Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hrafn segir Surtlu hafa minnkað: „Ég ætla alla leið í vítaspyrnukeppni, ef þörf krefur“

Hrafn segir Surtlu hafa minnkað: „Ég ætla alla leið í vítaspyrnukeppni, ef þörf krefur“

Hrafn Jök­uls­son, rit­höf­undur, skák­fröm­uður og ýmis­legt fleira, berst eins og alþjóð veit af krafti við erfitt krabba­mein sem hann kallar Surtlu. Hefur bar­áttu­þrek hans vakið aðdáun Íslend­inga en hann vill ekki vera kall­aður hetja.

Hrafn skrif­aði færslu rétt yfir 13:00 í dag á Facebook þar sem hann segir að Surtla hafi minnkað en bar­átt­una kallar hann Operation Mikael.

„OPERATION MIKAEL —

Kæru vinir. Geisla- og lyfja­stríð hafa greitt Surtlu þung högg. Lítil var hún fyrir en nú er hún ennþá minni. Margar jákvæðar tölur en Surtla er auð­vitað langt í frá búin að vera og lungna­bólgan er svæsin. En á þessum afmæl­is­degi pabba skulum við nota orð Winstons vinar okkar:„Now this is not the end. It is not even the beg­inn­ing of the end. But it is, per­haps, the end of the beg­inn­ing.“,“ skrif­aði Hrafn og bætti við:

„Höfum eitt á tæru, við Surtla verðum aldrei sundur skilin. Þegar hún skaut upp sínum svarta kolli, var útlit fyrir að bar­áttan stæði aðeins í örfáar vikur. Skapari minn hefur nú hleypt mér í fram­leng­ingu á úrslita­leiknum mikla. Þetta hefur verið stór­kost­legur tími og ég ætla alla leið í víta­spyrnu­keppni, ef þörf krefur.“

Því næst þakk­aði Hrafn stuðn­ing­inn sem hann hefur fundið fyrir síðan bar­dag­inn við Surtlu hófst en bað fólk að gera ekki of mikið úr hetju­skap sínum:

„Stuðn­ingur vina minna hefur verið ómet­an­legur, og öll ykkar fal­legu orð.En ég bið ykkur elsku vinir að gera ekki of mikið úr „hetju­skap mínum“, ég fer hjá mér við slíkt. Í okkar heimi eru ótelj­andi hetjur sem takast á við verk­efni lífs­ins frá degi til dags án þess að fá nokk­urt hrós. Það eru hvunn­dags­hetj­urnar sem ég ber ótak­mark­aða virð­ingu fyrir. Fólkið sem vaknar á morgn­ana og fer og lætur gott af sér leiða. Fólkið sem ferð­ast yfir hálfan heim­inn til að skapa börnum sínum nýtt líf. Fólkið sem lætur ekki bug­ast frammi fyrir vald­níðslu og skepnu­skap. Börnin á Barna­spít­ala Hrings­ins og öll börn sem mæta órétt­læti hinna full­orðnu.

Kæru vinir, yfir mig hefur rignt óverð­skuld­uðum yfir­lýs­ingum um hetju­skap minn. Inni­legar þakkir en margir verð­skulda slíkt lof fremur en ég. Ef þið viljið gleðja mig, gerið það með því að taka eftir hetj­unum, alvöru hetj­unum. Það vekur mér sanna gleði ef þið rifjið upp eitt­hvað sem ég hef gert en ekki hvernig ykkur finnst að ég sé. Ég bið ykkur að rifja upp sögur fremur en lýs­ingar á per­sónu minni. Finnið ykkur hetjur dags­ins og sendið mér sögur af þeim.“Í nið­ur­lagi færsl­unnar segir hann bar­átt­una rétt að byrja og að næstu daga þurfi hann að ein­beita sér að slagnum sem framundan sé.„Já, bar­áttan er rétt að byrja ef Skapari minn leyfir. Nú mun ég ein­beita mér að þeim mikla slag, nú þegar Surtla hopar tíma­bundið út í horn að sleikja sín geisla­sár. Verið viss um eitt: hún getur lokið dans­inum í einu vet­fangi, en ég mun dansa og dansa, ýmist byrstur eða með bros á vör. Á næstu dögum mun ég pósta færra hér á facebook og ein­beita mér að næsta kafla í þessum stór­kost­lega seinni hálf­leik lífs míns.LAG DAGSINS: Dalaka Obala.AFMÆLISBARN DAGSINS: Jökull Jak­obs­son.

FRAM TIL SIGURS!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina