Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fullorðin frumsýnd á laugardaginn: „Erum öll bara apar í buxum að þykjast vera skrifstofustjórar“

Fullorðin frumsýnd á laugardaginn: „Erum öll bara apar í buxum að þykjast vera skrifstofustjórar“
Full­orð­ins­árin eru gildra Mynd: Aðsend

Laug­ar­dag­inn, 10. sept­em­ber, verður grín­sýn­ingin Full­orðin frum­sýnd í Þjóð­leik­hús­kjall­ar­anum. Sýningin sló í gegn svo um munar fyrir norðan og gekk tvö leikár hjá Leik­fé­lagi Akur­eyrar, en er núna loks­ins komin til Reykja­víkur í sam­starfi við Þjóð­leik­húsið.

Því eldri sem ég verð, því skýr­ari man ég eftir hlutum sem aldrei gerð­ust. – Mark Twain

Verkið fjallar á spreng­hlægi­legan hátt um þau hræði­legu von­brigði að verða full­orðin og birt­ing­ar­myndir þess í gegnum lífið. Þrír leik­arar, Árni Bein­teinn, Birna Pét­urs­dóttir og Vil­hjálmur B. Bragason, leika yfir 50 per­sónur sem allir geta tengt við á ein­hvern hátt úr sínu eigin lífi en þrí­eykið er jafn­framt höf­undar sýn­ing­unnar.

Tíminn nær okkur öllum að lokum

Samkvæmt aðstand­endum sýn­ing­ar­innar er Full­orðin sann­kölluð hlát­ur­sprengja sem engin full­orðin mann­eskja, óháð aldri, ætti að missa af. „Hvar ann­ars­staðar get­urðu séð nátt­úru­lífs­mynd um heill­andi sam­skipti móður og ung­lings, hlustað á rímna­kveð­skap um kyn­sjúk­dóma og mætt á reunion hjá útskrift­ar­bekk gagg­ans 1990, á einum og sama staðnum?“ segir Birna Pét­urs­dóttir í sam­tali við Mannlíf.

Aðspurð um til­urð sýn­ing­ar­innar sagði Birna að verkið hefði orðið til í Covid.

„Sýningin er eig­in­lega hálf­gert Covid-afkvæmi. Við Villi höfðum fengið hand­rits­styrk frá SSNE en vorum bæði á samn­ing hjá leik­fé­lagi Akur­eyrar þegar Covid skall á og öllu var skellt í lás. Við höfðum þess vegna ekk­ert að gera í vinn­unni og ákváðum í sam­ráði við leik­húsið að búa bara til sýn­ingu. Við fengum Árna Beintein með okkur í lið…aða­l­ega af því það var svo erfitt að horfa uppá hann stara út í tómið í allan vinnu­dag­inn. Við þekktum hann ekki neitt en það reynd­ist algjör jóla­pakki að fá hann til okkar. Við erum öll mjög ólík og það kom sér rosa vel. Okkur lang­aði sem­sagt bara að kafa svo­lítið í full­orð­ins­árin og allar hörm­ung­arnar sem þeim fylgja. Við fengum svo Heklu Elísa­betu Aðal­steins­dóttur til að leik­stýra ásamt Mörtu Nordal og úr varð mikið hlát­ur­kast,“ sagði Birna hress í bragði.

Við hættum ekki að leika okkur þegar við verðum gömul, við verðum gömul þegar við hættum að leika okkur. – George Bernard Shaw

Segir Birna að með­gangan hafi verið ansi löng og margt breyst frá því þau byrj­uðu að vinna að verk­inu.

„Þetta er búið að vera rosa löng með­ganga og fæð­ing vegna Covid en frá því við byrj­uðum þarna haustið 2020 höfum við Villi bæði unnið Grímuna og Árna hefur tek­ist að trú­lofa sig, gifta sig og skilja á sama tíma…hann ætti auð­vitað skilið verð­laun fyrir þann árangur líka.“

Blaða­maður Mannlífs lá for­vitni á að vita hvað Birnu fynd­ist erf­ið­ast við að verða full­orðin og það stóð ekki á svari.

„Það erf­ið­asta við að full­orðn­ast er að þurfa enda­laust að þykj­ast vita hvað maður er að gera. Það er alveg óþol­andi. Fólk veit það ekk­ert. Við erum öll bara apar í buxum að þykj­ast vera skrif­stofu­stjórar og mark­þjálfar.“

Við erum öll bara apar.

Að lokum segir Birna að þau séu afar ánægð með að vera komin með sýn­ing­una til Reykja­víkur.

„Stemmn­ingin fyrir frum­syn­ingu er geggjuð. Við erum svo ótrú­lega glöð að vera loks­ins komin með sýn­ing­una okkar til Reykja­víkur. Þjóð­leik­hús­kjall­ar­inn er líka full­kom­inn staður fyrir sýn­ing­una, enda er þetta svona kab­ar­ett-revíu­stemm­ing, bar­inn opinn og góð stemm­ing.“

Allar frek­ari upp­lýs­ingar um sýn­ing­una má nálg­ast hér: https://leikhusid.is/syningar/fullordin/#um-verkid

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu