Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég er ekki í nokkrum vafa um að Guð blessaði og blessar Ísland“

„Ég er ekki í nokkrum vafa um að Guð blessaði og blessar Ísland“

Flestir Íslend­ingar yfir tví­tugu muna hvar þeir voru staddir þegar Geir H. Haarde, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, bað Guð að blessa Ísland. Augna­blikið er greypt í minni þjóð­ar­innar og felur í sér hrun þess­arar litlu þjóðar sem á þeim tíma taldi sig eiga allt, geta allt og vita allt.

Fyrir fjórtán árum, þann 6. októ­ber 2008, á­varp­aði Geir H. Haarde, þá for­sætis­ráð­herra, þjóð­ina og lét þessi fleygu orð falla í lok ræðu sinnar: „Guð blessi Ís­land.“ Orðin urðu fleyg sem tákn fyrir krepp­una á Íslandi og hafa síðan þá verið eins­konar ein­kenn­is­orð fyrir hrunið. Að sögn Geirs áttu orðin bara að vera „vina­leg kveðja“ til þjóð­ar­innar en ekki trú­ar­leg bón.

Guð leiðir okkur

Agnes Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, er hins vegar í engum vafa um hver það var sem leiddi íslensku þjóð­inar upp úr efna­hags­hrun­inu mikla:

„Það var huggun og styrkur í orðum for­sæt­is­ráð­herra þegar hann bað Guð að blessa Ísland. Í for­dæma­lausu fjár­mála­öng­stræti þjóð­ar­innar og stórs hluta heims­ins reiddi for­sæt­is­ráð­herra sig á trúna og Guð. Ég er ekki í nokkrum vafa um að Guð bless­aði og blessar Ísland,“ sagði Agnes í fyrra í sam­tali við Frétta­blaðið.

Klukkan 16 mánu­dag­inn 6. októ­ber 2008 ávarp­aði Geir íslensku þjóð­ina í sjón­varpi. Þar lýsti hann þeim efna­hags­erf­ið­leikum sem Ísland stóð frammi fyrir. Síðar um dag­inn lagði hann fram frum­varp að neyð­ar­lögum á Alþingi.

Efna­hags­leg óveð­urs­ský höfðu um nokkur skeið safn­ast saman yfir land­inu þangað til allt hrundi og for­sæt­is­ráð­herra hélt hina sögu­legu ræðu í sjón­varp­inu. „Á þann hátt, með íslenska bjart­sýni, æðru­leysi og sam­stöðu að vopni, munum við standa storm­inn af okkur,“ sagði Geir undir lok ræð­unnar áður en hann bað Guð að blessa Ísland. 

Bankarnir hrundu eins og spilaborg

„Góðir Íslend­ingar ég hef óskað eftir að fá að ávarpa ykkur á þess­ari stundu.“ Á þessum orðum hófst ávarp Geirs, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, 6. októ­ber 2008.

Í ljósi mik­ils lausa­fjár­vanda íslensku bank­anna fékk ríkið heim­ild til að taka yfir fjár­mála­stofn­anir í vanda. Næstu daga hrundu stóru við­skipta­bank­arnir hver af öðrum. Fjár­mála­eft­ir­litið tók yfir stjórn Lands­bank­ans og Glitnis 7. októ­ber og Kaup­þings aðfara­nótt 9. októ­ber.

Gengi krón­unnar hríð­féll í efna­hags­þreng­ing­unum sem fylgdu, gjald­eyr­is­höft voru sett á, atvinnu­leysi snar­jókst og rík­is­stjórnin hrakt­ist frá völdum. Tímabil góð­ær­is­ins leið skyndi­lega undir lok og fara þurfti í vinnu end­ur­sköp­unar, upp­bygg­ingar og nið­ur­rifs.

Kaupa­héðnar og útrás­ar­vík­ingar, sem fyrir hrunið vöktu aðdáun og öfund, urðu þjóð­níð­ingar í augum margra þegar sjón­ar­spilið féll um koll í svipti­byljum alþjóð­legrar fjár­málakreppu.

Forsetanum brugðið

Geir segir að það hafi ekki legið fyrir end­an­lega fyrr en kvöldið áður að hann þyrfti að flytja ávarpið. Lokaorð Geirs, „Guð blessi Ísland,“ hafa lifað með þjóð­inni. Orðin voru fyrst og fremst fal­leg loka­kveðja, sagði Geir. Fjórtán ár eru nú liðin frá örlaga­þrungnu ávarpi hans til íslensku þjóð­ar­innar, þegar íslenska banka­kerfið rið­aði til falls. „Kjarni máls­ins var auð­vitað hinn efn­is­legi boð­skapur sem ég var að flytja. Þetta var nú auð­vitað fyrst og fremst fal­leg loka­kveðja,“ sagði Geir í sam­tali við RÚV.Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, rifj­aði síðar upp að hann var staddur á kenn­ara­stof­unni í Háskól­anum í Reykja­vík, þegar hann heyrði ávarp Geirs í sjón­varp­inu. Það hafi verið þá sem Guðni átt­aði sig á alvör­unni.

„Þá fyrst átt­aði maður sig kannski á alvöru máls­ins. Þessi dagur er auð­vitað einn magn­þrungn­asti dagur sögu okkar Íslend­inga í seinni tíð. Banka­kerfið rambaði á barmi hruns og hrundi svo með braki og brestum. Hrunið hafði áhrif á fjölda fólks. Margt fólk sem hafði ekk­ert til saka unnið þurfti að þola miklar búsifjar. Og hrunið hafið áhrif á íslenskt sam­fé­lag og íslensk stjórn­mál, segir Guðni full­viss um að ýmsan lær­dóm mátti draga af hrun­inu:

Þrátt fyrir allt sem miður fór tókst að gera margt vel hér á þeim árum sem í hönd fóru þótt ýmis­legt hefði mátt gera enn betur. Við þurfum að ná þessu gullna jafn­vægi: Að hafa heil­brigt sjálfs­traust en fyll­ast ekki drambi. Það er kannski einn helsti lær­dómur hruns­ins.“

Hér má horfa á „Guð blessi Ísland“ ávarp Geirs í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina