Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Svara stjóra Sælukots og segja borgina ábyrga: „Innan leikskólans er lítil sem engin fagmenntun“

Svara stjóra Sælukots og segja borgina ábyrga: „Innan leikskólans er lítil sem engin fagmenntun“

„Á­byrgðin á Sælu­koti liggur hjá Reykja­víkur­borg“ skrifa þær stöllur Margrét Eymund­ar­dóttir, kenn­ari og fyrr­ver­andi leik­skóla­stjóri, María Lea Ævars­dóttir, kvik­mynda­gerð­ar­kona og móðir, Eva Drífu­dóttir, inn­an­húss­arki­tekt og fyrr­ver­andi starfs­maður, og svara þar fyrir sig eftir að leik­skóla­stjóri Sælukots, Elín Hall­dórs­dóttir, rit­aði grein um mál­efni leik­skól­ans og fór síðan í við­tal á útvarps­stöð­inni Bylgj­unni.

Elín Hall­dórs­dóttir .

Gefum þeim orðið:

„Í við­tali á Bylgj­unni við Elínu Hall­dórs­dóttur leik­skóla­stjóra á Sælukoti, þann 9. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, kemur fram að rekstr­ar­stjóri Sælukots sé nunna í Ananda Marga sam­tök­unum sem vinnur mikla sjálf­boða­vinnu og óeig­in­gjarnt starf. Hún hafi með ára­löngu striti náð að kaupa rað­hús í Skerja­firði sem sé hluti af fjár­fest­ingu Ananda Marga sam­tak­anna sem ætli sér að stækka leik­skól­ann.“

Óhætt er að segja að þær telji svör Elínar ekki vera krón­unnar virði og segja:

„Þetta er reyndar hlægi­lega ein­falt svar en í fram­haldi af því vakna hjá okkur spurn­ingar um arð­inn. Hver þiggur arð upp á 41,8 mkr? Og, hverjir standa á bak við leik­skól­ann? Hverjir eru í Sælutröð og hafa þeir ein­hver tengsl við Reykja­vík­ur­borg? Sömu­leiðis kemur fram í við­tal­inu að lít­ill reglurammi og skrif­finnska sé í kringum leik­skóla­starfið. Það byggi á kær­leika og nýhúman­isma sem sé ein­fald­lega þannig að fólk sé gott og ást­úð­legt, sér­stak­lega við börn.

Þetta er allt gott og blessað, og eng­inn ætti að fetta fingur út í svo fal­legt fyr­ir­komu­lag; börnin syngja um Baba og vinna við leik­skól­ann hefur gegnum tíð­ina oft verið byggð á sjálf­boða­starfi. Þetta vissum við sem unnum allar á ólíkum tíma við leik­skól­ann.“

Þær færa einnig í tal að „við þekkjum líka allar hina hlið­ina á góð­vild og ástúð rekstr­ar­stjór­ans. Lýsingar á henni koma fram í bréfi sem við sendum á Reykja­vík­ur­borg og fleiri í nóv­em­ber í fyrra og lesa má hér. Við vitum það fyrir víst að um ára­bil hafa leik­skóla­stjórar ein­ungis starfað í lít­illi pró­sentu í Sælukoti. Vinna þeirra hefur einkum falist í því að rita skýrslur og upp­fylla þær skildur sem Reykja­vík­ur­borg þó gerir um leik­skóla­starfið.“

Einnig benda þær á að „starfs­fólk leik­skól­ans hefur ekki þekkt leik­skóla­stjór­ana í sjón enda stjórnar rekstr­ar­stjór­inn, nunnan, með mýkt eða harð­neskju, eftir því hvernig liggur á henni.

Á Sælukoti er ekki unnið eftir Aðal­námskrá og innan leik­skól­ans er lítil sem engin fag­menntun. En eins áður hefur komið fram hjá okkur þá sækja leik­skóla­kenn­arar sjaldan um starf á leik­skól­anum og ef þeir vill­ast þangað inn staldra þeir stutt við.

Sér­kennsla er sjaldn­ast til staðar og lítið er sóst eftir þátt­töku utan­að­kom­andi aðila. Þetta allt veit starfs­fólk, emb­ætt­is­menn og stjórn­endur hjá Reykja­vík­ur­borg. Þroska­þjálfar, sál­fræð­ingar, Félag stjórn­enda í leik­skólum o.s.frv. Og þetta vita líka kjörnir borg­ar­full­trú­arar sem fara með vald og eiga að sýna ábyrgð.“

Og skrifa lika að það sé „auð­velt að stinga höfð­inu í sand­inn og vona að hlut­irnir redd­ist, sér­stak­lega þegar leik­skóla­pláss vantar í borg­inni. Elínu sendum við ást og frið til baka og óskum henni alls góðs. Hún sem hefur unnið á leik­skól­anum í tvo mán­uði, ber ekki ábyrgð á því ástandi sem þar hefur skap­ast. Við ætlum hins vegar ekki að standa í frek­ari bréfa­skiftum við hana sem getur ekki svarað fyrir a.m.k. sex ára van­rækslu á Sælukoti.“

Skúli Helgason.

Að mati þre­menn­ing­anna liggur „ábyrgðin hjá Reykja­vík­ur­borg. Hún liggur hjá Skúla Helga­syni, fyrr­ver­andi yfir­manns skóla- og frí­stunda­sviðs, Helga Gríms­syni, svið­stjóra skóla-og frí­stunda­sviðs, Ólafi Brynjari Bjarka­syni, skrif­stofu­stjóra fag­skrif­stofu leik­skóla­mála, Árelíu Eydísi Guð­munds­dóttur, núver­andi for­manni skóla- og frí­stunda­sviðs og öðrum kjörnum full­trúum.

Við biðjum og vonum að ekki þurfi stór­slys til að loka þessum leik­skóla eða umbreyta starf­semi hans.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi