Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fleiri stíga fram vegna plássleysis á sjúkrahótelum á Akureyri: „Hefur neikvæð andleg áhrif“

Fleiri stíga fram vegna plássleysis á sjúkrahótelum á Akureyri: „Hefur neikvæð andleg áhrif“

Kona frá Aust­ur­landi sem þarf að fæða barn sitt á Akureyri, kemst hvergi að á sjúkra­hót­elum. Er þetta annað dæmi á stuttum tíma sem upp kemur um pláss­leysi sjúkra­hót­ela á Akureyri.

Sjá einnig: Rannveig á að eiga á Akureyri í sumar en fær ekki inn á sjúkra­hót­elum: „Ég er svo reið og sár“

„Ef ekki væri fyrir náð og mis­kunn vina­fólks for­eldra minna á Akureyri þá værum við bara í hörmu­legum málum þegar okkar fyrsta barn á að koma í heim­inn,“ segir Guðgeir Ein­ars­son á Egils­stöðum í sam­tali við Aust­ur­frétt.

Um miðjan ágúst eiga Guðgeir og kona hans, Ragna Lind Rík­arðs­dóttir von á barni sínu en vegna þess að með­ganga Rögnu flokk­ast sem áhættu­með­ganga er aðeins í boði fyrir þau að fæða á Akureyri eða í Reykja­vík en ekki á umdæm­is­sjúkra­hús­inu í Nes­kaups­stað eins og þau von­uðu.

„Okkur var gert ljóst  að þar sem um áhættu­með­göngu er að ræða og syk­ur­sýkis­með­göngu sömu­leiðis gætum við ekki átt barnið í fjórð­ungnum okkar hér fyrir austan. Okkur var gert að fæða barnið fyrir sunnan eða norðan og af tvennu slæmu þá völdum við Akureyri en komumst fljótt að því að þar er enga gist­ingu að hafa. Hvorki á sjúkra­hót­elum né heldur í íbúðum stétt­ar­fé­laga. Við könn­uðum málið hjá einum sjö mis­mun­andi stétt­ar­fé­lögum en allt var upp­bókað.“

Guðgeir segir í sam­tali við Aust­ur­frétt að með­gangan gangi vel og til­hlökk­unin sé mikil hjá þeim að eign­ast sitt fyrsta barn. Vand­ræðin við að redda gist­ingu hafi þó skyggt á gleð­ina.

„Okkur lang­aði bæði að eign­ast barnið í þeim lands­fjórð­ungi þar sem við búum en í stað­inn þurfum við til Akur­eyrar og burt­séð frá hús­næð­is­vand­ræðum þá er þetta alls ekki boð­leg heil­brigð­is­þjón­usta. Á Akureyri verðum við ein og fjarri vinum og ætt­ingjum sem auð­vitað hefur nei­kvæð and­leg áhrif á ein­hverri mestu gleði­stund sem nokkur mann­eskja getur átt. Mér er mikið til efs að barns­haf­andi mæður fyrir sunnan myndu sætta sig við svona þjón­ustu.“

Er Aust­ur­frétt spurði Guðgeir hvort starfs­fólk Heil­brigð­is­stofn­unar Aust­ur­lands hafi ekki hjálpað þeim við að skipu­leggja ferð­ina norður, svar­aði hann því til að sú hjálp hafi falist í að benda þeim á sjúkra­hótel og íbúðir í eigu stétt­ar­fé­laga.

„Ég vil ekki lasta starfs­fólkið neitt enda ekki þeim að kenna að svona er staðan en þau gáta bara bent okkur á hluti sem við vissum fyrir. Mér finnd­ist ein­hvern veg­inn eðli­legt að ef fólk má ekki eiga börn í sínu nærum­hverfi og sé bein­línis sent langt í burt í sjálf­sagða heil­brigð­is­þjón­ustu þá eigi skil­yrð­is­laust að bíða hús­næði á þeim stað. Fólk á ekki að þurfa að fara á taugum við að redda sér hús­næði lengst í burtu í ofaná­lag við allt annað kringum með­göngu.“

Mannlíf hefur sent fyr­ir­spurnir á heil­brigð­is­ráðu­neytið um skort á gisti­plássi fyrir fólk sem þarf að sækja heil­brigð­is­þjón­ustu á Akureyri og mun fjalla um svör ráðu­neyt­is­ins, ber­ist þau á annað borð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil