Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Þurf­um á vinnu­færu fólki að halda, hvort sem það eru Íslend­ing­ar eða hæl­is­leit­end­ur“

„Þurf­um á vinnu­færu fólki að halda, hvort sem það eru Íslend­ing­ar eða hæl­is­leit­end­ur“
Guðrún Haf­steins­dóttir.

„Það var talað um að ráð­herra­skipti yrðu í síð­asta lagi eft­ir 18 mán­uði, þannig að ég geri ráð fyr­ir því að taka við ein­hvern tíma á næstu mán­uðum eða á fyrripart næsta árs. Jón Gunn­ars­son er bú­inn að gegna emb­ætt­inu í tæpa þrett­án mán­uði, svo það fer að koma að þessu,“ seg­ir Guðrún Haf­steins­dótt­ir, en hún er þing­maður Sjálf­stæðis­flokks­ins og sam­kvæmt því sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn samdi um við myndun síð­ustu rík­is­stjórnar, næsti dóms­mála­ráð­herra flokks­ins.

Samkvæmt frétt mbl.is kemur fram að Guðrún vilji ekki lesa mikið í orð Jóns Gunn­ars­son­ar dóms­mála­ráð­herra á Hring­braut í vik­unni; þar var hann spurður hvort ekki væri trufl­andi að hafa ráð­herra­skipti hang­andi yfir sér; fannst ein­hverjum sem svar Jóns mætti túlka á þann veg að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála­ráð­herra, réði þessu alveg óháð því sam­komu­lagi sem gefið var út við ráð­herra­skip­an í upp­hafi kjör­tíma­bils­ins.

Guðrún seg­ir að það séu alltaf áherslu­breyt­ing­ar með nýju fólki; seg­ir að samt sem áður að stóru lín­urn­ar séu þær sömu hjá þeim flokks­systkin­un­um.

Nefn­ir Guðrún sér­stak­lega mál­efni hæl­is­leit­enda sem hafa verið mjög mikið í brennid­epli að und­an­förnu. Jón hyggst leggja fram nýtt frum­varp um breyt­ing­ar á lög­um í mála­flokkn­um á næstu vik­um, sem mik­ill styr hefur staðið um:

„Það er al­veg ljóst að við höf­um búið við kerfi út­lend­inga­mála núna í nokk­ur ár sem hef­ur ríkt ágæt­is sátt um, en þrátt fyr­ir það hef­ur ekki tek­ist að gera nauð­syn­leg­ar breyt­ing­ar á lög­un­um. Núna virð­ist vera að það fyr­ir­komu­lag sé að nálg­ast þol­mörk sín og þá er ekki bara ástæða til þess að skoða þessi mál bet­ur, held­ur líka hrein nauð­syn, að fara yfir þessi lög og að sam­ræma þau þá meira því sem ger­ist í lönd­un­um í kring­um okk­ur,“ seg­ir Guðrún og bætir við:

„Ég vil leggja áherslu á það að við verðum að standa vörð um þetta kerfi því það snert­ir við­kvæma hópa, en á sama tíma verðum við að hafa enn skýr­ari regl­ur um það hvernig fólk kem­ur til lands­ins. Núna höf­um við fengið óvenju marga flótta­menn og hæl­is­leit­end­ur til lands­ins á þessu ári og óneit­an­lega hef­ur það reynt á þol­mörk grunn­kerfa sam­fé­lags­ins sem við all­ir íbú­ar lands­ins treyst­um á,“ seg­ir Guðrún.

„Við vit­um að við höf­um búið við vanda á hús­næð­is­mark­aði í nokkuð mörg ár og þegar koma nokkr­ar þús­und­ir til lands­ins sem vant­ar hús­næði þá ligg­ur það í hlut­ar­ins eðli að þetta er íþyngj­andi. Það er á ábyrgð stjórn­mála­manna að gæta þess að kerf­in geti staðið und­ir þessu aukna álagi og brotni ekki. Það er það fyrst og síð­ast sem vak­ir fyr­ir okk­ur um að gera þess­ar breyt­ing­ar þannig að við get­um stýrt þessu bet­ur og haft betri yf­ir­sýn og að við tök­um vel á móti þeim sem hingað koma og þurfa á vernd að halda.“

Guðrún seg­ir að mann­úðin þurfi að vera í fyr­ir­rúmi í þess­um við­kvæma mála­flokki, en hún þurfi samt að hald­ast í hend­ur við veru­leik­a íslenskts sam­fé­lags, sem og get­una til að taka vel á móti hæl­is­leit­end­um og að það sé eng­um greiði gerður ef ekki sé tekið mið af raun­veru­leik­an­um og getu okk­ar til að sinna mála­flokkn­um með sóma og sæmd:

„Við þurf­um líka á vinnu­færu fólki að halda hérna á Íslandi, hvort sem það eru Íslend­ing­ar eða hæl­is­leit­end­ur. Það er því al­veg gríð­lega mik­il­vægt að við tök­um þetta verk­efni og að okk­ur farn­ist vel í því. Við þurf­um að móta okk­ur stefnu í inn­flytj­enda­mál­um. Það er krefj­andi spurn­ing hvernig við ætl­um að manna störf hér nú og fram­tíð­inni. Við þurf­um á fólki að halda.“

Guðrún bætir við:

„Sumt fólk er að koma hér með þunga reynslu á bak­inu og mik­il áföll og við þurf­um auð­vitað að taka utan um þá hópa og aðstoða þá til virkni í sam­fé­lag­inu. Það er verk­efni sem við ber­um öll ábyrgð á. Það geng­ur ekki að við séum að setja síðan svona mik­inn þunga á íbúa á litlu svæði eins og í Reykja­nes­bæ held­ur verðum við að dreifa þessu álagi á fleiri sveit­ar­fé­lög.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina