Hann var ekki lítill túnfiskurinn sem í gærkvöld Ísey EA 40 kom með til hafnar í Grindavík; 2,5 metra langan bláuggatúnfisk; var kvikindið hvorki meira né minna en 208 kíló, en þetta kemur fram á vef Grindavíkurhafnar.
Og þar segir skipstjórinn á Ísey, Grétar Þorgeirsson, að túnfiskurinn hafi verið veiddur sunnan við Eldey.
Túnfiskurinn risastóri er ekki sá fyrsti sem landað er í aflabænum Grindavík; árin 2014 til 2016 var skip Vísis hf., Jóhanna Gísladóttir GK, gert út á túnfisk: Þar fyrir utan hefur ekki verið mjög mikill áhugi á slíkum veiðum; stjórnvöld vonast þó til þess að breyting verði þar á; hafa stefnt að því að heimila hérlendum útgerðum að taka á leigu sérhæfð túnfiskskip.































Athugasemdir