Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Halldór sagðist loks hafa fundið morðingja dóttur sinnar – Sást aldrei framar

Halldór sagðist loks hafa fundið morðingja dóttur sinnar – Sást aldrei framar
Vancouver í kringum 1960

Halldór Hall­dórs­son heim­sótti nágranna sinn kvöld eitt í apríl og lá greini­lega þungt á honum. Greiddi hann nágrann­anum pen­inga­skuld sína við hann og sagð­ist nú loks hafa fundið morð­ingja dóttur sinnar. Hvarf hann svo í myrkrið. Systir Halldórs, Anna, bjó með bróður sínum en þegar hún kom heim eftir útstá­elsi voru nýkeyptar mat­vörur í eld­hús­inu sem og máln­ing og tveir máln­inga­burstar. En eng­inn Halldór. Hann fannst aldrei aftur.

Þetta gerð­ist þann 1. apríl 1959 í Vancouver, Kanada. Ekki er mikið vitað um Halldór eða systur hans Önnu en þau voru íslensk og bjuggu í Vancouver. Í Lögbergi-Heimskringlu var skrifað um hið dul­ar­fulla hvarf Halldórs árið 1960 eftir að úrklippa var send á blaðið, frá frétt morg­un­blaðs í Vancouver. Hér fyrir neðan má lesa umfjöll­un­ina:

Íslend­ingur hverfur

Blaðinu barst úrklippa úr morg­un­blað­inu Province í Vancouver, dag­sett 21. marz, þar sem sagt er frá und­ar­legu hvarfi manns að nafni Halldór Hall­dórs­son, 62 ára að aldri, sem af nafn­inu að dæma virð­ist vera íslenzkrar ættar. Hann átti heima í fátækra­hverfi við sjáv­ar­síð­una, sem nefn­ist “The Waterfront“, og er hluti af Burnaby. I hverf­inu eru 139 híbýli af furðu­leg­ustu gerð, og búa þar um 200 manns í leyf­is­leysi (squatters), fólk, sem ekki á í önnur hús að venda. Þangað liggur mjór stígur ofan úr borg­inni. Þar er hvorki raf­magn, vatns­leiðslur né sími.

Kvöldið 1. apríl 1959 kom Halldór Hall­dórs­son til nágranna síns, Dan Morgans, og var honum auð­sjá­an­lega þungt fyrir brjósti; hann greiddi Mr. Morgan $10, sem hann skuld­aði honum og sagði síðan: „Dan, nú hefi ég loks­ins eftir allan þennan tíma komizt að því, hver myrti dóttur mína. Ég ætla upp í borg­ina að gera eitt­hvað í því máli.“ Síðan hvarf hann út í myrkrið og hefir ekki sézt síðan. Frétta­rit­ar­inn furðar sig mikið á því, að ekki skuli hafa orðið heyrum kunn­ugt um hvarf þessa manns, að lög­reglan hafi engar skýrslur um hann né dóttur hans. Hann leit­aði því frétta hjá nágrönnum Halldórs, og voru þeir áhyggju­fullir vegna hvarfs hans, því þeir þekktu hann sem hæg­látan en mann­blendin mann, og þeir furða sig á því, að ekki skuli hafa verið grennslazt neitt um hvarf hans, en flestir eru þeir þeirrar skoð­unar, að yfir­völdin láti sig lítið skipta afdrif fólks­ins í þessu hverfi.

Þeir muna eftir stúlkunni, sem bjó ein í kofa, sem nefnd­ist „The Ivy Nook“. Hún hafði langt svart hár, er lék laust um herðar hennar. Kofinn er nú í eyði. Frétta­rit­ar­inn fór til heim­ilis Halldórs, en þar býr systir hans, Miss Anna Hall­dórs­son, á sjö­tugs aldri. Hún þyk­ist viss um, að bróðir sinn hafi ekki farið burt sjálf­krafa, að hann hafi verið burt­num­inn eða myrtur. Hún segir, að 1. apríl hafi hann farið í póst­húsið í North Burnaby og sótt stjórn­ar­styrk­inn sinn, ávísun fyrir $72. Síðan keypti hann mat­væli fyrir $1.50 og tvo máln­ing­ar­bursta og máln­ingu. Þegar hann kom til baka, var systir hans ekki heima, en þegar hún kom heim, voru mat­vælin og máln­ing­ar­vör­urnar þar, en bróður sinn hefir hún ekki séð síðan. Hún segir, að hann hafi aldrei sótt spari­fötin sín né bát­inn sinn, sem honum hafi þótt vænt um og verið hreyk­inn af.

Miss Hall­dórs­son virt­ist lítið vita um dótt­ur­ina, en hún stað­hæfir, að hún hafi til­kynnt lög­reglu Vancouverborgar og R.C.P.M. í Burnaby um hvarf bróður síns. Hvorugt lög­reglu­liðið hefir skýrslur um þetta og mál­inu virð­ist lokið. En fólk­inu í fátækra­hverf­inu við sjáv­ar­síð­una er tíð­rætt um Halldór Hall­dórs­son, hið und­ar­lega hvarf hans og um hina svart­hærðu dóttur hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina