Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Anna segir af sér vegna „grófs kynferðislegs ofbeldis“ í Ferðafélagi Ísland

Anna segir af sér vegna „grófs kynferðislegs ofbeldis“ í Ferðafélagi Ísland
©Kristinn Ingv­ars­son Anna Dóra Sæþórs­dóttir Mynd: KRISTINN INGVARSSON / Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

Anna Dóra Sæþórs­dóttir, for­seti Ferða­fé­lags Íslands og pró­fessor við Háskóla Íslands, til­kynnir á Facebook að hún segi af sér sem for­seti félags­ins. Hún seg­ist hafa gef­ist upp á að takast á við „gróft kyn­ferð­is­legt ofbeldi“ í félag­inu.

Anna Dóra skrifar:

Kæru vinir, rétt í þessu sendi ég til­kynn­ing­una hér að neðan til Ferða­fé­lags Íslands þar sem ég til­kynni um afsögn mína sem for­seti félags­ins. Það er með miklum trega sem ég geri það en eins og kemur fram í bréf­inu þá vil ég ekki starfa í félagi þar sem stjórn­ar­hættir og sið­ferð­is­leg gildi, sem ganga þvert á mín eigin gildi, ráða ríkjum. Ég hef reynt að vinna að breyt­ingum en innan stjórnar hefur ekki verið vilji til að breyta starfs­háttum og því skilja leiðir. Ástæður afsagn­ar­innar geri ég opin­berar því mér finnst rétt að upp­lýsa félags­fólk um þau mál sem eru í gangi innan félags­ins.

…

Þann 8. júní 2021 var ég kjörin for­seti Ferða­fé­lags Íslands á aðal­fundi félags­ins. Það var mér mik­ill heiður að vera valin til að gegna þessu emb­ætti, fyrst kvenna, enda hefur Ferða­fé­lagið fylgt mér síðan ég, sem lítil stúlka, hóf að ferð­ast um Ísland með móður minni, í hinum ýmsu ferðum félags­ins. Ég hef bæði menntun og reynslu sem hentar vel í starfi sem for­seti Ferða­fé­lags­ins. Ég er pró­fessor í ferða­mála­fræði við Háskóla Íslands og hef rann­sakað marg­vís­leg mál­efni ferða­þjón­ust­unnar, meðal ann­ars þol­mörk ferða­manna, sér í lagi á mið­há­lend­inu. Ég hef einnig mikla stjórn­un­ar­reynslu, þar sem ég hef meðal ann­ars verið deild­ar­for­seti Líf- og umhverf­is­vís­inda­deildar Háskóla Íslands und­an­farin sex ár, verið for­maður fag­hóps á vegum stjórn­valda um ramma­á­ætlun (Áætlun um vernd og orku­nýt­ingu land­svæða) í meira en ára­tug og setið í ýmsum stjórnum.

Fljót­lega eftir kosn­ingu fóru mér að ber­ast upp­lýs­ingar um ýmis mál sem ekki hafði verið brugð­ist við af hendi félags­ins, heldur virt­ist upp­lýs­ingum ítrekað hafa verið stungið undir stól, hvort sem þær vörð­uðu ásak­anir um áreitni og gróft kyn­ferð­is­legt ofbeldi eða athuga­semdir um rekstur félags­ins. Þegar ég fór að beita mér fyrir því að tekið yrði á þessum málum og öðrum fór að bera á brestum í sam­starfi mínu við stjórn og fram­kvæmda­stjóra.

Alvar­leg­ustu málin snertu ein­stak­linga sem höfðu gerst brot­legir á siða­reglum félags­ins eða verið ásak­aðir um áreitni eða gróft kyn­ferð­is­legt ofbeldi. Æðstu stjórn­endur félags­ins höfðu haft upp­lýs­ingar um þessi mál í lengri tíma, án þess að taka á þeim. Þvert á móti fengu þeir sem þessum sökum voru bornir að starfa áfram sem far­ar­stjórar á vegum félags­ins. Eitt þess­ara mála varð­aði stjórn­ar­mann í félag­inu. Ég beitti mér fyrir því að tekið yrði á þessum málum af festu og setti af stað athugun á þeim, sem og end­ur­skoðun á stefnu og ferlum félags­ins þegar kemur að slíkum málum. Í kjöl­farið voru þessi mál til lykta leidd, og það síð­ast­nefnda með því að við­kom­andi stjórn­ar­maður sagði sig úr stjórn.

Mér til undr­unar kom upp mik­ill ágrein­ingur í stjórn félags­ins varð­andi með­höndlun ofan­greindra mála og innan stjórnar voru ein­stak­lingar sem vildu ekki taka á þeim. Sam­starfsörð­ug­leikar hafa verið í stjórn­inni allt frá því að þessi mál komu upp. Ég taldi hins vegar að það væri ætlun stjórnar að halda ótrauð áfram eftir afgreiðslu þeirra. Mér kom því á óvart þegar ákveðnir stjórn­ar­menn vildu fljót­lega taka aftur upp málið sem varð­aði stjórn­ar­mann­inn fyrr­ver­andi, fáum mán­uðum eftir að það var til lykta leitt með úrsögn hans úr stjórn félags­ins. Einn af þessum stjórn­ar­mönnum, sem er góð­vinur þessa fyrr­ver­andi stjórn­ar­manns, hefur beitt sér af hörku fyrir því að stjórn­ar­mað­ur­inn fyrr­ver­andi fái aftur að starfa fyrir hönd félags­ins, þrátt fyrir að engin mál­efna­leg eða við­skipta­leg rök séu fyrir því. Sá sem sagði af sér hefur enga sér­hæfða þekk­ingu til starfa innan félags­ins, sem fjöldi ann­arra getur ekki innt jafn­vel af hendi. Ávinn­ingur af slíkri ráð­stöfun væri því eng­inn fyrir Ferða­fé­lagið en myndi hins vegar valda félag­inu orð­spors­á­hættu og mögu­lega aftra fólki frá þátt­töku í ferðum félags­ins, auk hætt­unnar á því að fyrri hegðun myndi end­ur­taka sig og aðrar konur yrðu fyrir áreitni. Helstu rökin sem notuð voru til að rétt­læta end­ur­komu umrædds fyrr­ver­andi stjórn­ar­manns voru að hann væri „vinur okkar“ og að „við skuld­uðum honum“. Það er að mínu mati óeðli­legt að stjórn­ar­fólk taki þátt í umræðu og ákvörð­unum um vini sína og beiti aðstöðu sinni til að veita þeim sér­staka fyr­ir­greiðslu.

Nýlega bár­ust mér upp­lýs­ingar um enn eitt málið (áreitni og ósæmi­leg hegðun í skipu­lagðri ferð á vegum félags­ins) sem snertir stjórn­ar­mann í félag­inu, sem hafði ekki verið með­höndlað í sam­ræmi við stefnu félags­ins. Þegar ég fékk veður af mál­inu og óskaði eftir upp­lýs­ingum um það, voru við­brögðin þau að hafa uppi óbeinar hót­anir gagn­vart far­ar­stjóra ferð­ar­innar, auk þess sem haft var sam­band við vin­konu kon­unnar sem fyrir áreit­inu varð. Þeim var til­kynnt að það myndi hafa afleið­ingar ef þetta mál yrði rætt frekar. 

Fleiri mál hafa komið upp sem hafa valdið ágrein­ingi og sam­starfsörð­ug­leikum innan stjórnar en þar má bæði nefna almennan rekstur félags­ins og stjórn­ar­hætti þess. Ítrekað var kvartað undan spurn­ingum mínum um rekstur félags­ins en hann heyrir beint undir ábyrgð­ar­svið for­seta og stjórnar. Sagt var að ég ætti að ein­beita mér að þeim þáttum sem ég hafi sér­þekk­ingu á, sem sé ferða­málum, nátt­úru­vernd og umhverf­is­málum. Þetta hafði þau áhrif að ég fór að veigra mér við því að spyrja spurn­inga til að halda frið­inn. Í því sam­hengi er vert að nefna að ein af meg­in­skyldum stjórnar er að hafa eft­ir­lits­hlut­verk með stjórn­endum og starf­semi félags­ins og slíkt er ómögu­legt ef stjórn stuðlar að menn­ingu og and­rúms­lofti þar sem spurn­ingar eru illar séðar.

Nið­ur­staða mín er að innan stjórnar og meðal stjórn­enda sé fólk sem ber ekki hags­muni félags­ins og félags­manna fyrir brjósti. Áherslan hjá þessu fólki virð­ist vera að við­halda ákveðnu valda­jafn­vægi þar sem emb­ættum og verk­efnum er úthlutað til stjórn­ar­fólks og vina og ekki er tekið á málum sem snerta þá sem tengj­ast þessum ein­stak­lingum. Þessi hópur bregst ókvæða við þeim sem reyna að breyta því hvernig félagið vinnur ef slíkt kynni að raska valda­jafn­væg­inu.

Þetta valda­jafn­vægi end­ur­spegl­ast kannski hvað best í sam­setn­ingu stjórnar. Í stjórn félags­ins og starfs­manna­hópi situr fólk sem teng­ist sterkum böndum, ýmist í gegnum það að hafa setið mjög lengi í stjórn­inni, sumir vel á annan ára­tug, eða með fjöl­skyldu- og vina­böndum. Til­raunum til að breyta þessu í aðdrag­anda síð­asta aðal­fundar var illa tekið. Formaður kjör­nefndar, vinur þess stjórn­ar­manns sem sagði sig úr stjórn­inni vegna metoo-mála, virti að vettugi óskir mínar um að inn í stjórn­ina kæmi ung kona og lagði þess í stað til að vinur fram­kvæmda­stjóra félags­ins yrði stjórn­ar­maður. Gekk það eftir.

Fyrr­greind mál­efni hafa orðið þess vald­andi að ákveðið stjórn­ar­fólk sýnir mér óvild og dóna­skap og hefur reynt að úti­loka mig frá starfi félags­ins. Þetta kemur hvað skýr­ast fram í bréfi sem ég fékk frá meiri­hluta stjórnar þann 1. júní síð­ast­lið­inn þar sem mér var bannað að vera í sam­skiptum við fram­kvæmda­stjóra, starfs­fólk skrif­stofu félags­ins og annað stjórn­ar­fólk næstu mán­uði. Ég átti engu að síður að sitja áfram sem for­seti með þeirri ábyrgð sem í því felst. Þetta bréf er í raun birt­ing­ar­mynd þeirra stjórn­ar­hátta sem tíðkast innan félags­ins og fram­komu meiri­hluta stjórnar í minn garð.

Ég vil ekki starfa í félagi þar sem stjórn­ar­hættir og sið­ferð­is­leg gildi sem ganga þvert á mín eigin gildi ráða ríkjum. Ég hef enn fremur ekki áhuga á að starfa með hópi þar sem úti­lokun og dóna­skapur eru talin ásætt­an­leg hegðun. Það er von mín að starfs­hættir félags­ins breyt­ist því að sam­fé­lagið hefur breyst og mik­il­vægt er að stærsta úti­vi­star­fé­lag lands­ins taki mið af þeim sið­ferð­is­gildum sem ríkja í þjóð­fé­lag­inu. Þar sem ekki virð­ist vera vilji innan stjórnar félags­ins að breyta þessu segi ég hér með af mér sem for­seti Ferða­fé­lags Íslands.

Það er von mín að félagar í Ferða­fé­lagi Ísland muni á kom­andi miss­erum beita sér fyrir breyttum starfs­háttum og sið­bót innan félags­ins. Þangað til að svo verður hef ég ekki áhuga á því að starfa frekar innan félags­ins og segi mig hér með einnig úr félag­inu.

Virð­ing­ar­fyllst,

Anna Dóra Sæþórs­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina