Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Halldóra vill afglæpavæða neysluskammta: „Fíkn er ekki eitthvað sem fólk velur sér“

Halldóra vill afglæpavæða neysluskammta: „Fíkn er ekki eitthvað sem fólk velur sér“
Halldóra Mogensen.

Bindum enda á stríðið gegn vímu­efna­not­endum er yfir­skrift greinar sem þing­maður Pírata, Halldóra Mogensen, ritar um hið grimmi­lega stríð gegn vímu­efnum og not­endum þeirra:

„Stríðið gegn vímu­efnum er í raun stríð gegn fólki, stríð gegn vímu­efna­not­endum. Skylda yfir­valda er að verja fólkið í land­inu en ekki fara í stríð gegn þeim. Afleið­ing stríðs­ins er sú harða refsi­stefna sem hefur verið við lýði á Íslandi í ára­tugi. Hún byggir á þeirri hug­mynd að besta leiðin til að draga úr neyslu sé að banna alla vörslu og með­ferð vímu­efna og að refsa öllum þeim sem ger­ast sekir um slíkt, óháð því hvort við­kom­andi sé not­andi, sölu­að­ili, fram­leið­andi eða inn­flytj­andi.“

Hún bendir einnig á að „sam­hliða hörðum refs­ingum hefur miklum hræðslu­á­róðri um vímu­efni og neyslu þeirra verið beitt. Enn þann dag í dag eru vímu­efna­not­endur upp­mál­aðir í fjöl­miðlum sem stór­hættu­legir sam­fé­lag­inu.

Síðustu ár hafa við­horfin þó bless­un­ar­lega verið að breyt­ast. Við erum byrjuð að tala um fíkni­vanda á yfir­veg­að­ari og ígrund­aðri hátt og hug­takið „skaða­minnkun“ hefur rutt sér rúms í almennri umræðu.“

Halldóra færir í tal að „stað­reynd­irnar um bann- og refsi­stefn­una mála ekki mjög fagra mynd; í skugga stefn­unnar hefur neysla vímu­efna auk­ist jafnt og þétt, og vanda­málum tengt neysl­unni hefur fjölgað gríð­ar­lega.

Það ætti að vera öllum ljóst að núver­andi stefna, sem gengur út á að banna vörslu og neyslu vímu­efna, er í besta falli gagns­laus og í versta falli skað­leg. Fíkn er nefni­lega ekki eitt­hvað sem fólk velur sér. Fíkn er ekki sið­ferðis- eða skap­brestur, og það er ekki heldur afleið­ing slæms inn­rætis eða vilja­leysis – fíkn er ekki hægt að lag­færa með refs­ingum. Þvert á móti er fíkn við­bragð við mann­legri þján­ingu. Það er í eðli okkar allra að flýja þján­ingu. Þegar okkur verkjar fáum við okkur verkja­lyf – og okkur þykir það sjálf­sagt. En þegar mann­eskja þjá­ist af and­legum sárs­auka sökum áfalla sem aldrei hefur feng­ist aðstoð við og sæk­ist í verkja­lyf sem henni hefur ekki verið ávísað þykir okkur sjálf­sagt að refsa henni með því að taka af henni lyfin og sekta eða mögu­lega fang­elsa hana í stað þess að hjálpa þess­ari mann­eskju, hlúa að henni og veita henni sjálf­sagða heil­brigð­is­þjón­ustu.“

Halldóra segir að „sam­fé­lagið ætlar að „aðstoða“ þessa mann­eskju með því að gera hana að glæpa­manni, jað­ar­setja hana, telja henni trú um að hún sé biluð. Henni er mein­aður aðgangur að því sem hún þarf mest á að halda; kær­leik, hlýju, skiln­ing, – hún þarfn­ast hóps­ins síns og við útskúfum hana. Afglæpa­væð­ing sem skaða­minnk­unar­úr­ræði Það er kom­inn tími til þess að við bindum enda á refsi­stefn­una – og þess vegna er ég að leggja fram frum­varp um afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta vímu­efna.“

Hún ljær máls á því að „frum­varpið er ein­falt. Inn­flutn­ingur, útflutn­ingur, kaup, sala og fram­leiðsla vímu­efna verður enn óheimil með lögum – en varsla efna innan skil­greindra marka verður gerð refsi­laus.

Ef frum­varpið nær fram að ganga getum við því strax hætt að refsa fólki fyrir það eitt að vera með á sér vímu­efni til eigin nota. Því það er alveg deg­inum ljós­ara – að það er nákvæm­lega engin aðstoð og engin for­vörn falin í því að jað­ar­setja, fang­elsa, sekta eða taka efnin af fólki, og þá skiptir engu máli hvort um er að ræða ein­stak­ling með fíkni­vanda eða ekki.“

Halldóra segir að lokum að „þegar við hættum loks­ins að heyja stríð gegn jað­ar­setta fólk­inu í sam­fé­lag­inu okkar þá getum við sett ork­una okkar og fjár­magn í að draga úr þján­ingu, að aðstoða fólk við að vinna úr áföllum og græða sár. Byggjum upp með­ferð­ar­úr­ræði sem grund­vall­ast á því að vinna úr áföllum og bjóða upp á lausnir sem leysa lík­am­lega, and­lega- og félags­lega vand­ann sem skapar fíkn­ina. Það er þannig sem við náum árangri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina