Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Nei litla barn, þú mátt ekki hitta mömmu og pabba og þú mátt heldur ekki hitta ömmu og afa“

„Nei litla barn, þú mátt ekki hitta mömmu og pabba og þú mátt heldur ekki hitta ömmu og afa“
Sara Páls­dóttir er bar­áttu­mann­eskja.

Lög­mað­ur­inn Sara Páls­dóttir ritar áhuga­verða grein sem ber yfir­skirft­ina:

Þegar börnum er refsað fyrir veik­indi for­eldra – ó­mann­úð­leg og van­virð­andi með­ferð barna­verndar á þegnum lands­ins.

Byrjar svona:

68. gr. Stjórn­ar­skrár Íslands, nr. 33/1944Stjórn­ar­skrár Íslands, nr. 33/1944:

„Engan má beita pynd­ingum né annarri ómann­úð­legri eða van­virð­andi með­ferð eða refs­ingu.“

Hún ávarpar þega lands­ins:

„Kæri Íslend­ingur. Ef þú hélst að pynt­ingar væru eitt­hvað sem var ein­göngu stundað á mið­öldum eða í fang­elsum í mið­aust­ur­löndum þá skjátl­ast þér hrapal­lega, því miður. Í dag, í íslensku sam­fé­lagi, er verið að pynta fólk og láta fólk sæta ómann­úð­legri og van­virð­andi með­ferð, líka ungum sak­lausum börnum. Í barna­vernd­ar­kerfi Íslend­inga er dag­lega verið að brjóta gegn mann­rétt­indum og frið­helgi heilu fjöl­skyldna, refsa ungum sak­lausum börnum með því að slíta öll tengsl þeirra við fjöl­skyld­una sína og nærum­hverfi, sundra fjöl­skyldum, þvinga aðskilnað milli for­eldra og barna þeirra, milli lít­illa barna og ömmu þeirra og afa, milli systk­ina.“

Hún nefnir að „bann við pynt­ingum og ómann­úð­legri með­ferð er alþjóð­lega við­ur­kennt, ófrá­víkj­an­legt bann sem gildir alls staðar, um alla, óháð aðstæðum. Skil­grein­ing á pynt­ingum eða ómann­úð­legri með­ferð felur einnig í sér svo­kallað falið form pynt­ingar og ómann­úð­legrar með­ferðar, þ.e. nauð­ungar sem veldur alvar­legum sárs­auka eða þján­ingu þess sem fyrir því verður.

Yfirvöld beita stundum földum pynt­ingum og skýla sér á bak­við göfug mark­mið, t.d. að slík með­ferð sé nauð­syn­leg til verndar hags­munum barn­anna sem yfir­völd eigi að vera að vernda. Slíkt er blekk­ing sem notuð er til að rétt­læta ómann­úð­lega með­ferð sem er undir algildu, alþjóð­legu banni og telst skv. lögum aldrei rétt­læt­an­leg.“

Sara bendir á að „í barna­vernd­ar­kerfi Íslend­inga eru ein­stak­lingar og börn á degi hverjum látin sæta pynt­ingum, ómann­úð­legri og van­virð­andi með­ferð. Núna verður þetta rök­stutt með vísan til vinnu­bragða barna­verndar og laga. Hvað gerir barna­vernd barni, sem taka þarf að heim­ili vegna óreglu? Barna­vernd á Íslandi telur sig engar skyldur bera til að leit­ast eftir því að vista barn innan stór­fjöl­skyld­unnar. Þvert á móti, hefur fram­kvæmdin iðu­lega verið þannig, að barna­vernd reynir eftir fremsta megni að vista barn utan stór­fjöl­skyldu, hjá alger­lega ótengdum, blá­ó­kunn­ugum fóst­ur­for­eldrum. Oft búa þeir jafn­vel í öðrum lands­hluta.“

Hún bendir á að „þegar með­limir stór­fjöl­skyldu leit­ast eftir að fá barnið til sín, t.d. ömmur eða frænkur/frændur eða návinir for­eldra, er þeim yfir­leitt synjað. Barna­vernd lítur á ,,raskið“ sem fylgir því að slíta öll tengsl barns­ins ekki bara við for­eldri sitt eða for­eldra, heldur líka öll tengsl við ömmur og afa, leik­skól­ann og starfs­menn þar og önnur börn, vini sína, nærum­hverfi og stór­fjöl­skyldu­með­limi, sem „óhjá­kvæmi­legt rask“ þegar barn er sett í fóstur. Oft er barna­vernd að taka barn frá for­eldri þar sem for­eldrið „skortir inn­sæi í þarfir barns­ins“, en á sama tíma sýnir barna­vernd full­kom­inn skort á inn­sæi inn í hið sál­ræna áfall sem slíkt tengsla­rof og rask veldur litlu barni, sem er plantað á ókunn­ugt heim­ili, hjá ókunn­ugu fólki, í nýjan leik­skóla, nýjar reglur og oft án full­nægj­andi útskýr­inga. Og það á afar við­kvæmum tíma fyrir barnið, sem þarf á stór­fjöl­skyldu sinni að halda meira en nokkru sinni fyrr.

Fram­koman sem barnið fær er: „Nei litla barn, þú mátt ekki hitta mömmu og pabba og þú mátt heldur ekki hitta ömmu og afa, ekki frænku, ekki frænda og þú færð heldur aldrei að fara aftur á leik­skól­ann þinn. Þér er bannað að fara í jóla­boð hjá ömmu, þú mátt heldur ekki hitta vini þína lengur. Hér er ný mamma, nýr pabbi, nýtt heim­ili, nýr leik­skóli.“ Fram­koman sem for­eldrið fær, óháð stöðu þess er: ,,Nei, þú færð aldrei aftur að hitta barnið þitt, nema tvisvar á ári í tvo klukku­tíma í senn, í óboð­legu spes hús­næði þar sem þið eruð lokuð inni og ókunnug mann­eskja situr yfir ykkur og hefur eft­ir­lit með ykkur allan tím­ann. Ef svo ótrú­lega vill til að þið fáið að fara út í ísbúð eltir ókunn­uga mann­eskjan ykkur þangað. Hlustar á allt sem þið segið og horfið á allt sem þið gerið“. Fram­koman sem amma og afi fá: „Nei, þið fáið aldrei að hitta barna­barnið ykkar aftur, nema kannski 20 mín­útna sím­tal, einu sinni á ári.“

Bætir við:

„Flestir, ef ekki allir for­eldrar, ömmur og afar myndu frekar kjósa 20 svipu­högg á almanna­færi heldur en svona sál­ræna og til­finn­inga­lega pynt­ingu sem barna­vernd fremur gegn þeim.

En hvað svo með börnin? Þau hafa ekk­ert val. Þau gerðu ekk­ert rangt. Hvers vegna er talið rétt­læt­an­legt að brjóta svona alvar­lega gegn þeim? Hvernig getur þetta ekki flokk­ast sem pynt­ingar eða í það minnsta ómann­úð­leg og van­virð­andi með­ferð? Telst þetta ekki vera nauð­ung sem veldur alvar­legum sárs­auka og þján­ingu þess sem fyrir henni verður? Fyrir utan það að barn myndi hrein­lega deyja hlýtur þetta að vera það versta og sárs­auka­fyllsta sem for­eldri, sem amma og afi, geta hugsað sér. Og þessir ein­stak­lingar þurfa að upp­lifa þennan sárs­auka og þján­ingu, út lífið, við­var­andi – í boði yfir­valda.“

Hún bætir því við að „þegar barnið sýnir gríð­ar­leg streitu­ein­kenni, van­líðan, kvíða, grátur og nið­ur­brot í kjöl­far þessa tengsl­ar­ofs, þá er sjálfs­blekk­ingin svo mikil að van­rækslu hjá „for­eldri“ er kennt um líðan þess, en ekk­ert horft á tengsl­arofið og alger­lega kúvend­ingu á öllu í þeirra lífi, á öllu því sem skiptir mestu máli í lífi lít­ils barns, tengslum þeirra við sína nán­ustu og nærum­hverfi. Hversu mik­illi sjálfs­blekk­ingu er hægt að vera í?“ spyr hún:

Heldur áfram:

„Svo gefur barna­vernd sig út fyrir að vinna af heil­indum til að tryggja eftir fremsta megni „stöð­ug­leika“ í lífi barns. Þetta er frasi sem finna má í hverjum ein­asta úrskurði og grein­ar­gerð barna­verndar. Á sama tíma og barna­vend sjálf fremur mestu og alvar­leg­ustu stöð­ug­leika­röskun gegn þessum börnum og hugs­ast getur. Barna­vernd er ekki að fara að lögum. Lög og með­al­hófs­reglan gera ráð fyrir að ávallt eigi að leit­ast við að beita úrræðum sem eru sem minnst íþyngj­andi fyrir borg­ar­ana. Það sem verið er að gera þessum fjöl­skyldum er eins íþyngj­andi og hugs­ast getur. Hvort er meira íþyngj­andi fyrir lítið barn, for­eldra þess og stór­fjöl­skyldu, að þegar nauð­syn­legt er að taka barn úr umsjá for­eldra, sem nán­ast ávallt er vegna vímu­efna­neyslu, að leita allra leiða til að vista barn hjá ömmu/afa, frænku/frænda eða þeim sem nákomnir eru fjöl­skyld­unni, leita síðan allra leiða við að tryggja barn­inu sem mesta umgengni við for­eldrið, ef það er unnt, leyfa barn­inu vera áfram í sama leik­skóla, hjá fólki sem það þekkir og treystir, leyfa umgengni á heim­ili for­eldra, eða fara í hús­dýra­garð­inn, eða heima hjá vist­un­ar­að­ila, við mann­úð­legar og eðli­legar aðstæður, eða; slíta öll tengsl barns­ins við fjöl­skyldu og stór­fjöl­skyldu, banna alla umgengni barns­ins við for­eldrið nema tvisvar eða fjórum sinnum á ári, banna barn­inu alfarið að hitta ömmu sína nema einu sinni á ári undir eft­ir­liti, barnið fær ekki að fara í jóla­boð, afmæl­is­boð innan fjöl­skyldu, fær ekki að fara á leik­skól­ann sinn, fær þess í stað nýja for­eldra, nýtt heim­ili, nýjan leik­skóla, jafn­vel nýtt sveit­ar­fé­lag, „nýja ömmu“?

Tengsl barns­ins við for­eldra, systk­ini, afa og ömmu og aðra í stór­fjöl­skyld­unni eru frið­helg, varin í stjórn­ar­skrá, mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu og Barna­sátt­mála SÞ. Þessi frið­helgi er alger­lega virt að vettugi af barna­vernd. Öll ger­ræð­is­leg afskipti af einka­lífi, fjöl­skyldu eða heim­ili barns eru bönnuð skv. 16. gr. Barna­sátt­mál­ans. Þarna fellur t.d. leik­skóli barns undir og tengsl við stór­fjöl­skyld­una.“

Sara spyr hvort það séu það „ger­ræð­is­leg afskipti af einka­lífi og fjöl­skyldu barns að banna því að hitta mömmu og pabba, sem jafn­vel eru löngu orðin edrú, lifa eðli­legu heil­brigðu lífi, í nema 2-4 skipti á ári, í hrör­legu hús­næði á vegum barna­verndar, undir eft­ir­liti eft­ir­lits­manns? Hver vill rök­styðja það, að þetta telj­ist til mann­úð­legrar með­ferðar og feli í sér virð­ingu fyrir frið­helgi fjöl­skyld­unnar? Getur umgengni barns í tvö skipti á ári við for­eldri, talist full­nægja skil­yrðum 3. mgr. 9. gr. Barna­sátt­mál­ans um rétt barns­ins til þess að halda per­sónu­legum tengslum og beinu sam­bandi við for­eldra sína með reglu­bundnum hætti? Hvert barn sem taka þarf af heim­ili sínu og frá aðalu­mönn­un­ar­að­ila á margvar­inn rétt til að barna­vernd leiti allra leiða til að koma því fyrir innan stór­fjöl­skyldu.

En barna­vernd gerir þver­öf­ugt. Þess í stað fer barna­vernd í kostn­að­ar­sama aug­lýs­inga­her­ferð þar sem aug­lýst er grimmt eftir nýjum fóst­ur­for­eldrum á sama tíma og ekk­ert er reynt til að vista börnin innan stór­fjöl­skyld­unnar. Hvað er að ger­ast? Er barna­vernd hafin yfir lög, stjórn­ar­skrá og mann­rétt­indi sem gilda fyrir alla í land­inu? Hvernig haldið þið að ömmu líði að fá ekki að hitta barna­barn sitt nema einu sinni á ári og þá undir eft­ir­liti? Hvernig haldið þið að litlu barni líði, að fá ekki lengur að hitta ömmu, að fá ekki að hitta mömmu nema fjórum sinnum á ári? Þetta er sárs­auki og þján­ing sem þetta fólk, sem þessi börn þurfa að lifa með dags dag­lega, út lífið. Af hverju er verið að refsa litlum börnum fyrir veik­indi for­eldra? Í barna­vernd­ar­kerfi Íslend­inga er fólk beitt grimmi­legri, ómann­úð­legri og van­virð­andi með­ferð og pynt­ingum, alvar­legum frið­helg­is­brotum sem allt felur í sér brot gegn 71. og 68. gr. stjórn­ar­skrár Íslands, 8. gr. Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu, 16. gr. Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna, með­al­hófs­reglu stjórn­sýslu og barna­vernd­ar­laga, ofl. Sálrænar pynt­ingar eru pynt­ingar, og þær eru miklu verri en lík­am­legar. Ég spyr þá sem ábyrgð bera á þessu kerfi, og þá sem hafa völd til að snúa þessu við, ráð­herra barna­mála, Umboðs­mann Alþingis, úrskurð­ar­nefnd vel­ferð­ar­mála, dóm­stóla, hvað hygg­ist þið gera?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina