Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Unnur Ösp segist særð eftir gagnrýnina – Á fatlað barn: „Það hryggir óendanlega“

Unnur Ösp Stef­áns­dóttir, leik­stjóri söng­leiks­ins Sem á himni, segir sig knúna til að stinga niður penna og koma leik­rit­inu til varnar. Nína Hjálm­ars­dóttir, gagn­rýn­andi á RÚV, var ekki hrifin af verk­inu, sem frum­sýnt var á stóra sviði Þjóð­leik­hús­inu á dög­unum, og sagði verkið nið­ur­lægja fatl­aða.

Þrátt fyrir þetta segir Unnur Ösp að mál­efni fatl­aðra standi henni nærri enda eigi hún fatlað barn. Hún skrifar á Facebook: „Ég finn mig knúna til að stíga inn í umræðu um gagn­rýni á leik­sýn­ing­una Sem á himni. Sýningu sem ég ber ábyrgð á að leik­stýra og þar með taka end­an­lega list­rænar ákvarð­anir um.  Málefni fatl­aðra standa mér per­sónu­lega mjög nærri. Ég þekki það af eigin raun hvernig er að eiga fatlað barn sem tekst á við sam­bæri­legar ef ekki návæm­lega sömu áskor­anir og per­sóna Dodda, fatl­aða drengs­ins í umræddu verki. Ég ákvað að taka að mér leik­stjórn á þess­ari sögu m.a. af þeirri ástæðu að vekja athygli á stöðu fatl­aðra í sam­fé­lagi okkar. Því miður erum við stutt komin þegar kemur að rétt­indum og virð­ingu þessa hóps, því mæti ég á hverjum degi,“ segir Unnur.

Hún segir fatl­aða þurfa að standa frammi fyrir ýmsu mót­læti. „Þeim er útskúfað, þau kom­ast ekki í fram­halds­nám, þeim er vísað úr íþrótta­hreyf­ing­unni, þykja ekki passa í hóp­inn. Auðvitað er þetta ekki alls staðar raunin, en því miður of víða. Það er þess vegna sem þessi ein­falda sögn, sem er í raun grunn þráður verks­ins Sem á himni, er mér mik­il­væg. Að við sem sam­fé­lag virkum ekki nema við hleypum öllum að borð­inu. Í til­felli Dodda í verk­inu finnur kór­inn ekki sinn “rétta” tón fyrr en fatl­aði ein­stak­ling­ur­inn fær að syngja með. Þetta er djúp og mik­il­væg sögn fyrir mig per­sónu­lega. Að eiga fatlað barn er ynd­is­legt og mín stærsta gjöf í líf­inu en það getur líka verið brú­tal, ljótt, erfitt, vandæða­legt, banalt og óþægi­legt,“ segir Unnur Ösp.

Hún seg­ist særð eftir þetta. „Það sem særir því óend­an­lega mikið í þarfri og magn­aðri umræðu sem ég fagna manna mest er sú til­finn­ing mín að þegar við sýnum sann­leika þess­arar per­sónu í sinni tær­ustu mynd, þá finnst okkur áhorf­endum erfitt, jafn­vel óbæri­legt að horfa á það. Það er ekki rétt gert, það er leikið af röngum aðila, við hefðum átt að milda, breyta, sleppa, strika hlut­verkið. Í lífi sumra eru þessar áskor­anir sem per­sónan fæst við dag­legt brauð. Ég vildi því síst milda það eða fara um það mjúkum höndum. Ég vildi alls ekki draga úr þeim ömur­legu for­dómum sem per­sónan mætir af sam­fé­lag­inu í sög­unni. Ég valdi að fá næman lista­mann til að túlka þessa per­sónu af virð­ingu, skiln­ingi og kær­leika. Það hryggir óend­an­lega ef það kemur ekki yfir til allra.“

Hún segir samt mik­il­vægt að eiga þetta sam­tal. „Við eigum að þora inn í þetta erf­iða sam­tal. Það er sárs­auki í þessu sam­tali en við verðum að taka það. Þannig hreyfum við sam­fé­lagið og til­veru­rétt fatl­aðra per­sóna í sög­unum sem við viljum segja í leik­hús­inu. Og ekki síst þurfum við fókus á rétt­indi fatl­aðra í sam­fé­lag­inu öllu, stofn­unum þess, list­námi og víðar. Raddir fatl­aðar verða að heyr­ast og það sem aldrei fyrr. Og það á vett­vangi sem getur náð augum og eyrum sem flestra. Þessi umræða er miklu stærri og mik­il­væg­ari en ein­staka leik­sýn­ing. Við í Þjóð­leik­hús­inu boðum til mál­þings um leik­húsið og birt­ing­ar­mynd raun­veru­leik­ans innan þess og stígum af þunga inn í þessa umræðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina