Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jónas kemur út úr skápnum: „Ég get laðast að fleiri en einni manneskju“

Jónas kemur út úr skápnum: „Ég get laðast að fleiri en einni manneskju“

„Það er Pride, er þá ekki við­eig­andi að koma útúr skápnum? – Eða a.m.k. einum þeirra. Ég er fjöl­kær (e. polyamourous). Hvað þýðir það og hvaða máli skiptir það? Jú, ég get haft til­finn­ingar fyrir eða lað­ast að fleiri en einni mann­eskju í einu. Kemur þetta ein­hverjum við? Í raun­inni ekki, ekki nema sjálfum mér og þeim sem að kjósa að vera í sam­bandi með mér eða eiga ein­hvers­konar teng­ingu með mér.“

Þetta skrifar Jónas Tryggvi Stef­áns­son á Facebook og hefur hann gefið Mannlífi góð­fús­legt leyfi til að end­ur­birta orð hans. Í dag er gleði­gangan gengin og því vel við hæfi að minna á að í dag fagna fleiri en hommar, les­b­íur og trans­fólk. Jónas lýsir hvað felst í því að vera fjöl­kær.

„Það að ég sé fjöl­kær þarf ekki endi­lega að þýða að ég sæk­ist eftir fjöl­kærum sam­böndum, en ef ég kýs að gera það þá er það mitt val sem að kemur í sjálfu sér engum öðrum við nema mér og þeim sem ég er í sam­bandi með. Þetta þýðir ekki heldur að þeir ein­stak­lingar sem að ég mun koma til með að vera í sam­böndum með í fram­tíð­inni þurfi endi­lega að vera fjöl­kærir,“ segir Jónas.

Hann segir tvær ástæður fyrir því að hann segir frá þessu. „Í fyrsta lagi held ég að þetta sé miklu algeng­ara en við þorum að við­ur­kenna og mér finnst mik­il­vægt að norma­læsera það. Þetta er ekki það flókið. Hefur þú aldrei verið hrifin(nn) af tveimur ein­stak­lingum á sama tíma? Hefur þú aldrei orðið hrif­inn af nýjum aðila á sama tíma og þú varst hrifin(nn) af fyrr­ver­andi maka? Well, þá ertu lík­lega fjöl­kær – en maður þarf ekki endi­lega að iðka fjöl­kær sam­bönd þó að maður sé fjöl­kær, en það má og það gæti skipt máli,“ segir Jónas.

Enn fremur seg­ist Jónas vona að hann geti með þessu veitt öðrum þor til að vera það sjálft. „Í öðru lagi þá lýt ég á það sem sigur ef að mitt skref getur gefið einni annarri mann­eskju þor eða leyfi til þess að lifa eftir sínum gildum og eftir því hver við­kom­andi er í raun og veru. Mundu samt, þú þarft ekki leyfi frá neinum nema sjálfum þér til þess. Það er vont að vera hafnað fyrir það hver maður er, en það er verra að vera sam­þykkt(ur) fyrir eitt­hvað sem maður er ekki,“ segir Jónas.

Hann seg­ist nýlega hafa upp­götvað þetta. „Hvernig komst ég að þessu? Jú. Fyrr á árinu kynnt­ist ég ynd­is­legri konu sem að ég fór í sam­band með og ég byrj­aði að vera mjög hrif­inn af henni. Á sama tíma fann ég að ég var ennþá ást­fang­inn af fyrr­ver­andi. Ég veit ekki með ykkur, en mér finnst þetta bara fal­legt. Þetta þarf ekki að vera flókn­ara en þetta. Því miður gekk það sam­band ekki upp heldur á þeim tíma útaf öðrum atriðum, en ég ber hlýjan hug til við­kom­andi og ég þakka fyrir þessa upp­götvun mína.“

Hann óskar svo öllum lands­mönnum til ham­ingju með dag­inn. „Hversu fal­legt er það að hafa næga ást að gefa og að þurfa ekki að bíða eftir því að fyrri ást deyji, áður en maður getur byrjað að rækta nýja? Ég óska ykkur öllum til ham­ingju með dag­inn og hvet ykkur til þess að vera eins og þið eruð og að leyfa þeim sem að eru öðru­vísi en þið að vera eins og þau eru, jafn­vel þó að þið skiljið það ekki. Ég skil ykkur ekki öll heldur og leyfi ykkur að vera eins og þið eruð,“ segir Jónas.

Að lokum deilir hann ljóði vin­konu sinnar. „Mig langar að enda þetta með því að láta hér með fylgja fárán­lega fal­legt ljóð eftir vin­konu mína, Þór­hildur Magn­ús­dóttir, sem heldur úti upp­lýs­inga­fræðslu­síð­unni Sund­ur­og­saman á Instagram, sem ég hvet ykkur til þess að skoða – en þar hjálpar hún fólki að lifa lífi sínu eftir sínum gildum og að vera í sam­böndum sem að þjóna þeim, en ekki öfugt. Takk fyrir að leyfa mér að deila:

„Líf gef mér æðru­leysi

til að sætta mig við mig eins og ég er,

kjark til að vera eins og ég vil,

en ekki eins og sam­fé­lagið ætl­ast til að ég sé

og visku til að greina þar á milli.

Að lifa einn dag í einu,

njóta hvers and­ar­taks fyrir sig,

við­ur­kenna mót­læti sem fáfræði og for­dóma,

með því að taka til­ver­unni eins og hún er,

alls­konar, skrítin, skemmti­leg, til­vilj­ana­kennd, órétt­lát, síbreyti­leg

og treysta því að allt fari á réttan veg

ef ég lifi í ást og hug­rekki

svo að ég megi vera hæfi­lega ham­ingju­söm í þessu lífi

og algjör­lega fabulous eins og ég er!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina