Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Anastasia lifði í ótta og örvæntingu: „Mér var orðið sama. Það var líklega það versta“

Anastasia lifði í ótta og örvæntingu: „Mér var orðið sama. Það var líklega það versta“
Anastasia Pri­bylova

„Rússland hefur alltaf vakið hjá mér hræðslu. Ég vissi að stríðið myndi hefj­ast í raun­inni mán­uði áður en það gerð­ist. Ég bara fann það á mér. Ætt­ingjar mínir trúðu mér ekki og sögðu að ég væri orðin rugluð. Og ég bjó mig undir stríðið. Ég átt­aði mig á því að Kharkov, borgin þar sem ég bjó, yrði skot­mark þar sem hún er nálægt landa­mærum Rúss­lands. Heimili mitt var í 40 kíló­metra fjar­lægð frá landa­mær­unum. Ég safn­aði saman ýmsum skjölum og hlutum, sank­aði að mér mat og lyfjum og spar­aði pen­ing­ana. Ég horfði á mynd­bönd um hvernig eigi að lifa af í stríði, hvernig eigi að þekkja vopn og hvernig eigi að haga sér í skot­hríð. Þetta var erf­iður mán­uður,“ segir Anastasia Pri­bylova, 32 ára gömul úkra­ínsk kona sem flúði frá Úkraínu og er komin til Íslands. „Ég beið á hverjum degi eftir að inn­rásin hæf­ist og efað­ist ekki í eina sek­úndu um að af þessu yrði.“

Ég átt­aði mig á því að stríðið væri hafið.

Anastasia seg­ist hafa vaknað hálf­fimm að morgni 24. febr­úar þegar sprengju var varpað í nágrenni heim­ilis hennar. „Ég átt­aði mig á því að stríðið væri hafið. Ég fékk því ekki sjokk þar sem ég hafði vitað að þetta myndi ger­ast. Ég opn­aði glugga og heyrði í loft­varna­kerfi í nágrenn­inu. Ég klæddi mig svo og hringdi í mömmu. Síðan safn­aði ég ýmsu saman fyrir utan það sem var til­búið og beið eftir fréttum yfir­valda. Ég sá út um glugg­ann fólk með töskur hlaupa í átt að neð­an­jarð­ar­lest­inni og fólk ók bílum frá bíla­stæð­inu við húsið. Fólk hljóp hrætt út á götu og það skildi eng­inn hvað var að ger­ast.“

Anastasia segir að fyrstu útvarps­fréttir um inn­rás­ina hafi komið klukkan sjö um morg­un­inn. „Þá fékk ég sjokk vegna þess að það var sagt að ráð­ist hafi verið inn í allt landið og þar á meðal Kyiv. Mér skild­ist að það væri meiri hætta á að maður myndi láta lífið í fjöl­býl­is­húsi heldur en í sér­býli og í hús­inu sem ég bjó í var eng­inn staður sem hægt var að nota sem sprengju­byrgi og fannst mér vera hræði­leg til­hugsun að verða kannski grafin lif­andi undir rústum ef sprengja félli á húsið. Ég hringdi því í vin minn sem bjó í sér­býli í nágrenn­inu og spurði hvort ég og Gleb, 10 ára gam­all sonur minn, mættum koma og leita þar skjóls sem var vel­komið.“

Dauðinn hversdagslegur

Anastasia og Gleb bjuggu í Kharkov í tvo mán­uði í húsi vinar hennar eftir að stríðið skall á.

„Ég gekk í gegnum margt á þessum tíma. Fyrst um sinn leit­uðum við okkur oft skjóls í kjall­ar­anum en svo vék ótt­inn fyrir örvænt­ingu og afskipta­leysi. Mér var orðið sama. Það var lík­lega það versta. Ég heyrði í alls konar vopnum á þessum tíma og lærðum við að greina hversu langt í burtu spreng­ing­arnar voru og hverjir voru að skjóta – Úkra­ínu­menn eða rúss­neska her­námsliðið. Það hræði­leg­asta var þegar við sátum á nótt­unni í köldum kjall­ar­anum og rúss­neskar orystu­þotur flugu yfir húsið. Ég man enn eftir hljóð­inu í þeim.“

Dauðinn varð hvers­dags­legur.

Anastasia svaf lítið á þessum tíma. „Stundum svaf ég í nokkra klukku­tíma á dag­inn. Eitt kvöldið féll sprengja nálægt hús­inu og það er krafta­verk að við skyldum lifa af. Og einu sinni vorum við að aka í bíl eftir að hafa verið að versla og sprengja sprakk rétt hjá og þá hélt ég að það væri endir­inn. Ég hélt að það yrði eitrað fyrir okkur ef Rússar kæmu inn í borg­ina. Það voru fréttir frá Bucha, Irpen og fleiri stöðum þar sem konum og börnum var nauðgað. Ég vildi ekki upp­lifa það og fannst að þá væri betra að taka eigið líf. Ég var hrædd við að yfir­gefa borg­ina þar sem ég myndi deyja á leið­inni. Dauðinn varð hvers­dags­legur. Ég gæti dáið á hverri sek­úndu og á hverjum degi. Og ég fór að meta og elska lífið meira en nokkru sinni fyrr. Ég hætti að vera hrædd; ég átt­aði mig á því að ég var ekki hrædd við neitt lengur. Ég fann fyrir tómarómi og gleð­inni fyrir að vera enn á lífi.“

Tvisvar sinnum taugaáfall

Anastasia ákvað að flýja 19. apríl. „Ég hafði engu meiru að tapa í Úkraínu. Og ég tóká­hættu. Ég keypti lest­ar­miða til Lviv og hringdi í úkra­ínskan vin minn sem hafði búið í Varsjá í fjögur ár. Hann spurði mig ekki að neinu heldur sagði bara að hann myndi hitta okkur þegar við kæmum.“

Anastasia sagð­ist hafa verið ákveðin í að fara beint til Íslands. „Ef ég á að vera hrein­skilin þá hafði mig í þrjú ár dreymt um að búa á Íslandi en mér datt aldrei í hug að draumur minn myndi ræt­ast með þessum hætti. Mamma, sem hafði farið til Þýska­lands tveimur vikum áður en ég tók þessa ákvörðun, fór að ýta á mig að koma til Þýska­lands og heim­sækja hana. Ég hugs­aði málið og ákvað að fara til hennar. Þetta var álags­tími og ég gafst upp. Íslands­draum­ur­inn var settur á bið.“

Ég gat ekki skilið hvers vegna sumir nágrannar okkar voru að drepa okkur á meðan aðrir voru að bjarga okkur og létu sér annt um okkur.

Svo tók við langur akstur til Lviv og þurfti tvisvar sinnum að stoppa í klukku­tíma í senn vegna við­vör­unar um loft­árás. Anastasia seg­ist ekki hafa vitað hvort hún kæm­ist á ákvörð­un­ar­stað. „Ég var ekki hrædd og mér var alveg sama. Ég var ein­fald­lega þreytt.“ Svo tók við sex tíma bið eftir rút­unni sem færi til Varsjár. „Þegar við vorum komin yfir landa­mæri Póllands átt­aði ég mig ekki strax á því að ég væri örugg,“ segir Anastasia og talar um gest­risni Pólverja sem kom henni á óvart. „Pólskir sjálf­boða­liðar voru við landamæra­stöð­ina og buðu þeir meðal ann­ars upp á mat, drykki, lyf og leik­föng fyrir börn. Ég stóð þar grát­andi. Ég var í sjokki. Ég gat ekki skilið hvers vegna sumir nágrannar okkar voru að drepa okkur á meðan aðrir voru að bjarga okkur og létu sér annt um okkur.“

Anastasia segir að þau Gleb hafi verið í Varsjá í þrjá daga og að þetta sé ógleym­an­legur tími. Mæðginin fóru síðan til móður hennar í Nürnberg í Þýska­landi. Þau voru hjá henni í tvær vikur og fóru síðan til München þar sem þau voru í tvo og hálfan mánuð. „Mér leið allan tím­ann eins og ég væri í fang­elsi. Mér leið illa í Þýska­landi. Ég fékk tvisvar sinnum tauga­á­fall. Mér leið eins og ég væri ekki á réttum stað og ég fór að leita leiða til að fara til Íslands. Mig lang­aði virki­lega til að koma hingað. Og tók ákvörðun. Í lok júní ókum við síðan í 17 klukku­stundir frá München til Varsjár og ég keypti flug­miða fyrir hvorki meira né minna en 600 evrur. En mér var sama. Ég varð að kom­ast til Íslands. Ég vissi að ef ég nýtti ekki þetta tæki­færi þá myndi ég kannsi aldrei koma hingað.“

Anastasia segir að 12 klukku­stunda bið á flug­vell­inum í Varsjá hafi ekki verið svo slæm. „Ég ótt­að­ist bara eitt – að flug­inu yrði aflýst. Þegar ég var komin um borð í vél­ina gerði ég mér grein fyrir að draumur minn var í fjög­urra klukku­stunda fjar­lægð. Ég gerði mér ekki almenni­lega grein fyrir hvað hafði gerst þegar ég kom til Íslands. Ég féll algjör­lega fyrir land­inu og verð hrifn­ari af því með hverjum deg­inum sem líður. Ég hafði aldrei áður séð hafið og hérna sé ég það.“

Heima­borg Anastasia hefur orðið fyrir sífelldum árásum frá upp­hafi stríðs­ins sem hefur að vonum mikil áhrif á Anastasia sem seg­ist taka þung­lynd­is­lyf og þurfi svefn­lyf til að geta sofið.

„Ég gerði mér nýlega grein fyrir því að ég er ham­ingju­söm á Íslandi. Ísland er ævin­týri. Ég elska landið þegar sólin skín, þegar rignir, þegar heitt er og líka þegar er kalt, þegar mið­næt­ur­sólin skín og þegar myrkrið ræður ríkjum. Mér finnst ég vera komin heim.“

Lífið er hér og núna

Anastasia segir að Rússar hafi tekið ákvörðun og að hún vor­kenni ekki Rússum. „Þeir fá það sem þeir verð­skulda. Það kall­ast karma og ég trúi á karma og að þeim verði refsað fyrir það sem þeir hafa gert.

Stríðið kenndi mér hvernig eigi að lifa. Að lifa eins og hver dagur sé minn síð­asti og að ekki vera hrædd við neitt. Það kenndi mér að vera sterk, hug­rökk og elta drauma mína. Að njóta hverrar sek­úndu og hvers dags. Og að muna að við eigum bara eitt líf.“

Anastasis seg­ist ekki skipu­leggja fram­tíð­ina. „Það getur allt breyst á einni sek­úndu. Lífið er hér og núna og ég elska það,“ segir Anastasia sem seg­ist hafa verið í háskóla­námi í heim­speki úkra­ínsku og seg­ist elska tón­list og séu Queen og John Lennon í upp­á­haldi. Hvað bækur varðar er Gabriel García Marquez í upp­á­haldi. Hún hefur gaman af að skrifa og hún vill skrifa.

Hún seg­ist vilja búa á Íslandi alla tíð og seg­ist þó ekki enn vera búin að fá vinnu. „Ég er heima og ég er ham­ingju­söm. Ég er frjáls og ég nýt hverrar sek­úndu. Á hverjum ein­asta morgni þegar ég opna glugg­ann segi ég: „Ég elska þig, Ísland.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina