Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sorgarsaga stúlknanna að Laugalandi – „Mér líður illa hér og ég er mjög hrædd við Ingjald“

Sorgarsaga stúlknanna að Laugalandi – „Mér líður illa hér og ég er mjög hrædd við Ingjald“

Nærri 90 pró­sent þeirra ung­lings­stúlkna sem vistaðar voru að með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi, áður Varp­holti, upp­lifðu ofbeldi af hálfu Ingjalds Arn­þórs­sonar for­stöðu­manns. Yfir­gnæf­andi meiri­hluti stúlkn­anna, nánar til­tekið 88 pró­sent þeirra eða 30 stúlkur af 34, upp­lifði and­legt ofbeldi af hans hálfu og um helm­ingur þeirra ýmist varð fyrir eða varð vitni að lík­am­legu ofbeldi á með­ferð­ar­heim­il­inu.

Í ágúst­mán­uði 2007 var fyrst fjallað um ásak­anir á hendur Ingjaldi þar sem hann var í DV sak­aður um að bæta óeðli­legum aðferðum í sam­skiptum sínum við sín eigin börn, fyrrum eig­in­konu sína, systur hans og skjól­stæð­ing­ana að Lauga­landi. Blaðið fjall­aði í fjór­gang um meint and­legt og lík­am­legt ofbeldi for­stöðu­manns­ins, sem sjálfur hafn­aði öllum ásök­unum á sínum tíma og naut ótví­ræðs stuðn­ings Braga Guð­brands­sonar, þáver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu.

Hluti umfjöll­unar DV, í ágúst 2007.

Tilefni skrifa DV á sínum tíma var fjöldi ábend­inga til Umboðs­manns barna, sem bár­ust emb­ætt­inu árið 2001, um ofbeldi og illa með­ferð skjól­stæð­inga að Lauga­landi. Til­kynn­ing­arnar höfðu þangað borist bæði frá mörgum stúlkum sem ýmist dvöldu þar og eða frá stúlkum og for­eldrum þeirra sem það höfðu gert. Stúlk­urnar lýstu því að þær væru kall­aðar illum nöfnum, meðal ann­ars druslur og hórur, á hverjum degi og þær sagðar geð­veikar. Um leið og ný stúlka hafi komið inn á heim­ilið hafi allt verið gert til að brjóta hana niður and­lega. Þær lýstu því að lagðar hefðu verið á þær hendur og þeim hent niður stiga.

Umboðs­maður barna sendi Braga for­stjóra strax minn­is­blað þar sem fram komu áhyggjur af fjöl­margra mann­rétt­inda­brota af hálfu Ingjalds for­stöðu­mann og „nauð­syn þess að eitt­hvað verði gert í sam­bandi við ástandið á Lauga­landi“. Þetta er meðal þess sem finna má í minn­is­blaði umboðs­manns barna, dag­sett 15.10.2001.

Minn­is­blað Umboðs­manns barna til Barna­vernd­ar­stofu, árið 2001: „[Þær] hafi verið beittar and­legu ofbeldi. […] þó einnig lík­am­legu ofbeldi og svo er um fleiri að þeirra sögn.“Svo virð­ist sem ásak­an­irn­ar sem voru sett­ar fram hafi lítt eða ekki ver­ið rann­sak­að­ar af hálfu Barna­vernd­ar­stofu og Bragi for­stjóri lýsti fullu trausti á Ingjald í sér­stakri yfir­lýs­ingu sem birt var í DV á sínum tíma. 

Sjá einnig: Hópur kvenna af með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi krefst rann­sóknar: „Hjálp“

Beitti sér hart

Bragi, þá­ver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, lagð­ist þungt á rit­stjóra og blaða­mann DV vegna um­fjöll­un­ar um meint of­beldi af hálfu Ingj­alds. Þá beitti Bragi sér fyr­ir því að fé­lags­mála­ráðu­neyt­ið kann­aði ekki ásak­an­ir á hend­ur Ingj­aldi og mælti með að ráð­herra tjáði sig ekki um mál­ið.

Óhætt er að segja að Bragi hafi beitt sér af hörku í þágu Ingjalds þegar fjallað var um ásak­anir á hendur honum í DV árið 2007. Hann sagði að til­gangur skrif­anna hafi verið að „svipta Ingjald ærunni og skaða það merka upp­eld­is­starf sem unnið hefur verið und­an­far­inn ára­tug af þeim hjónum og sam­starfs­fólki þeirra. Barna­vernd­ar­stofa for­dæmir umfjöllun DV í þessu máli og vísar á bug þeim raka­lausu full­yrð­ingum og ósann­indum sem þar er að finna. Þannig hefur ekk­ert til­efni orðið til athug­unar á meintum brotum Ingjalds af hálfu Barna­verndar Eyja­fjarðar, hvorki gagn­vart eigin börnum né ung­lingum á með­ferð­ar­heim­il­inu. Óhugs­andi er að þeim upp­eld­is­að­ferðum og ofbeldi sem lýst er í grein­inni sé eða hafi verið beitt á Lauga­landi,“ sagði Bragi í vörnum fyrir Ingjald.

Líkt og DV greindi frá árið 2007, og síðar hefur feng­ist stað­fest, var ítrekað kvartað und­an fram­göngu Ingj­alds, sem for­stöðu­manns Varp­holts og Lauga­lands til Barna­vernd­ar­stofu. Um­boðs­mað­ur barna fékk fjölda ábend­inga um of­beldi og illa með­ferð á með­ferð­ar­heim­il­un­um ár­ið 2001, bæði frá stúlk­um sem þar dvöldu eða höfðu dval­ið og frá for­eldr­um stúlkn­anna. Ingj­ald­ur starf­aði sem for­stöðu­mað­ur Lauga­lands allt til árs­ins 2007 og hefur alla tíð hafnað öllum ásök­unum.

Nið­ur­brots­heim­ilið að Lauga­landi. Ingj­ald­ur starf­aði þar sem for­stöðu­maður allt til árs­ins 2007 og hefur alla tíð hafnað ásök­unum.

Góður andi í húsinu?

Með­ferð­ar­heim­ilið Varpholt, sem síðar var flutt að Lauga­landi, hóf starf­semi í Eyja­firði sum­arið 1997 undir stjórn for­stöðu­manns­ins Ingjalds Arn­þórs­sonar. Heimilið var rekið sem fjöl­skyldu­heim­ili og bjuggu Ingj­aldur og kona hans, Áslaug Brynjars­dóttir, á heim­il­inu með tveimur börnum sínum ásamt skjól­stæð­ingum.

Kvörtun til Barna­vernd­ar­stofu þar sem 14 ára vist­stúlka segir hrædd við Ingjald.

Í sam­tali við DV á sínum tíma undrað­ist Ingj­aldur mjög ásak­an­irnar. Hann hafn­aði því algjör­lega að hafa beitt skjól­stæð­inga sína lík­am­legu ofbeldi. „Ég kann­ast ekki við að hafa nokkurn tím­ann lýst ofbeld­is­að­ferðum fyrir nokkrum manni. Það er úti­lokað. Ég kann ekki slíkar aðferðir og get því hvorki hafa beitt þeim né túlkað þær fyrir aðra. Þessu hafna ég alfarið og þannig hefur aldrei verið unnið hérna,“ sagði Ingj­aldur.

Mörgum mán­uðum eftir að minn­is­blað Umboðs­manns barna barst Barna­vernd­ar­stofu barst emb­ætt­inu svar­bréf þar sem fram kemur „að starfið virð­ist ganga mjög vel, and­inn í hús­inu sé góður og stúlk­urnar í góðri vinnslu. Vilji með­ferð­ar­að­ila til að taka athuga­semdum og gera betur ef unnt er sé ótví­ræður. Stúlk­urnar uni sér vel á Lauga­landi, þær taki fram­förum og megi vera óhræddar að taka upp mál sem hvíli á þeim gagn­vart með­ferð­ar­að­ilum því ekki verði betur séð en að þeim verði vel tekið.“

Sjá einnig: Lýsa sorg­legu ofbeldi og nið­ur­broti á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi: „Ég var komin í hel­víti“

„Hjálp“

Líkt og Mannlíf greindi frá í jan­úar í fyrra tók tugur kvenna, sem dvaldi á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi, höndum saman og fór fram á að farið yrði ofan í saumana á starf­semi heim­il­is­ins. Þær lýstu erf­iðri og sárs­auka­fullri dvöl og töldu að frá­sögnum þeirra hafi verið sópað undir teppi af hálfu barna­vernd­ar­yf­ir­valda.

Harpa Dögg Sæv­ars­dóttir, ein kvenn­anna, óskaði eftir því að kafað yrði ofan í kjöl­inn á starf­semi heim­il­is­ins.  „Við erum ein­fald­lega að biðja um hjálp. Við viljum skila skömminni og fá það við­ur­kennt hvernig var komið fram við okkur. Fá afsök­un­ar­beiðni og að fólkið þurfi að svara fyrir hvað það gerði. Þá von­umst við til að komið verði á betra eft­ir­liti með svona heim­ilum og að hlustað verði á skjól­stæð­inga sem koma fram með mar­bletti, áverka­vott­orð og sjúkra­skýrslur. Vonandi getum við fengið rík­is­stjórn­ina með okkur í lið,“ sagði Harpa Dögg.

Gígja Skúla­dóttir dvaldi líka á Lauga­landi og hún lýsti því hvernig hrollur fór um hana þegar hún sá frétt af lokun með­ferð­ar­heim­il­is­ins og mynd birt­ist af staðnum. „Frá 14 til 16 ára aldri eyddi ég verstu árum lífs míns á stað þar sem and­legt og lík­am­legt ofbeldi fékk að við­gang­ast. Und­an­farið hef ég verið að rifja þennan tíma sem ég var algjör­lega búin að loka á, koma ,,útur úr skápnum” með þessa reynslu sem hefur fylgt mikil skömm,“ sagði Gígja og heldur áfram:

„Eftir stendur sú sann­fær­ing mín að Barna­vernd­ar­stofa brást okkur stelp­unum algjör­lega. Þrátt fyrir til­kynn­ingar um ofbeldi, áverka­vott­orð og krafa frá umboðs­manni barna að rann­saka heim­ilið varði Bragi Guð­brands­son for­stöðu­mann­inn opin­ber­lega, það var ekk­ert að og ásak­anir um ofbeldi ættu ekki við rök að styð­ast (að hans mati). Málinu var sópað undir teppið og er þar ennþá.“

Harpa Særós

Harpa Særós Magn­ús­dóttir dvaldi líka á Lauga­landi. „Ég átti ekki von á öðru en þetta væri góður staður. Aldrei grun­aði mig það sem var í vændum. Að mig myndi langa að jörðu gleypti mig. Ég var kom­inn í hel­víti. Ég var bara barn,“ sagði Harpa Særós.

Sársaukafull dvöl

„Ég kom þaðan möl­brotin,“ segir Teresa Dröfn Freys­dóttir Njarðvík um vist sín á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi á unga aldri. Líkt og Mannlíf greindi fyrst frá hefur stór hópur kvenna tekið höndum saman og stigið fram með ofbeld­is­sögur gegn þeim meðan þær dvöldu ungar á með­ferð­ar­heim­il­inu að Lauga­landi í Eyja­firði. Heim­il­inu var lokað um ára­mót og kon­urnar fara nú fram á raddir þeirra séu teknar alvar­lega af yfir­völdum. Konurnar lýsa erf­iðri og sárs­auka­fullri dvöl og telja að frá­sögnum þeirra hafi verið sópað undir teppi af hálfu barna­vernd­ar­yf­ir­valda fram til þessa.

Stundin tók svo undir umfjöllum Mannlífs með ítar­legum hætti þar sem sex konur úr hópnum stigu fram með sögur sínar sem snúa að meintu ofbeldi þáver­andi for­stöðu­manns með­ferð­ar­heim­il­is­ins, Ingjaldi Arn­þórs­syni.

Viku síðar fund­aði Ásmundur Daði Ein­ars­son, barna- og félags­mála­ráð­herra, með kvenna­hópnum sem sakar fyrrum for­stöðu­mann með­ferð­ar­heim­il­is­ins að Lauga­landi, Ingjald , um and­legt og lík­am­legt ofbeldi. Konurnar von­uðu að nú yrði loks­ins hlustað á þær.

„Ég var bara barn“

„Ég var varla komin inn úr dyr­unum á Lauga­landi þegar ofbeldið byrj­aði. Tónninn var mjög skýr og sleg­inn á fyrsta degi. Ekkert varð aftur eins. Ég kom þaðan möl­brotin. Ég hef aldrei náð aftur almenni­legu sam­bandi við fjöl­skyldu mína, aldrei náð aftur sjálfs­trausti eftir allt nið­ur­rifið þar og get ómögu­lega treyst fólki, hvort sem það er venju­legt fólk eða aðilar sem eiga að hjálpa,“ sagði Teresa og bætti við:

„Ég vil að barna­vernd­ar­nefnd­irnar við­ur­kenni að starfs­fólk þeirra hafi ekki
fylgst nógu vel með með­ferð­ar­heim­il­inu og í raun þaggað niður það sem þar gekk á. Ég vil almenna við­ur­kenn­ingu og afsök­un­ar­beiðni. Ég er enn að glíma við afleið­ingar þess að hafa lent á þessu heim­ili og ég var í mörg ár að vinna mig upp úr verstu van­líð­an­inni. Ég þjá­ist af áfallastreituröskun og vistin á Lauga­landi á stóran þátt í henni. Ég fæ enn martraðir sem snú­ast um að ég sé læst þarna inni gegn vilja mínum.“

Brynja Skúla­dóttir er ein þeirra sem var vistuð á Lauga­landi en hún var fjórtán ára gömul þegar hún var vistuð á með­ferð­ar­heim­ilnu. Hún fann strax að þar var engin með­ferð í gangi heldur ein­göngu boðið upp á nið­ur­brot þeirra skjól­stæð­inga sem á heim­il­inu voru. „Ég var ekki nei­kvæð þegar mér var sagt að ég yrði send þangað. Líf mitt hafði verið mjög erfitt. Þannig að þegar mér var sagt að ég færi á með­ferð­ar­heim­ili úti á landi var mér létt því ég hélt að ég væri að fá þá aðstoð sem ég þurfti á þessum tíma. Ég átt­aði mig á því fyrsta dag­inn að þarna var ekki verið að bjóða upp á með­ferð heldur nið­ur­brot. Fyrstu dag­arnir voru skelfi­legir og nið­ur­brotið hófst strax,“ sagði Brynja.

Nokkrum mán­uðum eftir að Brynja kom á með­ferð­ar­heimllið kom Gígja, tví­bura­systir hennar, þangað líka. „Frá fyrsta degi átt­aði ég mig á að þetta var staður þar sem ofríki for­stöðu­manns­ins var algjört, þar sem ég var algjör­lega valda­laus. Ingj­aldur lagði sig allan fram við að berja úr mér allan mót­þróa og upp­reisn. Ég veit núna að þetta var útpælt ofbeldi. Sú minn­ing er þó sterk­ust þegar ég var 14 eða 15 ára gömul og þráði ekk­ert meira en að deyja. Ég bað Guð á hverju kvöldi að leyfa mér að sofna og vakna ekki aftur. Ég ótt­að­ist mest að þurfa að vera þarna til 18 ára ald­urs“ sagði Gígja í sam­tali við Stundina.

Kolbrún Þor­steinssdóttir lýsir einnig erf­iðri og sárs­auka­full­tri dvöl á með­ferð­ar­heim­il­inu. „Ég man mjög vel eftir fyrsta deg­inum mínum þarna. Mér fannst stemn­ingin á staðnum mjög skrítin. Þetta var upp­hafið að versta tíma­bili lífs míns sem lit­að­ist af ótta, nið­ur­læg­ingu og algerri und­ir­gefni. Ég var hrædd hvern ein­asta dag meðan ég var þarna, upp­lifði mikið von­leysi. Van­líð­anin var mér næstum um megn,“ segir Kolbrún og heldur áfram:

„Ég er búin að vera að reyna að safna kjarki í mörg ár til að stíga fram og segja frá því sem ég upp­lifði á með­ferð­ar­heim­il­unum Varp­holti og Lauga­landi þegar ég var ung­lingur. Ég vissi alltaf að ég þyrfti að segja frá því sem gerð­ist.“

Dagný Rut Magn­ús­dóttir vonar að barna­vernd­ar­yf­ir­völd hlusti á frá­sagnir þeirra kvenna sem voru vistaðar að Lauga­landi. „Það er frelsi í því að skila skömminni af því að ég er búin að sitja ein með þessa van­líðan alla tíð. Ég var bara barn og átti þetta ekki skilið. Orð lýsa því ekki nógu vel hvernig mér leið þarna. Þetta var hræði­legur tími,“ sagði Dagný Rut.

Haukur bróðir

Í ágúst­mán­uði árið 2007 varð mikil umræða um mál­efni Ingjalds og Lauga­lands. Upphafið að þeim má rekja til þess að Haukur Arn­þórs­son, bróðir Ingjalds, steig fram í DV og hafði áhyggjur af fram­göngu bróður síns í garð bæði Áslaugar Brynjars­dóttur, eig­in­konu hans en einnig vegna lýs­inga sem Haukur sagði að Ingj­aldur hefði haft uppi um með­ferð á stúlk­unum á Lauga­landi.

Í DV á þessum tíma var meðal ann­ars fjallað um per­sónu­leg fjöl­skyldu­mál Ingjalds og Áslaugar og um rekstur með­ferð­ar­heim­il­is­ins að Lauga­landi. Lýsingar Hauks, bróður Ingjalds, komu þar fram og haft eftir honum að að Ingj­aldur hefði lýst því að beita þyrfti stúlk­urnar sem dvöldu í Varp­holti og síðar Lauga­landi lík­am­legu ofbeldi. Sagði Haukur að Ingj­aldur hefði lýst fyrir honum að hann tæki stúlk­urnar meðal ann­ars háls­taki og drægi þær ber­fættar eftir mal­ar­vegi, þar til þær létu undan vilja hans.

Í DV var fjallað um meint ofbeldi Ingjalds á hendur systur hans og sömu­leiðis um ýmsar ávirð­ingar á hendur Ingjaldi er snúa að hans eigin börnum, sem og Áslaugu eig­in­konu hans. Augljóst er á umfjöll­un­inni á þessum tíma að hún er byggð á frá­sögn og áhyggjum Hauks af fram­göngu bróður síns. Í blað­inu er rætt við Hauk sem tjáir sig um hið meinta ofbeldi bróður síns, sem í dag hefur feng­ist stað­fest eftir að kafað var ofan í starf­sem­ina og rætt við fjölda stúlkna sem þar dvöldu.

Ingj­aldur og Áslaug eig­in­kona hans kærðu bæði Hauk og blaða­mann DV vegna skrif­anna. Í hér­aðs­dómi var blaða­mað­ur­inn dæmdur en Haukur sýkn­aður með þeim rökum að hann hafi ekki fengið við­talið sent til sín til yfir­lestrar og þannig ekki sam­þykkt það sér­stak­lega.

Ingj­aldur Arn­þórs­son.

Í sam­tali við Stundina sagð­ist Haukur að hann hafi, eftir að hann steig fram í DV, ekki skipt sér frekar af málum bróður síns, málið hafi á sínum tíma verið mjög erfitt fyrir fjöl­skyld­una. „Ég hef hins vegar heyrt frá þessum stelpum síðar og þær hafa þakkað mér fyrir og sagt að ég hafi verið sá eini sem hafi haft grun um hvað var þarna á ferð­inni og verið til­bú­inn til að stíga fram.“

Kolsvört skýrsla

Loksins varar hlustað á stúlk­urnar. Ásmundur Daði ráð­herra fól Gæða- og eft­ir­lits­stofnun vel­ferð­ar­mála (GEV) „að kanna hvort og þá í hvaða mæli börn, sem vistuð voru á með­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti/Lauga­landi á árunum 1997 til 2007, hafi sætt illri með­ferð, and­legu eða lík­am­legu ofbeldi meðan á dvöl þeirra stóð“. Nefnd, skipuð fjórum sér­fræð­ingum með þekk­ingu á rann­sóknum, barna­vernd og áföllum vann að úttekt­inni og skil­aði á dög­unum kol­svartri skýrslu um með­ferð­ar­starfið að Lauga­landi.

Í skýrsl­unni kemur fram að mik­ill meiri­hluti fyrrum vist­barna seg­ist hafa upp­lifað and­legt ofbeldi, einu sinni eða oftar á með­ferð­ar­tím­anum, eða 30 af 34 ein­stak­lingum. Voru þessar frá­sagnir oft­ast af ótta­stjórnun, harð­ræði eða nið­ur­broti, aðal­lega af hendi for­stöðu­manns en einnig for­stöðu­konu. Margir við­mæl­endur sögðu frá fleiri atvikum en einu. Samtals 27 úr við­mæl­enda­hópnum greindu frá atvikum sem fela í sér ein­hvers konar ótta­stjórnun eða harð­ræði af hendi for­stöðu­að­ila.

Alls 20 vist­börn af 34 töl­uðu um mót­tök­urnar þegar þau komu fyrst á Lauga­land og 12 lýstu nei­kvæðri upp­lifun. Alls 14 vist­börn af 34 sögð­ust hafa verið beitt lík­am­legu ofbeldi. Í frá­sögnum 12 þeirra er for­stöðu­mað­ur­inn til­greindur ger­andi, en tvær stúlkur til­greina for­stöðu­kon­una. Til við­bótar sögð­ust 11 hafa orðið vitni að því að lík­am­legu ofbeldi hafi verið beitt af hálfu for­stöðu­manns.

Alls 10 vist­börn af 34 kvört­uðu yfir að sím­töl hafi verið hleruð, sem hafi gert það að verkum að þau hafi ekki geta talað eins frjáls­lega og þau hefðu viljað. Alls 13 vist­börn af 34 töl­uðu um að hafa upp­lifað reglur um fatnað og eigur á nei­kvæðan hátt og jafn­framt að hafa ekki mátt hlusta á þá tón­list sem þau vildu. Þá hafi verið gerðar athuga­semdir við útlit þeirra og ein stúlka lýsir því að hafa þurft að láta klippa og aflita á sér hárið gegn vilja sínum.

Alls 9 vist­börn af 34 sögð­ust hafa reynt að kvarta á ein­hverjum tíma­punkti við
barna­vernd­ar­starfs­mann eða Barna­vernd­ar­stofu og upp­lifðu að það hefði engu breytt.

Helstu nið­ur­stöður Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar vel­ferð­ar­mála um með­ferð­ar­heim­ilið í Varp­holti og á Lauga­landi árin 1997-2007:

  • Miðað við fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar mátti greina að hóp­ur­inn sem kom til dvalar á með­ferð­ar­heim­il­inu að Varp­holti/Lauga­landi á árunum 1997-2007 hafði ólíkan bak­grunn og að vandi barn­anna var oft og tíðum fjöl­þættur og þarf­irnar flóknar.
  • Sál­fræði­þjón­ustu fyrir börnin á með­ferð­ar­heim­il­inu var ábóta­vant og að ekki hafi verið brugð­ist á full­nægj­andi hátt við ákalli um að hún yrði aukin til að mæta þörfum skjól­stæð­ing­anna.
  • Þegar ljóst varð hve algengt það var að skjól­stæð­ingar heim­il­is­ins hefðu orðið fyrir áfalli og ofbeldi og glímdu við afleið­ingar þess, áður en dvölin hófst, hefði þurft að mæta því á mark­viss­ari hátt og gefa vinnu með afleið­ing­arnar mun meira rými í með­ferð­ar­starf­inu.
  • Yfir­gnæf­andi meiri­hluti fyrrum vist­barna, er við­tölin náðu til, upp­lifðu and­legt ofbeldi við dvöl­ina í Varp­holti og á Lauga­landi, sem lýsti sér í ótta­stjórn, harð­ræði og nið­ur­broti. Sterkar vís­bend­ingar eru um að alvar­legu and­legu ofbeldi hafi verið beitt með kerf­is­bundnum hætti. Frá­sagnir eru frá um helm­ingi fyrrum vist­barna, sem við­töl voru tekin við, af lík­am­legu ofbeldi og áreitni og önnur börn urðu vitni að slíku.
  • Eft­ir­lits­skylda barna­vernd­ar­yf­ir­valda brást að því leyti að þau hefðu átt að bregð­ast við ákalli um aukna geð­heil­brigð­is­þjón­ustu, hefðu átt að sker­ast í leik­inn þegar ljóst var hve mikið álag hvíldi á starfs­fólki með­ferð­ar­heim­il­is­ins og að skoðun á dag­bókum og fund­ar­gerð­ar­bókum hefði átt að vekja grun­semdir um nei­kvæð við­horf í garð vist­barna og gefa til­efni til að kanna hvort þau end­ur­spegl­uð­ust í fram­komu við þau.
  • Á þessum tíma, er athug­unin nær til, var til gagn­reynd þekk­ing um afleið­ingar áfalla í æsku. Nokkuð ljóst er að á þeim tíma hafði sú fag­lega þekk­ing ekki verið inn­leidd í með­ferð­ar­úr­ræði Barna­vernd­ar­stofu á með­ferð­ar­heim­il­inu í Varp­holti og á Lauga­landi.

Í skýrsl­unni má finna frek­ari lýs­ingar stúlkn­anna að Lauga­landi og svör for­stöðu­fólks með­ferð­ar­heim­il­is­ins. Hana má í heild sinni lesa hér.

Með­ferð­ar­heim­ilið að Lauga­landi:
Sérhæft fyrir stúlkur með hegð­un­ar­vanda Með­ferð­ar­heim­ili var rekið að Lauga­landi síðan
í sept­em­ber 2000 en var áður í Varp­holti í Hörg­ár­byggð frá stofnun 1997. Það var rekið sem fjöl­skyldu­heim­ili og bjuggu hjónin þar ásamt tveimur börnum sínum og þeim ung­lingum sem þar voru vistaðir hverju sinni.
Að Lauga­landi var rekið með­ferð­ar­úr­ræði fyrir ung­linga á aldr­inum 13 til 18 ára með fjöl­þættan hegð­un­ar­vanda. Gert var ráð fyrir að þar vist­ist að jafn­aði sex til átta ung­lingar í einu og skap­að­ist sú hefð að vista ein­ungis stúlkur á staðnum.

For­stöðu­hjónin að Lauga­landi.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi