Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hnífsstunga í læri afbrýðisams unglings varð til að upplýsa stórmál: Þjófabæli í Stangarholti

Hnífsstunga í læri afbrýðisams unglings varð til að upplýsa stórmál: Þjófabæli í Stangarholti
Húsið á mynd­inni teng­ist frétt­inni ekki beint

Þegar lög­reglan mætti á vett­vang í Stang­ar­holti kom á dag­inn að fram­inn hafði verið glæpur. Hópur ung­menna var sam­an­kom­inn í íbúð­inni. Ungur maður hafði verið stung­inn í lærið með egg­vopni, að talið var. Annað átti eftir að koma á dag­inn en hnífs­stungu­málið átti þó eftir að draga á eftir sér dilk.

Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu barst til­kynn­ing vegna hávaða og ónæðis frá kjall­ara­í­búð í Stang­ar­holti. Atvikið átti sér stað um sex­leytið sunnu­dags­morg­un­inn, 5. mars 1995.

Fram kemur í frétt Morg­un­blaðs­ins, 7. mars 1995: „Þar var fyrir fjöldi ungs fólks þegar lög­reglan kom á stað­inn, og hafði einn piltur verið stung­inn með hníf í læri. Hann var fluttur á slysa­deild en áverk­inn er tal­inn minni­háttar, og leikur grunur á að hann hafi veitt sér hann sjálfur.“  Reyndist pilt­ur­inn hafa verið í afbrýð­is­sem­iskasti og veitt sjálfum sér sárið.

Hávaðinn frá sam­kvæm­inu og öskur gest­anna eftir að pilt­ur­inn stakk sig urðu þess vald­andi að lög­reglan komst á sporið á stórri og viða­mik­illi glæp­a­starf­semi sem herjað hafði á borg­ar­búa vik­urnar áður. Óhætt er að segja að við­kom­andi hafi skotið sjálfan sig í fót­inn með sjálfs­skað­anum.

Afhjúpun skipulagðrar glæpastarfsemi

Lög­reglan fékk hús­leit­ar­heim­ild og við leit­ina kom í ljós gríð­ar­leg magn þýfis að verð­mæti fleiri millj­óna króna. Við yfir­heyrslu kom í ljós að þýfið sem fannst í íbúð­inni tengd­ist fjölda inn­brota sem til­kynnt höfðu verið í höf­uð­borg­inni á und­an­förnum dögum og vikum.

Þá segir í fyrr­greindri frétt Morg­un­blaðs­ins: „Lög­reglan fékk hús­leit­ar­heim­ild og fann í íbúð­inni fjölda sím­tækja, tölvur, reið­tygi, sjón­varps­tæki, örbylgju­ofn og fleiri muni sem lög­reglan telur að sé þýfi úr inn­brotum að und­an­förnu, og var aðkoman svipuð og „í skran­búð“ að sögn lög­reglu.“

Átta handteknir

Fimm drengir og þrjár stúlkur á sext­ánda ald­ursári voru flutt til yfir­heyrslu hjá rann­sókna­lög­reglu ríks­ins.

Í frétt DV 6. mars sama ár kemur fram að ein­hverjir sam­kvæm­is­gest­anna voru með­limir í glæpa­gengi: „Reyndust sumir sam­kvæm­is­gesta vera með­limir í alræmdu þjófa­gengi, að sögn lög­reglu. Flutti lög­reglan átta manns, fimm drengi og þrjár stúlkur, í fanga­geymslur. Þau eru öll um tví­tugt. Stúlk­unum og tveimur drengjum var sleppt fljót­lega en þrír drengir voru færðir til yfir­heyrslu hjá RLR.“

Leigendur kjallaraíbúðarinnar í gæsluvarðhald

Óskað var eftir því að íbúum kjall­ara­í­búð­ar­innar að Stang­ar­holti yrði gert að sæta tíu daga í gæslu­varð­haldi. Ekki var talið að þeir til­heyrðu glæpa­geng­inu en sem íbúar tald­ist það víst að þeir bæru ábyrgð á þýf­inu. Annar íbú­anna var sá sem stakk sjálfan sig í lærið. Í frétt Morg­un­blaðs­ins sagði: „Eftir frum­yf­ir­heyrslur sleppti RLR einum drengj­anna en fór fram á 10 daga gæslu­varð­hald hjá Hér­aðs­dómi Reykja­víkur yfir hinum tveimur síð­degis í gær. Þeir til­heyra ekki þjófa­geng­inu og eiga óveru­lega afbrota­sögu að baki. Þeir eru leigj­endur íbúð­ar­innar við Stang­ar­holt þar sem þýfið fannst. Annar drengj­anna er sá sem stakk sig í lærið. Hér­aðs­dóm­ari úrskurð­aði dreng­ina tvo i gæslu­varð­hald til 13. mars.“

Þá kemur jafn­framt fram í frétt Morg­un­blaðs­ins að menn­irnir tveir höfðu ekki alls kostar sáttir við nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms og mátti rann­sókn­ar­lög­regla rík­is­ins þess vegna óska eftir aðstoð lög­regl­unnar í Reykja­vík: „Þegar því lauk þurfti RLR að kalla lög­regl­una í Reykja­vík sér til aðstoðar við að flytja dreng­ina frá Hér­aðs­dómi í Síðu­múlafang­elsið þar sem þeir gerðu sig lík­lega til mót­spymu. Ekki kom til stór­á­taka og gekk flutn­ing­ur­inn i Síðumúla án telj­andi vand­ræða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina