Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Erna Ýr efast um ekkert í Rússlandi: „Þeir sem reyna að „svindla“ verða sóttir til saka“

Erna Ýr efast um ekkert í Rússlandi: „Þeir sem reyna að „svindla“ verða sóttir til saka“

Erna Ýr Öldu­dóttir, sem er hvað þekkt­ust fyrir vafa­samar skoð­anir sínar, er mætt til Moskvu. Þar fylgd­ist hún í gær með kosn­ingum sem fáir utan Rúss­lands taka mark á. Hún sá ekk­ert athuga­vert við fram­kvæmd þeirra, enda allt svindl bannað sam­kvæmt emb­ætt­is­mönnum sem hún ræddi við.

Umræddar kosn­ingar eru á vegum stjórn­valda í Rúss­landi og lepp­stjórnar hernumda svæða í Úkraínu. Kosið er um hvort téð svæði verði inn­limuð í Rússland. Óhætt er að segja að fáir nema banda­menn Rússland taki mark á þessum kosn­ingum eða telji þær lög­mætar.

Erna Ýr er löngu orðin þekkt meðal lands­manna fyrir efa­hyggju, svo sem hvað varðar hlýnun jarðar eða gagn bólu­setn­ingar gegn COVID. En sú efa­hyggja virð­ist hafa gufað upp í Rúss­landi. Hún skrifar frétt fram­kvæmd kosn­ing­anna sem birt­ist á Frétt­inni.is, en rit­stjór­inn Margrét Frið­riks­dóttir var fjarri góðu gamni þar sem henni var meinað að ferð­ast með Icelandair fyrir helgi.

Erna Ýr lýsir fram­kvæmd kosn­ing­anna svo: „Kjör­stjórnir eru ein­göngu mann­aðar fólki frá svæð­unum sem nú ganga til atkvæða­greiðsl­unnar, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem blaða­maður fékk á staðnum. Til að fá kjör­seðil, þarf að sýna skil­ríki, vega­bréf útgefið á umræddum svæðum og fylla út umsókn­ar­eyðu­blað. Blaða­maður fylgd­ist með í fram­kvæmd þegar kjós­endur komu til að greiða atkvæði. Þeir sem myndu reyna að kjósa oftar en einu sinni eða reyna með öðrum hætti að „svindla“ verða sóttir til saka af stjórn­völdum, skv. kjör­stjórn.“

Samkvæmt henni virð­ist ein­ungis eitt varpa skugga á þessar kosn­ingar, þver­móðska Úkra­ínu­manna. „Ónefndur heim­ilda­maður greindi frá því að faðir hennar sé íbúi í Donetsk, sem sé undir stöð­ugum sprengju­árásum frá úkra­ínska hernum. Til við­bótar gerði úkra­ínski her­inn sprengju­árás á hótel í Kherson í gær, þar sem tveir almennir borg­arar létu lífið. Færa þurfti einn kjör­stað vegna árásanna og ann­ars­staðar var rætt um að kjósa í loft­varna­byrgi. Talið er að árás­irnar nú séu til að hræða fólk frá því að mæta á kjör­stað,“ segir Erna Ýr og bætir við:

„Til við­bótar hafa stjórn­völd í Kænu­garði hótað þeim allt að fimm og jafn­vel tíu ára fang­els­is­vist sem taka þátt í atkvæða­greiðsl­unni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina