Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigurlaug Margrét Jónasdóttir: „Ég lá bara og hlustaði á andardrátt þeirra“

Sigurlaug Margrét Jónasdóttir: „Ég lá bara og hlustaði á andardrátt þeirra“
Sig­ur­laug Margrét Jón­as­dóttir

Sig­ur­laug Margrét Jón­as­dóttir. Útvarps­kona sem dregur ótrú­leg­ustu hluti út úr við­mæl­endum sínum. Hún talar við Reyni Trausta­son meðal ann­ars um hvernig hún haldi að það sé að vera útvarps­stjóri og hvers vegna hún vill ekki stimpla sig inn og út, hún segir frá æsku­ár­unum þegar hún hlut­aði á for­eldra sína, útvarps­fólkið, tala um útvarp og þegar hún var hjá ömmu sinni og nöfnu og þær töl­uðu saman eða spil­uðu á spil. Þá talar hún ann­ars vegar um útvarps­þátt­inn sinn og hins vegar sjón­varps­þátt­inn sinn og hún talar um strið föður síns, útvarps­mann­inn Jónas Jónasson, og síð­ustu nótt­ina í lífi hans. Það er líka minnst á hús and­anna, spír­it­isma og líf eftir dauð­ann.

Hefur þig aldrei dreymt um að verða útvarps­stjóri?

„Nei, ég held að það sé sjúk­lega leið­in­legt að vera útvarps­stjóri. Þú þarft alltaf að vera að taka ein­hverjar leið­in­legar ákvarð­anir,“ segir Sig­ur­laug Margrét Jóns­dóttir fjöl­miðla­kona í við­tali við Reyni Trausta­son og minn­ist síðan á yfir­menn í útvarpi og sjón­varpi. „Vill maður ekki vera vin­sæll? „Er ég ekki skemmti­lega og hressa stelpan?“ Maður verður það ekki ef maður þarf að fara að taka erf­iðar ákvarð­anir. Það þarf alltaf að vera að gera það uppi í útvarpi. Það er alltaf eitt­hvað bölvað vesen. Ég vil bara fá að vinna í friði. Það er það sem ég vil. Mér líður alltaf vel þegar ég kem í vinn­una. Ég myndi segja að það væru brjál­æð­is­leg for­rétt­indi. Ég er alltaf spennt, ég hlakka til að byrja og þegar græna ljósið kemur og ég byrja að tala þá er það það skemmti­leg­asta sem ég geri.“

Sig­ur­laug Margrét seg­ist vilja hafa mennta­mála­ráð­herra sem skilur mik­il­vægi þess að við höfum Rík­is­út­varpið.

„Það eru rosa­lega margir sem eru á móti Rík­is­út­varp­inu. Ég forð­ast að fara í ein­hverja disku­sjón; ég get það bara ekki. Ég læt mig bara hverfa,“ segir Sig­ur­laug Margrét sem er son­ar­dóttir fyrsta útvarps­stjór­ans, Jónasar Þor­bergs­sonar, og dóttir eins ást­sælasta útvarps­manns Íslend­inga, Jónasar Jón­as­sonar.

Mér finnst það vera mann­rétt­inda­brot.

Sig­ur­laug Margrét vill ekki stimpla sig inn og út. „Mér finnst það vera mann­rétt­inda­brot. Ég sagði Stefáni útvarps­stjóra strax frá þessu til að hafa allt á hreinu. Hann bara hló að þessu. Pabbi gerði þetta ekki heldur. Hann varð jafnæstur og ég. Ég er í vinn­unni allan dag­inn og svo fer ég eitt­hvert og er að finna fólk. Maður er enda­laust að fá hug­myndir og finna fólk allan lið­langan dag­inn. Þannig að ef ég þarf að stimpla mig inn og út; það gengur ekki,“

Byrjaði 10 ára í útvarpinu

Hún hefur unnið hjá Rík­is­út­varp­inu í mörg ár.

„Ég hefði kannski getað valið mér eitt­hvað annað. Ég pæli stundum í því. En það kom aldrei neitt annað til greina. Ég fann það á Skúla­götu 4 þar sem útvarpið var þegar ég var að alast upp. Það var stór­kost­legt fólk að vinna þarna. Mestu leik­arar þjóð­ar­innar komu og léku í stúd­íó­inu og ég hugs­aði „því­líkir galdrar“ og að ég ætl­aði alltaf að vinna þarna. Bara alltaf. Ég ákvað það.“

Það var alltaf verið að tala um útvarp.

Sig­ur­laug Margrét seg­ist hafa leikið í leik­ritum í útvarp­inu vænt­an­lega hjá pabba sínum þegar hún var 10 ára. Hún gerði síðan sína fyrstu útvarps­þætti þegar hún var 17-18 ára. „Þannig að ég byrj­aði 10 ára í útvarp­inu. Það var alltaf verið að tala um útvarp. Ég man eftir mér í Eskihlíð 10 og við bara þrjú – ég, pabbi og mamma – og þau voru bara að tala um útvarp. Og maður sat bara og hlust­aði.“

Móðirin var Sigrún Sig­urð­ar­dóttir dag­skrár­gerð­ar­maður.

Hún seg­ist hafa lært fljótt að lesa. „Við bjuggu í Eskihlíð 10 og amma Silla (Sig­ur­laug Margrét) í Eskihlíð 8 og ég var þar mikið og las mjög mikið af bókum sem voru í bóka­skápnum hennar.“

Drauga­sögur. Álfa­sögur. Hrakn­ingar. Morð.

„Geggjað.“

Þær nöfnur spjöll­uðu saman. Spiluðu á spil.

„Svo eld­aði hún alltaf í hádeg­inu. Pabbi kom oft í steiktan fisk með brúnni sósu og lauk. Pabbi og mamma voru bæði að vinna og ég í skól­anum, Hlíða­skóla, þannig að ég fór svo alltaf til ömmu. Þar var mitt annað heim­ili. Hún eld­aði hrís­grjóna­graut og svo sátum við og töl­uðum. Og hlust­uðum á útvarpið.“

Sig­ur­laug Margrét segir að óska­laga­þætt­irnir hafi verið í upp­á­haldi.

Ég segi líka frá sjálfri mér

Í dag stýrir Sig­ur­laug Margrét útvarps­þátt­unum „Segðu mér“, sem hún hefur séð um í um níu ár, og svo sjón­varps­þátt­unum „Okkar á milli“. Hún er spurð hvernig hún fari að því að laða fram það besta hjá við­mæl­endum.

„Ég hef stundum verið beðin um að halda fyr­ir­lestur fyrir háskóla­nema sem eru að læra fjöl­miðlun og ég fæ alltaf í mag­ann af því að þá er sagt „viltu segja frá því hvaða tækni þú notar, hvað þú gerir og hvernig þú færð fólk til þess að tala?“. Ég bara veit það ekki. Ég get ekki útskýrt það nema kannski að ég hef óend­an­legan áhuga á fólki. Og ef ég hef ekki áhuga á við­kom­andi þá verður þetta ömur­legt við­tal.“

Þá kemur eitt­hvað sem við­kom­andi ætl­aði aldrei að tala um.

„Segðu mér“ er sendur út fjórum sinnum í viku. „Það getur stundum verið töff en það hafa allir sögu að segja. Það er alltaf hægt að finna eitt­hvað. Maður verður líka að und­ir­búa sig; það er grunn­ur­inn. Ég verð að vita eitt­hvað. Þegar maður horfir á fólkið og þegir smá þá hugsar það „guð minn almátt­ugur, ætlar hún ekki að tala?“. Þá kemur eitt­hvað sem við­kom­andi ætl­aði aldrei að tala um. Og svo er ég „skömmuð“ þegar þátt­ur­inn er búinn og fólk seg­ist ekki hafa ætlað að segja þetta eða tala um þetta.“

Sig­ur­laug Margrét segir að það þurfi að taka vel á móti fólki. „Ég sit alltaf með því í hálf­tíma áður en við byrjum. Ég er þá nátt­úr­lega búin að tala við það áður í síma og stundum fer ég og hitti það. Svo sitjum við fyrir framan stúd­íóið þar sem ég sendi þátt­inn út og við spjölllum og fáum okkur kaffi. Ég segi líka frá sjálfri mér.“

Faðir Sig­ur­laugar Mar­grétar, Jónas, kveikti á kerti í við­tölum. „Ég er ekki eins skipu­lögð í hand­rita­gerð og hann. Hand­irtið hans var pott­þétt. Ég er með kassa og ramma inn alls konar pæl­ingar. Ég skrifa ekk­ert endi­lega margar spurn­ingar en ég er með eitt­hvað sem við­kom­andi hefur sagt við mig áður; þá skrifa ég það niður þannig að ég er alltaf með vísi að hand­riti.“

Sig­ur­laug Margrét segir að holl­vinir Rík­is­út­varps­ins hafi skoðun á sér. „Það eru mjög margir sem þola mig ekki og það kom mér stór­kost­lega á óvart. Það eru nokkrir sem reyna að koma því alltaf að hvað ég sé búin að vinna þarna lengi; að þeir slökkvi um leið og ég byrja.“

Andlitið lýgur ekki; þú sérð hvernig fólki líður.

Svo er það sjón­varps­þátt­ur­inn „Okkar á milli“. „Þeir vildu kannski nýta þessa tækni mína, við­tals­tækni. Það er aðeins öðru­vísi auð­vitað. Það er meira vesen. Ég get ekki verið með kodda­far á kinn­inni. Maður þarf alltaf að pæla í ein­hverju svona og það tekur miklu meiri tíma. Lengri tíma. En þetta er samt ótrú­lega gaman. Og ég er alltaf svo þakk­lát að fólk vill koma og koma fram í sjón­varpi. Andlitið lýgur ekki; þú sérð hvernig fólki líður.“

Það eru átök hjá sumum og sumir koma alls ekki.

„Nei, ég er ótrú­lega glöð með þetta og ég finn að ég er á réttum stað.“

Og þætt­irnir halda áfram.

Söknuðurinn

Sig­ur­laug Margrét og eig­in­maður hennar, Torfi, bjuggu ásamt börnum sínum í sama húsi og for­eldrar hennar en húsið keypti þau saman.

„Við vorum alltaf saman sem þótti svo­lítið skrýtið. Ég var að vinna með þeim, við bjuggum saman og fórum í sum­ar­frí saman.“

Var það aldrei erfitt?

„Nei.“

Sig­ur­laug Margrét segir að faðir sinn hafi viljað vera í friði. „Hann var alltaf að tala við fólk en hann vildi helst vera í friði. Þegar hann var búinn að vinna þá kom hann heim, hann horfði á sjón­varpið, hann eld­aði alltaf, en mamma eld­aði eig­in­lega aldrei, og svo vildi hann bara horfa á sína þætti, fara kannski í bíó en vildi bara fá að vera í friði. Hann sagði stundum við mig en við vorum alltaf að halda ein­hver partí og fara eitt­hvað: „Hvernig nennir þú þessu, Silla?“.

Pabbi vildi heyra lík­ræð­una þannig að prest­ur­inn samdi hana og las fyrir pabba.

Svo veikt­ist Jónas Jónasson og háði sitt stríð.

„Það var svo ótrú­legt. Hann hjálp­aði okkur svo mikið. Við töl­uðum um dauð­ann og við töl­uðum nátt­úr­lega um jarð­ar­för­ina svo sem að það ætti ekki syngja eitt­hvað ákveðið lag á undan öðru. Það var eins og við værum að tala um útvarps­þátt. Pabbi vildi heyra lík­ræð­una þannig að prest­ur­inn samdi hana og las fyrir pabba.“

Sig­ur­laug Margrét dvaldi á sjúkra­stofu föður síns á líknd­ar­deild­inni síð­ustu nótt hans í þessu lífi auk þess sem móðir hennar var þar líka. „Ég lá í rúmi við hlið­ina á þeim uppi á líkn­ar­deild. Ég lá þarna og gat ekki sofið. Ég þurfti svo að fara í vinn­una um morg­un­inn í morg­un­þátt Rásar 1 klukkan sex. Og ég lá bara og hlust­aði á and­ar­drátt þeirra. Og það var svo sterkt. Og ég hugs­aði að ég væri að upp­lifa ein­hvern stór­kost­legan hlut. Svo horfði ég á þau sof­andi og lædd­ist út. Pabbi dó svo um kvöldið.“

Sig­ur­laug Margrét seg­ist sakna föður síns á hverjum degi. „Mér finnst ennþá eins og ég sé að fara að tala við hann uppi í útvarpi. Ég not­aði hann svo oft til að spyrja að ein­hverju asna­legu; ef ég vissi ekki hvernig ég ætti að orða ein­hverjar setn­ingar. Ef maður vildi ekki láta vita að maður var ekki öruggur með hlut­ina þá gat ég alltaf hringt í pabba. Það er þessi missir.“

30 kíló af tómötum og spíritismi

Sig­ur­laug Margrét Jón­as­dóttir seg­ist vera frekar lífs­glöð, jákvæð og yfir­leitt von­góð. „Maður er að lenda í alls konar hlutum í líf­inu og maður lendir í alls konar leið­indum en ein­hvern veg­inn tekst mér alltaf að sjá það bjarta. Ef mér líður eitt­hvað illa og það eru ein­hver vanda­mál sem þarf að leysa og það gengur eitt­hvað illa og ég hef kannski ekki stjórn á aðstæðum þá fer ég alltaf að þrífa. Og þá er ég ekki að ryk­suga heldur tek alla glugg­ana. Þetta er svo snið­ugt. Svo er maður búinn að taka alla glugg­ana og vanda­málið er enn til staðar en þá hef ég stjórn á því að glugg­inn er að minnsta kosti hreinn. Ég tek kannski krydd­skáp­inn eða bý til tómatsósu úr 30 kílóum af tómötum.“

Sig­ur­laug og mað­ur­inn hennar, gull­smið­ur­inn Torfi, eiga þrjú börn; 32 ára son sem er í gull­smíða­námi, 27 ára dóttur sem er hjúkr­un­ar­fræð­ingur og aðra dóttur sem er 24 ára sem syngur.

„Ekkert af þeim hefur áhuga á útvarpi. Mér finnst það rosa skrýtið. Svo á ég barna­börn þannig að ég er að vona.“ Þau eru þrjú barna­börnin. Níu ára, tveggja ára og svo eitt nýkomið.

Útvarps­konan seg­ist vera góð í ömmu­hlut­verk­inu og að hún minni sig stundum á ömmu sína og nöfnu.

Svo dó hann tveimur mán­uðum síðar.

Hún er að verða 59 ára. Bendir á að faðir sinn hafi verið í útvarpi þangað til hann varð átt­ræður. „Síðasta við­talið sem hann tók var við RAX ljós­mynd­ara og hann kom svo heim og sagði „mamma,“ en hann kall­aði mömmu alltaf mömmu, „ég fer ekki aftur upp eftir“. Svo dó hann tveimur mán­uðum síðar. Ég ætla ekki að vera alveg þar en ég sé fyrir mér að maður kannski hættir og verði svo eitt­hvað freelance.“

Sig­ur­laug Margrét trúir á líf eftir dauð­ann. Minnist á hús and­anna og afann sem var spír­it­isti.

„Hann skrif­aði margar bækur og það voru alltaf mið­ils­fundir. Haf­steinn mið­ill kom til þeirra og amma bak­aði pönnu­kökur og svo voru enda­lausir mið­ils­fundir þannig að maður er alinn upp við þetta. Þetta er venju­legur hlutur. Ég pæli aldrei í því en ég efast ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina