Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Blóðugt morð á Hverfisgötu: „En þú ungi maður, hefur þú kjark til að drepa mig?“

Blóðugt morð á Hverfisgötu: „En þú ungi maður, hefur þú kjark til að drepa mig?“

Þann 1. apríl árið 1979 var 56 ára karl­maður myrtur á heim­ili sínu að Hverf­is­götu 34. Sá látni hét Svavar Sig­urðs­son. Hann hafði verið stung­inn til bana með eld­hús­hníf.

Lög­regl­unni var gert við­vart nokkrum klukku­stundum eftir morðið, en það var morð­ing­inn sem sjálfur gaf sig fram. Hann hét Þráinn Hleinar Krist­jáns­son og var 36 ára gam­all. Þráinn var einnig búsettur í íbúð í hús­inu að Hverf­is­götu 34.

Svavar heit­inn hafði hlotið stungu­sár á kvið, síðu og hálsi, en skurð­irnir voru bæði langir og djúpir. Talið var að Svavar hefði lát­ist fljót­lega eftir að hafa verið veittir áverk­arnir. Eins og áður sagði hafði Svavar verið lát­inn í nokkrar klukku­stundir þegar lög­regla var kölluð til. Það þótti strax rann­sókn­ar­efni hvers vegna hvorki Þráinn né sam­býl­is­kona Svavars, Lóa Fanney Valdi­mars­dóttir, höfðu haft sam­band við lög­regl­una fyrr.

Mikil ölvun og ásaknir um framhjáhald

Aðdrag­andi voða­verks­ins sem dró Svavar heit­inn til dauða var sá að Svavar og Lóa, sam­býl­is­kona hans höfðu verið úti að skemmta sér kvöldið fyrir hinn vofeif­lega atburð. Það hafði Þráinn Hleinar Krist­jáns­son einnig gert, ásamt Margréti vin­konu sinni. Svavar og Lóa höfðu verið á Hótel Esju, en Þráinn og Margrét á Hótel Borg. Fólkið hafði allt haft áfengi um hönd þetta kvöld.

Svavar og Lóa höfðu komið heim stuttu á eftir Þráni og Margréti. Íbúð­irnar tvær voru á sömu hæð og sam­eig­in­legt sal­erni var á hæð­inni. Eftir að Svavar og Lóa komu heim fékk Svavar sér í glas, en Lóa fór fram á snyrt­ing­una. Þegar hún kom fram mætti hún Þráni og þau tóku tal saman. Svavar kom þá fram og sak­aði þau Lóu og Þráin um að hafa átt stefnu­mót á snyrt­ing­unni. Einhver orða­skipti urðu í fram­hald­inu, en að lokum hélt Lóa inn í íbúð þeirra Svavars og fór að sofa. Svavar fór á eftir henni skömmu síðar og sofn­aði. Þráinn og Margrét vöktu hins­vegar áfram og sváfu ekk­ert alla nótt­ina.

Um morg­un­inn hitt­ust þeir Þráinn og Svavar á snyrt­ing­unni. Svavar spurði Þráin hvort hann ætti eitt­hvað að drekka og Þráinn jánk­aði því. Hinn síð­ar­nefndi sótti ver­móðs­flösku og kom með hana yfir í íbúð Svavars og Lóu. Þar drukku menn­irnir tveir saman og klár­uðu úr flösk­unni. Lóa vakn­aði og slóst í hóp­inn. Þráinn sótti aðra ver­móðs­flösku og voru þau öll orðin tals­vert ölvuð.

„Hefur þú kjark til að drepa mig?“

Eftir ein­hvern tíma upp­hófst mikið rifr­ildi og Svavar tók aftur að ásaka Lóu um fram­hjá­hald. Lóa brást hin reið­asta við og hreytti í Svavar að hún óskaði þess að hún gæti drepið hann. Svavar ýtti þá til hennar eld­hús­hníf sem lá á borð­inu og sagði: „Gerðu það þá.“ Þá sagði Lóa að það gæti hún aldrei gert. Að svo búnu fór Lóa yfir í hina íbúð­ina.

Þá á Svavar að hafa beint orðum sínum að Þráni og sagt: „En þú ungi maður, hefur þú kjark til að drepa mig?“ Að sögn Þráins hafði Svavar horft á hann afar ein­kenni­legu augn­ar­ráði.

Samkvæmt Þráni hafði hann í kjöl­farið varla vitað af sér fyrr en hann stóð með hníf­inn í hönd fyrir framan Svavar í eld­hús­inu. Hann lét hníf­inn ganga inn í kvið Svavars og risti hann neðan frá og upp. Við það féll Svavar í gólfið og þar sem hann lá í blóði sínu hélt hann áfram að egna Þráin áfram og sagði: „Þetta er búið, gakktu alveg frá mér.“ Við þau orð Svavars kraup Þráinn niður við hlið hans og skar hann á háls.

Samkvæmt frá­sögn Þráins hafði hann á þessu augna­bliki áttað sig almenni­lega á því sem gerst hafði. Það sem hann gerði fyrst var að þvo sér um hend­urnar, en að því loknu gekk hann yfir í sína eigin íbúð þar sem Lóa og Margrét sátu saman. Hann sagði þeim frá því sem hann hafði gert og þær fóru sam­stundis með honum yfir í íbúð Svavars og Lóu, þar sem þær sáu líkið á eld­hús­gólf­inu.

Enginn trúði Þráni

Þráinn og Lóa fóru að ræða hvað hægt væri að gera í stöð­unni og fyrst um sinn voru þau sam­mála um að vilja leyna því sem gerst hafði og reyna með ein­hverjum hætti að losa sig við líkið. Fyrst kom til tals að reyna að flytja lík Svavars í bíl Þráins og koma því þannig undan. Það var hins­vegar Margrét sem stöðv­aði þessar vanga­veltur og kom því skýrt á fram­færi að best væri að segja satt og gefa sig fram. Eftir nokkrar umræður höfðu þau öll sam­mælst um að Margrét hefði rétt fyrir sér og ekki kæmi til greina að leyna morð­inu.

Þar sem sími var í hvorgri íbúð­inni brá Þráinn á það ráð að fara yfir í næsta hús, þar sem hann þekkti hús­ráð­anda og fá að hringja. Þráinn þurfti að hringja í þrjá aðila áður en nokkur trúði honum þegar hann lýsti því sem gerst hafði. Hann hringdi í móð­ur­bróður sinn, móður sína og yfir­mann sinn. Öll héldu þau að um drykkju­óra væri að ræða, en Þráinn hafði áður átt það til að hafa sam­band ölv­aður og röfla eitt­hvað sam­heng­is­laust rugl. Á end­anum hringdi Þráinn á leigu­bíl sem hann lét aka sér heim til móður sinnar. Sú heim­sókn stóð stutt og systir hans keyrði hann heim skömmu síðar. Þegar heim var komið biðu þær Lóa og Margrét hans enn. Hann hélt enn á ný yfir í næsta hús og hringdi í sömu menn og hann hafði áður haft sam­band við. Enn lýsti hann því sem hann hafði gert og í þetta sinn ákvað yfir­maður hans að bregð­ast við og gera lög­reglu við­vart.

Lögregla mætti strax að Hverf­is­götu 34 og hitti þar fyrir Þráin, sem kom til dyra, Lóu og Margréti. Þeim var hleypt inn í íbúð­ina þar sem vett­vangur glæps­ins blasti við þeim og Svavar heit­inn lá í blóði sínu, lát­inn. Þráinn ját­aði strax á sig glæp­inn.

Haldinn mikilli minnimáttarkennd

Eftir játn­ingu Þráins var talin rík ástæða til að láta hann sæta geð­mati. Þar kom fram að hann væri ekki „hald­inn geð­veiki“, en að hann væri með per­sónu­leika­truflun, kom­inn vel yfir byrj­un­ar­stig ofdrykkju og glímdi við bæði tauga­veiklun og kvíða. Per­sónu­leika­truflun Þráins var talin stafa af rót­leysi í bernsku, en hann átti alla tíð erfitt með nám og var bug­aður af minni­mátt­ar­kennd. Hann var sagður hafa leiðst snemma út í ofneyslu áfengis sem sagt var stafa af örygg­is­leysi hans í félags­legum sam­skiptum og minni­mátt­ar­kennd gagn­vart öðru fólki. Þráinn var sagður hafa mikla þörf fyrir að skara fram úr á vissum sviðum, hann væri frama­gjarn í eðli sínu og var sagður þrá við­ur­kenn­ingu ann­arra. Það hefði ávallt reynst honum erfitt og flókið að mynda djúp til­finn­inga­leg tengsl við annað fólk, sér í lagi vegna gríð­ar­legrar minni­mátt­ar­kenndar hans. Óhófleg og sífellt vax­andi áfeng­is­neysla var talin bæði orsök og afleið­ing auk­innar tauga­veikl­unar Þráins.

„Viðbrögð Þráins hinn 1. apríl síð­ast­lið­inn verða að miklu leyti skilj­an­leg, ef haft er í huga, hversu mikið hann þarf að sýn­ast, duga og þora að gera hluti, til þess að bæla niður minni­mátt­ar­kennd sína. Dóm­greind hans var enn­fremur skert af svefn­leysi og drykkju. Setning sú, sem sam­kvæmt mál­skjölum virð­ist hafa orðið kveikjan að við­brögðum hans, fól í sér ásökun um ódugnað og heig­uls­hátt. Innihald ræð­unnar var áskorun, hann varð að sýn­ast og geta. Ætla má að við­brögð hans hefðu orðið önnur ef skipun eða beiðni hefði falist í inni­haldi ræð­unnar,“ segir meðal ann­ars í nið­ur­stöðu geð­rann­sókn­ar­innar á Þráni.

Svo fór að Þráinn Hleinar Krist­jáns­son var dæmdur sak­hæfur og hlaut hann sextán ára fang­els­is­dóm fyrir morðið á Svavari Sig­urðs­syni.

Bak­sýn­is­speg­ill­inn er end­ur­birtur. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina