Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Ótrúlegt augnablik Ólínu með Elísabetu: „Læddist dauðstressuð til að smeygja mér úr sokkabuxunum“

Ótrúlegt augnablik Ólínu með Elísabetu: „Læddist dauðstressuð til að smeygja mér úr sokkabuxunum“

Ólína Þor­varð­ar­dóttir, þjóð­fræð­ingur og rit­höf­undur, átti ógleym­an­legt augna­blik með Elísa­betu II Eng­lands­drottn­ingu heit­inni þegar hún kom hingað í opin­bera heim­sókn árið 1990. Henni finnst drottn­ingin ein­fald­lega hafa verið merkasti þjóð­höfð­ingi Evrópu, fyrr og síðar og er glöð yfir því að hafa átt þetta ógleym­an­lega atvik með drottn­ing­unni.

Frá upp­lifun sinni segir Ólína á Facebook og svo hljóðar frá­sögn hennar:

„Elísabet II. var stór­merk kona. Mögnuð mann­eskja.
Hugtakið „göfgi“ mætti skil­greina með vísan til hennar – afstöðu hennar til hlut­verks síns en ekki síður per­sónu­leika hennar. Hún var þjón­andi þjóð­höfð­ingi og helg­aði líf sitt þjóð sinni.

Ég var svo lánsöm að hitta hana og Philip eig­in­mann hennar á borg­ar­stjórn­ar­árum mínum á tíunda ára­tugnum. Þau komu þá í opin­bera heim­sókn til Reykja­víkur í borg­ar­stjóra­tíð Davíðs Odds­sonar. Mér er minn­is­stæð fram­koma þeirra beggja, svo elsku­leg, alþýð­leg og áhuga­söm sem þau voru um alla sem þau heilsuðu og ræddu við í Höfða af þessu til­efni. Þau stöldr­uðu við og ræddu við hvern ein­asta boðs­gest sem Davíð kynnti sam­visku­sam­lega fyrir þeim. Davíð er mér raunar líka minn­is­stæður úr þess­ari veislu, því hann hóf sig svo gjör­sam­lega yfir flokkslínur í kynn­ingum sínum og gerði stund­ina mjög eft­ir­minni­lega fyrir bæði sam­herja og póli­tíska andsæð­inga.

Svo kom röðin að okkur Sigga – ég hafði rétt áður en að þessu kom upp­götvað svaka­legt lykkju­fall á sokka­bux­unum mínum, hef senni­lega rekið mig í eitt­hvað á leið­inni inn. Ég gat ekki hugsað mér að standa og ræða við drottn­ing­una með risa­stórt lykkju­fall aftan á kálf­anum svo ég lædd­ist dauð­stressuð afsíðis til að smeygja mér úr sokka­bux­unum og rétt náði í tæka tíð til baka.

Davíð var í ess­inu sínu og kynnti mig vel fyrir drottn­ingu. Af mæli hans mátti ráða að ég væri spút­ník póli­tíkus, leið­togi nýrrar sam­einaðrar bylgju jafn­að­ar­manna (sem var auð­vitað draum­ur­inn þá um stundir en nokkrum árum síðar gekk Nýr vett­vangur inn Reykja­vík­ur­list­ann og nýtt fólk tók við kefl­inu). Nema hvað, hann gerði ítar­lega og góða grein fyrir mínum fyrri störfum, að ég væri 4ra barna móðir (5ta barnið ekki komið á þeim tíma), frétta­maður og fleira, og drottn­ing lyft­ist öll upp. „Really? How inter­est­ing“ sagði hún og tók að spyrja mig spjör­unum úr. Sagði mér frá sínum börnum og ræddi hlut­skipti margra barna mæðra í opin­berum störfum, vanda móð­ur­hlut­verks­ins, hlut­verk fjöl­miðla í opin­berri umræðu og stöðu kvenna á breyt­inga­tímum.

Fljót­lega eftir að sam­talið hófst hnippti Philip drottn­ing­ar­maður í Sigga mann­inn minn og fór að spyrja hann um mál­verk og myndir á veggjum. Siggi, fróður um lista­sögu og sagn­fræð­ingur góður, svar­aði sam­visku­sam­lega og áður en við var litið voru þeir komnir í hróka­sam­ræður um sögu Reykja­víkur þar sem þeir röltu um og skoðuð myndir á veggjum í veislu­sal­ar­ins. Aðrir gestir hljóta að hafa verið farnir að ókyrr­ast, því sam­talið dróst á lang­inn, en svo þegar því var að ljúka var Philip aftur kom­inn upp að hlið drottn­ingar – leið þangað eins og reykur án þess að séð væri að hún hefi gefið honum neina bend­ingu – á hár­réttu augna­bliki til þess að kveðja okkur hjónin um leið og þau sneru sér að næstu gestum.

Þetta var ógleym­an­legt atvik og mér þykir afar vænt um mynd­ina sem tekin var af þessu til­efni. Davíð hef ég alltaf þakkað í hug­anum fyrir hversu mik­ill höfð­ingi hann var á þess­ari stundu, því það var honum að þakka hversu áhuga­söm og gjöful drottn­ingin var í þessu sam­tali okkar … sem nú er dýr­mæt minn­ing að henni geng­inni.

Hún er í mínum huga einn al merkasti þjóð­höfð­ingi Evrópu fyrr og síðar. Eft­ir­minni­leg kona og ein­stök.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu