Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Sælukot er „rekinn af sértrúarsöfnuði – Lýsingar starfsmanna minna á vist í fangabúðum“

Sælukot
Sælukot Mynd: Róbert Reynisson

„Í Reykjavík er starf­ræktur leik­skólinn Sælukot sem er rekinn af sértrúar­söfnuði sem telur um 10 manns á Íslandi,“ skrifa þær Margrét Eymundar­dóttir, kennari og fyrr­verandi leik­skólastjóri, María Lea Ævars­dóttir, kvikmynda­gerðarkona og móðir, Eva Drífu­dóttir, innan­húss­arkitekt og fyrr­verandi starfs­maður, Krist­björg Helga­dóttir, deildar­stjóri og fyrr­verandi starfs­maður í grein í dag.

Þær bæta við:

„Þessi söfnuður kallast Ananda Marga og hefur í gegnum tíðina verið bendlaður við hryðju­verk víða um heim.

Reykja­víkurborg gerir samninga við einka­rekna leikskóla sem greiða sér út arð á sama tíma og þeir þiggja fé frá borginni.

Stjórn­endur leik­skólans Sælukots keyptu raðhús í Skerja­firði árið 2019 og greiddu sér út 41,8 m.kr. í arð árið 2020. Á sama tíma var leik­skóla­starfið í miklu fjár­svelti.“

Þær nefna einnig að „þetta kemur okkur sem erum úr hópi fyrr­verandi starfs­fólks og foreldra barna í Sælukoti ekki á óvart. Við höfum safnað saman tugum lýsinga áhyggju­fullra starfs­manna og foreldra sem ná 10 ár aftur í tímann.

Við höfum bent á að leik­skóla­starfið stenst engar þær kröfur sem gerðar eru til leikskóla á Íslandi. Má þar nefna að starfs­fólk er nær undan­tekningar­laust án fagmenntunnar og er sömuleiðis alltof fáliðað, sérkennsla er engin, viðbrögð rekstrarstjórnans við meintu kynferðis­ofbeldi gagnvart barni voru mjög ófag­mannlegar og aðbúnaður barna er slæmur almennt á leiskólanum.“

Þær færa einnig í tal að „þá sjaldan að leik­skóla­kennari hefur stótt um starf á Sælukoti hefur viðkomandi staldrað stutt við. Það starfs­fólk sem gerir kröfur um úrbætur á Sælukoti er jafnan rekið af rekstrar­stjóra leik­skólans.

Lýsingar starfs­manna sem hafa unnið á Sælukoti eru með ólíkindum og minna meira á vist í fanga­búðum en á vinnustað.“

Þær segja einnig frá því að „starfs­fólkið lýsir auðvitað líka þungum áhyggjum af börnunum.

Því miður virðist velferð barna og faglegt starf gleymast um þessar mundir þegar þjarkað er um skort á leikskóla­plássum sem þó er mergur málsins. Því höfum við undir­ritaðar tekið okkur penna í hönd eina ferðina enn til þess að freista þess að einhver hlusti. Það er nefnilega svo að við höfum ítrekað látið Skóla- og frístunda­svið vita af ógöngum Sælukots og sent þangað áður­nefndar lýsingar starfs­fólks og foreldra. En ekkert gerist. Það virðist öllum standa á sama. Skólinn starfar enn og ennþá er sami rekstrar­stjórinn þar við völd. Á leikskóla þar sem enginn ætti að vera, allra síst börn.“

Höfundar greinarinnar koma inn á gróða­starfsemi tengdri reksturs Sælukots:

„Þeir sem hafa áhuga á að fara í viðskipti og hyggja á skjótan gróða geta greini­lega opnað eika­rekinn leikskóla, svelt starfið og greitt sér út arð. Það er ekkert mál.

Það vitum við sem höfum nú reynt að vekja Reykja­víkurborg upp af þungum svefni um starfsemi leik­skólans Sælukots.

Eftir­litið er ekkert enda fáránlegt að sami aðili sjái um rekstur leikskóla og sinni eftirliti með þeim.

Reykja­víkurborg sem ekki hefur staðið við kosninga­loforð um leikskóla­pláss fyrir foreldra, já og auðvitað börn, lokar ekki leik­skólum. Þeim verður haldið opnum út í rauðan dauðann. Borgar­fulltrúar, bæði í meiri og minni hluta, vita allt um þetta mál. Nú er spurningin, ætla þeir að gera eitthvað í því?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“