Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Elín í Sælukoti svarar gagnrýni: „Nunna nú orðin hryðjuverkamaður í fjölmiðlum og stóreignakona“

Elín Halldórsdóttir .
Elín Hall­dórs­dóttir .

Elín Halldórs­dóttir er leik­skólastjóri Sælukots, og ritar grein sem ber yfir­skriftina:

Vegna um­fjöllunar um leik­skólann Sælu­kot.

„Ég undir­rituð hef þurft að lesa greinar og hlusta á viðtöl í fjöl­miðlum síðustu 2 daga þar sem fram koma ótrúlegustu rang­færslur um skóla­starf leik­skólans Sælukots sem á að baki 46 ára starf,“ segir Elín og bætir við:

„Á sama tíma og leik­skólastarf í landinu á undir högg að sækja þar sem ekki er borin nógu mikil virðing fyrir starfinu og laun yfirleitt undir eða í meðallagi miðað við aðrar greinar blása fjöl­miðlar til stór­sóknar á lítinn einka­rekinn leikskóla undir yfirskini aðsendrar greinar frá 3 fyrr­verandi starfs­mönnum og einu fyrr­verandi foreldri.

Ég hef síðustu 2 daga þurft að taka símtöl þar sem foreldrar fyrrum leik­skólabarna í Sælukoti harma þessa hræðilegu umfjöllun út af því að hún samræmist ekki þeirra reynslu en einnig hef ég þurft að svara áhyggju­fullum foreldrum.“

Elín bendir á að það sé í sjálfu sér alls ekki slæmt að fá gagnrýni, uppbyggilega gagnrýni. En hún vill meina að sú umfjöllun og sú gagnrýni sem Sælukot hefur fengið í fjöl­miðlum sé ekki uppbyggileg á neinn hátt.

„Það er aftur á móti annað mál að fá bylgju af uppspuna og ósannindum yfir sig. Ég hef þurft að hlusta á það í útvarpinu að enginn faglegur leik­skólastjóri starfi við skólann. Að skólinn tengist hryðjuverka­samtökum, að skóla­vistin jafnist á við fanga­búðir svo eitthvað sé nefnt. Hér er vegið að litlum skóla með alþjóð­lega sögu og alþjóð­lega nemendur og starfs­fólk með ótrúlegum hætti.

Rekstrar­stjóri leik­skólans sem er nunna er nú orðin hryðju­verkamaður í íslenskum fjöl­miðlum og stóreigna­kona.“

Elín segir einnig um umfjöllunina nýverið að „börnin eru orðin að þrælum og starfs­fólkið allt er ófaglegt og örugglega með hor í nös. Vegið er að starfs­umhverfi lítilla barna sem eðlilega geta hvorki staðfest né upplýst um það sem fleygt er í fjölmiðla og frænkur og frændur setja heilu barna­fjöl­skyldurnar í geðs­hræringu eftir stóryrtar trölla­sögur þekktra fjölmiðla.“

Hún er einnig á því máli að „vafalítið kemur þetta sér býsna vel fyrir borgar­yfirvöld sem standa í strangri baráttu við foreldra ungra barna sem hvergi fá leikskóla­pláss að beina nú allri athyglinni á einn lítinn ómerki­legan leikskóla með „útlenskum” börnum, Þá geta þau bara haldið áfram að nota borgar­sjóð í pálmatré og bragga í friði.“

Elín segir ekkert óeðlilegt í gangi í koti sælunnar.

„Það mál sem fjallað hefur verið mikið um í miðlunum og tengdist áreiti og nefnt er í greininni umtöluðu fór í gegnum eðlilegt ferli í kerfinu lögreglu, barna­vernd og eftirlits­aðila frá borginni og var afgreitt án ákæru. Uppspretta alls þessa máls er aðsend grein í Vísi, full af rang­færslum. Þess ber að geta að 3 af þeim 4 sem rita greinina eru fyrr­verandi starfs­menn leik­skólans. Einn þeirra lýsti brott­rekstri sínum frá störfum vel í Bylgju­viðtali nýverið þar sem hann kvaðst ekki hafa staðið sig. Þar með er nokkuð ljóst að hér hafa siða­reglur starfs­fólks skóla verið marg­brotnar á ótrúlegan hátt af þessum „fullkomlega faglegu” greinar­riturum.“

Að lokum segir Elín að „sem Leik­skólastjóri Sælukots bið ég alla þá sem upphafa stóryrði eða rita eða tala í fjöl­miðlum um leik­skólann Sælukot og starfs­umhverfi lítilla barna að sýna litlum börnum og þeirra starfs­umhverfi tilhlýðilega virðingu og kynna sér málin áður en farið er í skot­grafirnar. Ást og friður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“