­ríkir og dríf­andi hópur og mig langar til að sam­starfið við félögin í skól­anum sé sem allra best og að rektor geti stutt við virkt og skemmti­legt félags­starf.“

Hvað vill Sólveig segja um mis­jöfn tæki­færi fólks til að kom­ast í fram­halds­skóla og í þá skóla sem það vill fara – svo sem inn­flytj­endur sem flosna sumir hverjir upp úr skóla. Hvað þarf að gera til að jafna tæki­færi ungs fólks til náms?

Auðvitað þarf að bregð­ast við auk­inni þörf á íslensku­kennslu fyrir nem­endur með annað móð­ur­mál.

„Í MR, eins og í öðrum fram­halds­skólum lands­ins, hefur auk­ist aðsókn nem­enda með annað móð­ur­mál en íslensku. Einnig koma nem­endur inn í skól­ann sem hafa búið stóran hluta ævinnar í öðru landi og hafa ekki fengið mikla íslensku­kennslu fram að því. Tekið er til­lit til þess­ara þátta í námi og prófum og í vetur buðu eldri nem­endur upp á stuðn­ing við yngri nem­endur í skól­anum en auð­vitað þarf að bregð­ast við auk­inni þörf á íslensku­kennslu fyrir nem­endur með annað móð­ur­mál. Nemendur sem sækja í MR eru margir hverjir gríð­ar­lega dug­legir náms­menn og standa sig fram­úr­skar­andi vel í því sem þeir taka sér fyrir hendur. Auðvitað er líka stór hópur sem þarf aukið utan­um­hald eða sér­þjón­ustu og þá er bekkj­ar­kerfi oft kostur með umsjón­ar­kenn­ara sem fylgist með umsjón­ar­nem­endum sínum og stoð­þjón­ustu skól­ans; góðum náms­ráð­gjöfum og hjúkr­un­ar­fræð­ingi sem fylgja skjól­stæð­ingum sínum vel eftir.“

Tolleringar og dimissio

MR er gam­all skóli sem á sér sögu; hvaða máli skiptir fyrir Sólveigu að verða rektor í slíkum skóla? „Þegar ég hóf nám í MR heill­að­ist ég af aðal­bygg­ingu skól­ans, Gamla skóla. Andinn þar fannst mér hlýr og nota­legur og finnst enn. Mér fannst líka gaman að langri sögu skól­ans og hefðum. Skóla­bragur er góður og finn ég fyrir því þegar ég hitti útskrif­aða nem­endur á förnum vegi eða mæti afmæl­is­ár­göngum í árlegu júbílanta­balli skól­ans að margir bera sterkar taugar til skól­ans þó ára­tugir líða frá útskrift.“

Hvaða saga / hefð í skól­anum finnst Sólveigu vera áhuga­verð­ust / merki­leg­ust?

„Mér finnst tveir skemmti­leg­ustu dagar árs­ins vera toller­ingar nýnema og dimissio í lok kennslu á vorin. Nýnemar skól­ans eru boðnir vel­komnir með athöfn og toller­ingum úti á túni skól­ans. Dagurinn ein­kenn­ist af gleði og jákvæðri orku og í lokin er nýnemum boðin súkkulaði­kaka og mjólk. Við dimissio kveðja sjöttu bekk­ingar kenn­ara eftir árin sín í MR og halda út í próflestur. Þetta er oft trega­bland­inn dagur því þó galsi og gleði fylgi dimmiter­end­unum finnst mörgum erfitt að kveðja skól­ann sinn eftir þrjú skemmti­leg ár.“

Nám á að vera krefj­andi og ögrandi en líka skemmti­legt.

Sólveig er spurð hvað hún hafi í raun­inni lært af því að vera kenn­ari í öll þessi ár og hvaða áhrif það hafi haft á hana.

„Það er afskap­lega gef­andi að vinna náið með ungu fólki. Mér finnst líf­fræði skemmti­leg og ég vona að ég hafi náð að smita ein­hverja nem­enda minna af áhuga á fag­inu. Mér finnst alltaf jafn­gaman að sjá og upp­lifa nem­endur blómstra og finna sig í því sem þeir hafa áhuga á. Annað sem hægt er að læra af mennta­skóla­nemum er að taka sig ekki of alvar­lega. Nám á að vera krefj­andi og ögrandi en líka skemmti­legt.“

Doktor í ónæmisfræði

Eftir útskrift frá Háskóla Íslands með B.S.-próf í líf­fræði fór Sólveig í dokt­ors­nám í ónæm­is­fræði við Uni­versity College í London. „Ég ber sér­stakar taugar til London og þar átti ég góðan og þrosk­andi tíma í námi við þennan virta háskóla. Námið á Íslandi bjó mig vel undir fram­halds­námið í Bret­landi en námið var krefj­andi og reyndi á þraut­seigju og þol. Eftir dvöl við nám erlendis mynd­uð­ust tengsl við sam­starfs­fólk alls staðar að úr heim­inum sem hald­ast enn í dag. Ég tel að öllum sé hollt að búa í öðru landi um hríð og kynn­ast öðrum menn­ing­ar­heimum en sínum eigin.“

Vísindi og rann­sóknir finnst mér heill­andi.

Að loknu dokt­ors­námi vann Sólveig við vís­inda­rann­sóknir á ónæm­is­fræði­deild Land­spít­al­ans með öfl­ugum hópi vís­inda­manna undir stjórn Ingi­leifar Jóns­dóttur pró­fess­ors. „Vísindi og rann­sóknir finnst mér heill­andi og þar kynnt­ist ég líka kennslu en ég kenndi nokkra áfanga í ónæm­is­fræði í stunda­kennslu við HÍ. Kennslan höfð­aði sterkt til mín og ég ákvað að taka kennslu­rétt­inda­próf við HÍ og sækja um kenn­ara­starf við MR. Ég nýt þess að kenna og ég tel að fáir end­ist í því starfi til lang­frama nema þeir njóti þess.“

Gönguferðir um landið

Sólveig seg­ist helst kjósa að verja frí­tíma sínum með fjöl­skyldu og vinum.

„Ég á stóra fjöl­skyldu en við mað­ur­inn minn, Jónas Páll Jónasson, eigum fimm börn saman.  Við útskrif­uðum tvö þau elstu úr fram­halds­skólum í fyrra­vor, dóttur mína úr MR og stjúp­son úr Borg­ar­holts­skóla. Mið­barnið útskrif­að­ist úr grunn­skóla í vor og yngstu tveir drengirnir eru níu og sjö ára. Við ferð­umst mikið saman innan- og utan­lands og njótum sam­vista í sum­ar­bú­stað fjöl­skyld­unnar í Þing­valla­sveit auk þess sem við fylgjum krökk­unum á ýmis íþrótta­mót árið um kring í fót­bolta og sér í lagi í körfu­bolta.

Í fyrra­sumar gengum við á Herðu­breið.

Við hjónin eigum ýmis sam­eig­in­leg áhuga­mál, enda bæði líf­fræð­ingar að mennt, þó á ólíkum sviðum, og höfum gaman af göngu­ferðum um landið. Í fyrra­sumar gengum við á Herðu­breið í skemmti­legum hópi og var sú lífs­reynsla ógleym­an­leg. Ég hef líka verið svo heppin sitja í stjórn félags líf­fræði­kenn­ara, Samlíf, og fá að taka þátt í ótal sum­ar­nám­skeiðum með þeim, nú síð­ast í síð­ustu viku í ferð með Þóru Ellen Þóralls­dóttur pró­fessor sem kenndi okkur plöntu­grein­ingar í Núp­staða­skógi og sýndi okkur til­raun­areiti í sjálf­sprottnum birki­breiðum á Skeið­ar­ár­sandi.“

Njóta hvers dags

Hvaða lífs­reynsla hefur mótað nýja rekor­inn?

Þá horf­inn inn í heim Alzheimersjúkdómsins.

„Ekkert eitt í líf­inu hefur mótað mig heldur er ég þeirrar skoð­unar að svo lengi lærir sem lifir.  Ég hef átt því láni að fagna að hafa ein­stak­linga í kringum mig sem hafa hvatt mig og stutt í öllu sem ég hef tekið mér fyrir hendur en það er alls ekki sjálf­gefið. Faðir minn, Hannes Pét­urs­son, pró­fessor í geð­lækn­ingum, var vís­inda­maður og fræði­maður í sinni grein og smit­aði okkur systur af sínum áhuga. Ég leit­aði mikið til hans um ráð og stuðn­ing en hann féll frá fyrir ári síðan, þá horf­inn inn í heim Alzheimersjúkdómsins; lífs­reynsla sem hefur kennt mér og okkur í kringum hann að engu í líf­inu ætti að taka sem sjálf­sögðum hlut og njóta hvers dags sem gefst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina