Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Svandís Svavarsdóttir úthlutar um 600 milljónum: „Ísland á réttri leið sem matvælaland“

Svandís Svavarsdóttir úthlutar um 600 milljónum: „Ísland á réttri leið sem matvælaland“
Svandís Svav­ars­dóttir í við­tali hjá Guðna Ágústs­syni

Svandís Svav­ars­dóttir, mat­væla­ráð­herra hefur úthlutað 584,6 millj­ónum króna úr Mat­væla­sjóði. Alls hljóta 58 verk­efni styrk en 211 umsóknir bár­ust til sjóðs­ins.

Verk­efnin eru:

  • Hringrás­ar­hænur í bak­görðum
  • Þróa sæl­kera­vöru úr lamba- og kinda­slögum
  • Mark­aðsá­tak í útflutn­ingi á íslensku viskýi
  • Aukin bragð­gæði og áferð íslensks fisks með hæg­meyrnun
  • Vist­hæf­ing land­eldis
  • Bæti­efna­drykkir með íslenskum þör­ungum
  • Eftirlit og upp­runa­vottun fyrir íslenskar salt­fisks­furðir
  • Prótein­fram­leiðsla úr grasi
  • Frum­þróun bragð­efna úr þangi fyrir aust­ur­lenskan mat
  • Við­skipta­á­ætlun fyrir mjólk­urfé og sauða­osta­gerð
  • Fol­alda­jerky og -hrápylsur
  • Verð­mæta­sköpun úr hlið­ar­af­urðum bjór­gerðar

„Sá sköp­un­ar­kraftur og sú áræðni sem íslenskir mat­væla­fram­leið­endur búa yfir er sér­stakt ánægju­efni og sýnir áþreif­an­lega að Ísland er á réttri leið sem mat­væla­land. Það gleður mig einnig að sjá að hlut­föll á milli kynja eru nær jöfn,“ segir Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra.

Mat­væla­sjóður veitir styrki í fjórum styrkja­flokkum: Báru, Keldu, Afurð og Fjár­sjóði.

Bára styrkir verk­efni á hug­mynda­stigi. Styrk­þegar geta verið fyr­ir­tæki sem stofnuð eru á síð­ustu fimm árum. Einnig frum­kvöðlar sem vilja þróa hug­mynd, hrá­efni eða aðferðir sem tengj­ast íslenskri mat­væla­fram­leiðslu.

Kelda styrkir verk­efni sem miða að því að afla nýrrar þekk­ingar sem styður við mark­mið sjóðs­ins um nýsköpun, sjálf­bærni, verð­mæta­sköpun og sam­keppn­is­hæfni íslenskrar mat­væla­fram­leiðslu.

Afurð styrkir verk­efni sem komin eru af hug­mynda­stigi en eru þó ekki til­búin til mark­aðs­setn­ingar. Styrk­veit­ingar miða að því að gefa styrk­þegum tæki­færi til að móta og þróa afurðir úr hrá­efnum sem falla til við mat­væla­fram­leiðslu og stuðla þar með að verð­mæta­sköpun.

Fjár­sjóður styrkir verk­efni sem hafa það mark­miði að styrkja mark­aðsinn­viði og stuðla að mark­aðs­sókn afurða tengdum íslenskri mat­væla­fram­leiðslu.

Hlutverk Mat­væla­sjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við fram­leiðslu og vinnslu mat­væla og hlið­ar­af­urða úr land­bún­aðar- og sjáv­ar­af­urðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálf­bærni, verð­mæta­sköpun og sam­keppn­is­hæfni íslenskrar mat­væla. Sjóðnum er einnig heim­ilt að styðja við vöru­þróun og mark­aðs­sókn á erlendum mörk­uðum. Sjóð­ur­inn fylgir eftir heims­mark­miðum Sam­ein­uðu þjóð­anna. Í þessum til­gangi styrkir sjóð­ur­inn verk­efni og rann­sóknir ein­stak­linga og lög­að­ila.

Sjá nánar á heima­síðu mat­væla­sjóðs.
Nánari upp­lýs­ingar um úthlutun sjóðs­ins (pdf)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina