Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gorbatsjov er látinn: Illugi og Gunnar Smári minnast hans

Gorbatsjov er látinn: Illugi og Gunnar Smári minnast hans
Illugi Jök­uls­son, blaða­maður, Mikhaíl Gor­bat­sjov og Gunnar Smári Egilsson. Samsett mynd.

Míkhaíl Gor­bat­sjov, síð­asti leið­togi Sov­ét­ríkj­anna, er lát­inn 91 árs að aldri. Gor­bat­sjov hafði verið að glíma við veik­indi í langan tíma og lést á spít­ala í Moskvu­borg í dag.

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Illugi Gunn­ars­son skrifar pistil vegna and­láts­ins. En hann seg­ist hafa verið þakk­látur fyrir það að Gor­batsjev hafi verið við völd frekar en ein­hver annar þegar Soví­et­ríkin féllu.

Illugi Jök­uls­son, blaða­maður.

„Gor­batsjev er dáinn, 91 árs. — Hann hefur lengi verið í meiri metum á Vest­ur­löndum en heima í Rúss­landi. Vest­ur­landa­menn meta hann mik­ils fyrir mann­eskju­legt and­litið sem hann færði Sov­ét­ríkj­unum á enda­sprett­inum og þó enn frekar fyrir að hafa ekki reynt að streyt­ast gegn hrun­inu með vopna­valdi af ein­hverju tagi. Það hefði endað með ósköpum, ægi­legum ósköpum.

Austur í Rúss­landi hafði hrunið hins vegar í för með sér svo mikla erf­ið­leika, sem ekki er búið að bíta úr nál­inni með enn, að þeir sem kenna honum bein­línis um hrunið hafa ímug­ust á honum. Á sínum tíma hvarfl­aði ekki að neinum (held ég) að Sov­ét­ríkin gætu hrunið. En eftir á að hyggja var það eflaust óhjá­kvæmi­legt. Og þá var vissu­lega betra, ójá, svo miklu betra að hann væri við stjórn­völ­inn en ýmsir aðrir.“

Reagan og Gorbatsjov í Höfða í lok kalda stríðsins

Fyrr­ver­andi for­seti Banda­ríkj­anna Ronald Reagan og Mikaíl Gor­bat­sjov, fyrr­ver­andi for­ystu­maður kommunísta­flokks­ins í Rúss­landi í Höfða, 11. októ­ber 1986.

Gor­bat­sjov kom hingað til lands árið 1986 og fund­aði með Ronald Reagan, þáver­andi for­seta Banda­ríkj­anna, í Höfða vegna Kalda stríðs­ins. Fund­ur­inn er einn sá þekkt­asti í sög­unni en lítið kom upp úr honum. Leið­tog­arnir komust ansi nálægt því að úti­loka notkun kjarn­orku­vopna í stríð­inu en tókst ekki að semja um það í Reykja­vík.

Kalda stríð­inu lauk árið 1991 þegar Sov­ét­ríkin féllu en árið áður hafði Gor­bat­sjov fengið Frið­ar­verð­laun Nóbels fyrir hlut­verk sitt í að bæta sam­skipti vest­urs­ins og aust­urs­ins.

Raissa Gor­bat­sjov, Míkhaíl Gor­bat­sjov og Vigdís Finn­boga­dóttir í Höfða árið 1986.

„Gor­bat­sjov ætti að verða vernd­ar­dýr­lingur draum­óra­fólks í stjórn­málum,“ segir Gunnar Smári Egilsson í færslu í kjöl­far frétta um and­lát hans. Hér má lesa færslu Gunnars í heild sinni:

Gunnar Smári Egilsson, með­limur í Sosí­alista­flokki Íslands.

„Gor­bat­sjov er eini aðal­rit­ari sov­éska komm­ún­ista­flokks­ins sem lék í aug­lýs­ingu fyrir töskur Louis Vuitton. Mér finnst þessi mynd tákn­ræn fyrir þá harm­sögu­per­sónu sög­unnar sem þessi maður varð. Kannski verður ein­hvern tím­ann samin ópera um Gor­bat­sjov, John Adams ætti að geta kastað í eina. Jeltsín gæti orðið comic relief, velt­andi um sviðið fullur milli þess sem hann reigir sig eins og hani. Gor­bat­sjov væri hins vegar djúpur bassi í ein­ræðum um glasnost og per­estrojku, sem eng­inn almenni­lega áttar sig á hvað er. Gor­bat­sjov kenndi okkur að það er ekki hægt að upp­hugsa lausnir á sam­fé­lagi sem hefur ekki í sér neinar stofn­anir eða sam­tök, engan vett­vang til að láta hags­muni og hug­myndir takast á. Sam­fé­lags­mót­unin er ekki sam­keppni um hver er með snjöll­ustu hug­mynd­ina. Hún er nið­ur­staða átaka sem sýnir hver hafa mesta aflið. Gor­bat­sjov ætti að verða vernd­ar­dýr­lingur draum­óra­fólks í stjórn­málum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina