Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Rannveig á að eiga á Akureyri í sumar en fær ekki inn á sjúkrahótelum: „Ég er svo reið og sár“

Rannveig á að eiga á Akureyri í sumar en fær ekki inn á sjúkrahótelum: „Ég er svo reið og sár“
Rannveig Lóa og Bangsi heit­inn Mynd: Facebook

Svo virð­ist sem ramma­samn­ingur Sjúka­trygg­inga Íslands um gisti­þjón­ustu fyrir fólk sem þarf að sækja heil­brigð­is­þjón­ustu á Akureyri, skyldi sjúkra­hótel ekki til að eiga laus her­bergi en á háanna­tímum er ómögu­legt að fá gist­ingu.

Kona frá Egils­stöðum, sem þarf að sækja heil­brigð­is­þjón­ustu á Akureyri þegar hún fæðir barn sitt í sumar, fær ekki inn á Hótel Akureyri, sem Sjúkra­tryggin Íslands er með samn­ing við, vegna pláss­leysis. Ferða­menn ganga fyrir. Konan, Rannveig Lóa Har­alds­dóttir skrif­aði færslu þar sem hún segir frá mál­inu en hún gaf Mannlífi góð­fús­legt leyfi til að birta hana í heild sinni.

„Hversu magnað er sjúkra­trygg­inga­kerfi Íslands. Svo magnað að eini ramma­samn­ing­ur­inn um gisti­þjón­ustu fyrir fólk sem þarf að sækja heil­brigð­is­þjón­ustu á Akureyri er gerður við Hótel Akureyri sem neitar sjúk­lingum um þjón­ustu og veitir ferða­mönnum for­gang.

Nú þarf ég á Akureyri að bíða eftir að fæða barnið mitt. Þetta er mitt fyrsta barn og ómögu­legt að segja nákvæm­lega hvenær hann ákveður að frum­sýna sig. Þar að leið­andi mælir ljós­móðir með að ég fari eitt­hvað fyrir settan dag norður og bóki mér gist­ingu í gegnum sjúkra­hót­elið sem er þar. Ég hef verið á biðlista eftir íbúð hjá afl stétt­ar­fé­lagi síðan í byrjun Maí og er í for­gangi ef ein­hver afbókar en þar bókast allt mjög hratt og vel setið um þær íbúðir. (Hef bara fengið æðis­lega þjón­ustu hjá Afl og er ekki að setja út á þá)

Hótel akur­eyri gefur sig út fyrir að vera með samn­ing við SÍ og hefur aug­lýst sig sem sjúkra­hótel í dag­skránni, á síðu SAK og á fleiri stöðum. Við hringdum þangað og stað­festum að ég væri með þá papp­íra sem þarf til að eiga rétt á gist­ingu, fengum strax þau svör að það væri nú ómögu­legt að fá gist­ingu án þess að þau þyrftu að færa til marga gesti og þetta yrði svaka­lega mikið vesen. Gott og blessað þau mega færa alla gest­ina mín vegna. Þau sögðu að þau þyrftu að fá þessar upp­lýs­ingar í emaili og eg fengi svör bráð­lega. Ég sendi email og fékk engin svör.

Ég hringdi því áðan og fékk að tala við ein­hvern yfir­mann sem mér skilst að sé hót­el­stjór­inn sem sagði að þau gætu boðið mér eina nótt, 12-13 ágúst. Þau væru ekki „sjúkra­hótel“ og ég gæti ekki ætl­ast til að fá gist­ingu á háanna­tíma ferða­manna. Eftir því sem hún ræddi lengur við mig varð hún svo ákveðn­ari í að ekk­ert væri i boði og ég ætti að leita annað, þau gætu ekk­ert fyrir mig gert. Ég fékk engin svör varð­andi hvort það væri ekki gert ráð fyrir að þjón­usta sjúk­linga á sumrin þrátt fyrir ferða­menn, fyrst þau eru með þennan samn­ing né neinar lausnir. Það eina sem ég fékk var stælar og dóna­skapur.Ég er svo reið og sár yfir þess­ari fram­komu og hneyksluð á því að ekki séu til nein úrræði. Þetta hótel sem sér­stak­lega aug­lýsir sig sem sjúkra­hótel er svo pen­inga­gráð­ugt. Ég á ekki til orð!

Ég veit að það er mjög óhent­ugt fyrir gisti­staði að þurfa hýsa gesti í viku eða tvær sam­fleytt, en ég er ekki í neinu lík­am­legu ástandi til að geta staðið í því að flakka á milli gisti­staða milli daga í allt að 3 vikur ef ég geng fram­yfir settan dag.“

Ekki sjúkrahótel

Mannlíf hringdi á Hótel Akureyri, sem á heima­síðu Sjúkra­húss­ins á Akureyri er flokkað sem sjúkra­hótel og tal­aði við Þuríði Þórð­ar­dóttur, sem er einn af eig­endum hót­els­ins og spurði hana út í málið. Vildi hún meina að hót­elið væri ekki eig­in­legt sjúkra­hótel, líkt og þekk­ist í Reykja­vík.

„Ég veit eig­in­lega ekki hvernig ég á að svara þessu, við reynum alltaf að taka við þeim sem við mögu­lega getum, ef eitt­hvað er laust. Það var ung kona sem hringdi og ætl­aði að vera í tvær vikur en það eru bara svo margir dagar inn í þessu sem ég á ekki til. Þetta er ekki sjúkra­hótel hjá okkur en við erum með þannig samn­ing við Sjúkra­trygg­ingar Íslands að við tökum við fólki sem þarf að fara á spít­ala. Þá virkar það þannig að það borgar eitt­hvað minna fyrir nótt­ina og Sjúkra­trygg­ingar borga rest­ina. Og þetta hefur yfir­leitt alltaf verið þannig að við höfum getað tekið á móti fólki þó alltaf getið eitt­hvað komið upp á,“ sagði Þuríður og bætti við að Sjúkra­húsið á Akureyri ætti íbúðir sem fólk getur fengið og að hún hefði verið búin að athuga það hvort það væri ekki mögu­leiki að koma kon­unni inn þar en það sé full­bókað.

„Samkvæmt þessum samn­ingi ber mér ekki skylda til að hafa laus her­bergi til reiðu en auð­vitað eru allir hálf laskaðir eftir þessa tveggja ára krísu en auð­vitað tökum við sjúkra­trygg­ing­arnar ef við eigum laust. Ef það væri ákvæði í samn­ingnum sem segði að við yrðum að halda aftur sex her­bergjum fyrir fólk sem þyrfti á því að halda, þá væri þetta auð­vitað allt annað mál en við erum bara lítið fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki, það er ég, gamla mamman, sonur minn og tengda­dóttir sem erum að lemj­ast áfram, það er bara þannig,“ sagði Þuríður og tók undir með blaða­manni að vanda­málið væri til staðar og að betra væri ef Sjúkra­trygg­ing­arnar tryggðu betur gisti­að­stöðu fyrir fólk sem þyrfti á heil­brigð­is­þjón­ustu að halda. „Ég er hjart­an­lega sam­mála því af því að það væri eðli­legra ef gerðar væru aðrar ráð­staf­anir og það þyrfti í raun­inni því þetta er svo stór partur af land­inu.“

Mannlíf reyndi að heyra í Sjúkra­trygg­ingum Íslands við gerð frétt­ar­innar en búið var að loka stofn­un­inni í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina